Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ' 513
grípa þá, og helst Arnór. Þó segja
sumir að Kristján hafi beiskastur
orðið við Jón Bjarnarson.
Var nú þeim feðgum sagt hvað
af var ráðið, en þangað til voru
þeir lengi góðrar vonar að þeir
mundu lausir látnir, og mælti Jón
biskup það oft: „Að jólum verðum
vjer á Hólum“. En nú tók hann
að kannast við hve langt hann
hefði fram farið í slíkum stórræð-
um, og kvað þetta:
Vondslega hefir oss veröldin blekt,
vjelað og tælt oss nógu frekt.
ef jeg skal dæmdur af danskri
slekt
og deya svo fyrir kóngsins mekt.
Björn barst af aumlega, en Ari
varð hreystilega við. Eigi gekk
dómur um slíkt stórvirki, og reiddi
því illa að flasað var að, sem enn
mun sagt verða.
Aftökurnar.
Var nú sent eftir Jóni Ólafssyni
Bessastaðaböðli, dreng lítt nýtum.
Þeir feðgar höfðu geymdir verið
allir saman í biskups baðstofunni
í Skálholti, þar til er þetta var orð-
ið, en nú voru þeir aðskildir, var
biskup í hinni sömu baðstofu, en
Björn prestur var látinn í Ásmund-
arstofu, hún stóð þar sem síðar var
gengið inn í herbergin, á vinstri
hönd úr norðurgöngunum. En Ari
var í presta baðstofunni, þar stóð
siðan skólinn. Var sjerhverjum
þeirra fenginn prestur til að hafa
fyrir þeim kristilegar fortölur,
bjuggust þeir og vel við dauða sín-
um, það á var að sjá. Þeir höfðu
messu hvern dag, meðan þeir voru
í Skálholti, og gaf biskup þeim og
sjer guðs líkama að því er þeir
kölluðu, og eins hinn síðasta dag-
inn uppi í kirkju. Var helst orð á
gert hve karlmannlega Ari hefði
við oröið. Þá hina siðustu uótt gekk
haan um gólf með sóngvum og
lestrum, en fell stundum á knje
til bænar. Þar var hjá honum Jón
Ólafsson systurson Daða, binn
hraustasti maður. Ari bað hann
höggva sig og bauð honum til hinn
besta klæðnað sinn og þann kost-
grip úr eigu sinni sem hann vildi,
sagði að mannleysi það megnaði
því ei, er það skyldi vinna. Jón
vildi það ekki, kvaðst ei hafa mátt
þá hann vildi, en það var á Sauða-
fellsfundi.
Vindustokkur forn frá kirkjunni
var fluttur fyrst austur á klettana,
og ætlaður fyrir höggstokk, en
skarð höggvið í fyrir hökunni.
Hann stóð fyrir austan túnið sjálft
fyrir ofan Þorlákssæti.
Um sólaruppkomu þá er þeir
feðgar höfðu áður tekið guðs lík-
ama sem fyr segir, var Ari leiddur
út af prestastofunni. Hann mælti
þá: „Hjeðan mun margur göfugur
út ganga“. Það þykir hafa orðið
að spá. Og er hann gekk lengra
fram mælti hann: „Nauðugur gekk
jeg til þessa leiks, en þó skal nú
viljugur út ganga“. En sem hann
kom á höggstokkinn mælti hann:
„Skal hjer nú staðar nema, minn
herra?“
„Já“, sagði Kristján skrifari.
Ari mælti: „Svæi þjer þinn
prakkari, aldrei kallaði jeg þig
minn herra, heldur talaði jeg til
míns drottins“.
Margir hörmuðu hann, og kváðu
mikinn skaða í aftöku slíkra manna
og vildu eigi vera þar viðstaddir.
Eigi viidi hann láta binda fyrir
augu sjer, og er hann kraup við
höggstokkinn rnælti hann að böð-
ullinn skyldi eiga hatt sinn, ef
hann höggvi sig hreinJega. Stóð
svo á knjánum og lasmænir sínar
og seinast: in manus tuas domine
comendo spiritum meum. Síðan
setti hann hökuna í skarðið á
stokknum og teygði hálsinn svo
að sá til allra sma og æða. Tók
hófuðið af x einu hoggi.
Björn prestur hafði mest ámæli
af mörgum manni af tillögum sín-
um og tiltektum meðan hamingj-
an ljet honum, en nú var hann
fullur trega og bar sig hörmulega,
skaut helst við um börn sín. Hann
bað um líf og hjet að hefna aldrei
þess, er nú var orðið, en það fekst
ekki, því hann var þeim óþokkað-
ur mjög, en sá þótti ágætari er
látinn var. Höggstokkurinn var þá
fluttur upp með túninu, á aðra
kletta nokkru ofar. Var Björn
prestur leiddur þangað og var mjög
aumlegt að sjá til hans og heyra.
Hann mælti oft: „Æ, æ, börnin mín
ung og smá“. En er hann lagðist
á höggstokkinn krepti hann háls-
inn af harmi og kvíða, svo ei tók
af höíuðið fyr en í fjórða höggi.
Nú var Jóni biskupi sagt líflát
sona hans, og honum þá boðið líf
en hann kvað þá sjer svo fylgt hafa,
að hann vildi nú fylgja þeim. Og
er hann gekk fram úr kórnum í
kirkjunni og hafði krossmark í
hendi, vildi hann krjúpa frammi
fyrir Maríu líkneski, er þar var
nærri, en prestur sá, er honum
íylgdi og hafði kristiiegar fortölur
fyrir honum, er Sveinn hjet, bað
hann láta af slíkri hjervillu, og
mælti það meðal annars:
„Líf er eftir þetta líf, herra“.
Biskup snerist við honum snögg-
lega og mælti:
„Veit jeg það, Sveinki“.
Höggstokkurinn var þá íluttur
upp undir klettana hjá alinenn-
íngsgötu, og er biskup var leiddur
þangað stóðu þeir skamt þaðan á
þúfu einni Marteinn biskup, Kristj-
án og Daði. Biskup gekk að Daða
og bauð honum að leysa hann úr
banninu.
Daði mælti: „Þú sjerð nú ekki
meira bann á mjer en þjer“.
Við það gekk biskup hryggur að
höggstokknum og fól sig guði,
kraup fram og mælti: „in manus
tuas, domine, commendo spiritum