Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
523
Pyramidarnir
í Egyptaiandi og Mexiko
ætlaði ekki heldur að ganga greið-
lega að leysa kjarnorkuna úr læð-
ingi. Menn voru ekki komnir lengra
áleiðis með það árið 1938 heldur en
menn eru nú komnir áleiðis með
að handsama sólarorkuna.
Rannsóknum og tilraunum verð-
ur haldið áfram. Er skemst á það
að minnast að aðstoðar innanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna ráðlagði
þinginu í ágúst í sumar að „veita
nokkur hundruð miljóna dollara til
þess að finna nýar orkulindir", og
benti aðallega á sólarorkuna.
Það hefur kostað Bandaríkin
nokkrar þúsundir miljóna dollara
að ná í kjarnorku í nokkrar sprengj
-ur. Og nú hafa verið veittar á
þessu ári 120 miljónir dollara til
allskonar kjarnorkurannsókna, og
hvernig hægt sje að hagnýta kjarn-
orkuna. En það á þó enn langt í
land að kjarnorkan verði notuð sem
aflgjafi til iðnaðar. — Þeir, sem
stjórna kjarnorku rannsóknunum
segja, að þess sje í fyrsta lagi að
vænta eftir tíu ár, að kjarnorkan
verði tekin til almennra nota.
Fyrstu kjarnorkusprengjurnar
kostuðu miklu meira heldur en því
f je nemur, sem nú er veitt til kjam-
orku rannsókna. Það er óvíst að til-
raunir um að handsama sólarork-
una, þurfi að kosta svo mikið. Og
það ætti ekki að vera meira vanda-
mál. Hver veit nema að innan tíu
ára verði kjarnorkan úrelt, vegna
þess að þá sje kominn annar orku-
gjafi, sem er miklu hentugri og við-
ráðanlegri. Hver veit nema að eftir
tíu ár verði sólin farin að mjólka
kýrnar okkar, skaka strokkinn,
hreinsa gólfin, þvo þvottinn og yf-
irleitt vinna öll þau heimilisstörf,
sem vatnsorkan leysir nú af hendi?
Hjer er að vísu ekki átt við hin
norðlægu lönd, þar sem sólar nýtur
svo lítt, og skin hennar er svo ó-
stöðugt.
^ ^ ^
í FORNÖLD var pyramidinn mikli
í Egyptalandi talinn eitt af furðu-
verkum heimsins. Og enn í dag er
hann talinn mesta furðuverk heims
-ins. Þarf hjer ekki að rekja ástæð-
urnar til þess, því að svo mikið
hefur verið ritað um pyramidann
á íslensku á seinni árum, að hverju
mannsbarni ætti að vera þetta
kunnugt.
Lengi vel þektust ekki aðrir pyra
-midar en hinir egypsku. En síðan
hafa fundist pyramidar bæði á
Suðurhafseyjum og í Mexikó. Og
þá vaknaði þessi spurning: Er
nokkurt samband hjer á milli? Er
það samskonar menning, sem stað-
ið hefur að byggingu þessara ein-
kennilegu mannvirkja? í fljótu
bragði kynni þetta að þykja óhugs-
andi, þar sem um slíkar órafjar-
lægðir er að ræða eins og milli
þessara fornminja, og að bæði Suð-
urhafseyjar og Mexiko voru fyrir
utan hinn þekta heim langt fram
eftir öldum.
En þá ber á hitt að líta, að pyra-
midarnir eru svo einkennilegar
byggingar, að engpm öðrum bvgg-
ingum svipar til þeirra. Hugsast
gæti þó, að þrjár þjóðir, sem ekk-
ert þektu hver til annarar og hver
um sig ósnortin af menningu hinna,
kynni að hafa fundið upp á því að
reisa slíkar byggingar. Menn finna
upp hið sama, þótt hvorugur viti af
öðrum. Þessi skýring er þó ekki
nægileg.
Menn vita nú að pyramidinn
mikli í Egyptalandi -túlkar heims-
skoðun og trú löngu horfinnar kyn-
slóðar. Þetta er ekki aðeins topp-
mynduð, ferhyrnd bygging, held-
ur er alt þar hnitmiðað, svo að
menn hafa kallað þennan pyra-
mida „steinbiblíuna“, og er þá átt
við það, að spádómar biblíunnar sje
þar letraðir með táknmáli. sem
menn eru nú fyrst að læra að lesa.
Og í táknmáli hans eru einnig
fólgin heimsvísindi og furðuleg
þekking á gangi og brautum himin-
hnatta, og þar með óskeikult tíma-
tal.
Pyramidarnir á Suðurhafseyjum
eru nú rústir einar, því að þeir
hafa ekki verið eins framúrskar-
andi vel bygðir eins og pyramid-
inn mikli. Menn hafa því enn eigi
getað ráðið af þessum rústum,
hvort í þessum pyramidum hafi
falist álíka táknmál og í pyramid-
anum mikla. Hitt er vitað, að bygg-
ing þessara pyramida á Suðurhaís-
eyjum hefur staðið í beinu sam-
bandi við trúarbrögð þeirra, er þá
reistu. Lifa enn um það sagnir á
vörum fólksins. Landkönnuðurinn
Cook hefur lýst einum pyramida
þar. Segir Cook að hann hafi verið
40—50 fet á hæð og þrep upp eftir
öllum hliðum hans. Undraðist Cook
það mjög, að íbúarnir þarna, sem
ekki áttu nein verkfæri, skyldu
geta reist þvílíkt mannvirki. Telur
hann að það hafi verið mikið þol-
inmæðiverk. „Hver einasti maður
kom með sinn stein í bygginguna,
og svo var hún fullgerð, því að
þjóðin var fjölmenn þá“, segja
eyjarskeggjar. Amerískur ferða-
maður kom að þessum pyramida
fyrir nokkrum árum. Þá var hann
að miklu leyti hruninn, vegna þess
að byggingarefni hafði verið tekið
úr honum og sjór hafði gengið á