Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 12.11.1950, Blaðsíða 15
flciri’ eru þeir sem vola og víla, visan þig að hetju gerði, skerpist sjón við óðar iðju, eldár loga glatt í smiðju. Fimlegar enginn færði í letur, ferskeytluna á vorum tíma. Fáir liafa bragnar betur bragþrautirnar nent að rima. Gegnum húmið sindrar svarta, sjáandinn í skáldsins hjarta. Vinnulúinn vökumaður, vígur jafnt til munns og handa, viðbragðsfljótur, verkahraður, vanur að leysa skjótt úr vanda. Fjöldanum ertu höí'ði hærri, hámentuðum mörgum stærri. Þökk og heiður hljóttu af öllum, hagyrðingur, verkamaður. Skiparðu sess mcð skötnum snjöllum, skáldaspillir sjálfmentaður. Loks þcgar endar æviraunin, áttu hárviss sigurlaunin. Einar E. Sæmundsen sextíu og fimm ára Leggur á skóga hrím og hrið hregg er nóg i fari; sneggist tó i hamrahlið, hneggjar dróg í vari. Kveð við raust, því komrð er haust kviðalaust má stríða. Láttu Austra fengsælt flaust, fram úr nausti skriða. Ætið þróist upp úr snjó andans frjógræðingur. Aflaðu nóg, en eyddu þó, Einar skógfræðingur. Verði lif þitt frægðar för fram í rauða elli. t>o að gráni skegg og skör skaitu halda velli. Hjofmundur frá Hjálmsstoðuin sjötugur. (Brot) Enn þá knár og fótafrár fellur gári á vanga, sverfir brár og silfrar hár sjötíu ára ganga. Ennþá-slendur uppi hjer, yrkir hending glaður, ennþá kendur kátur er karl, aíreadur maður. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 531 Oft urn fjöll og firni lands fórst með snjöUum hölum. Hvellar bjöllur hornberans hljómuðu í öllum dölum. Dreifðust hjarðir hjer og þar hóla, skarð og grundir. Hleypt var gjarða góðum mar grjótið marðist undir. Ef með hrolli einhver lá með aðbúð skolli rýra, reyndist hollust hressing þá, hálfur bolli af spíra. Þú hefur beitt á bláa röst, burða neitt á kænum glófa bleytt i votri vöst, volkið þreytt á sænum. Orf og ljár er áhald vænt oft í gára dróstu. Grundar hárið hátt og grænt heljar skára slóstu. Gaman stundum þótti þjer, þegar bundið hafðir, unga hrund ef engiim sjer alsæll mundum vafðir. 4/ ^ ^ Uíia Herra ritstjóri. í BLAÐI yðar, Lesbókinni, birtist, sunnudaginn fimtánda október, vísa sem er talin að vera draumvísa Elínar Guðmundsdóttur húsfreyju á Brúna- stöðum. Eg lel þelta ekki rjett með farið, þar eð vísan var löngu kunn áður en Elínu dreymdi hana. Saga visunnar er í stuttu máli þessi. Nokkru eftir að Jóhann giftisl Elínu og hún tekin við hússtjórn á Brúna- stöðum, rjeðust til þeirra ung hjón að vestan, sem Elín hafði kynst þar á meðan hún var í foreldrahúsum á Guð- laugsstöðum, voru þau bæði vel gefin og orðlögð fyrir dugnað. Með þeiin kom að Brúnastöðum, dóttir þeirra nokkurra missira gömtil. — Eitt hvert sinn var það að Elín Ijel sauma á litlu stúlkuna bláleitan kjól og þá kvað Benedikt faðir stúlkunnar þessa vísu er birtist í Lesbókinni. Eftir tvö til þrjú ár fluttust þau Benedikt og kona hans Agnes, frá Brunastöðura eu íleogdust þó í Tungu- sveit. Litla stúlkan varð þá eftir hjá þeim Brúnastaðahjónum og ólu þau hana upp sem sitt eigið barn. Hún var mjög myndarleg og vel gefin og á tví- tugsaldri trúlofaðist hún Sigurði Þor- steinssyni, mjög efnilegum manni og þjóðhagasmið. Jóhann setti undir þau sina bestu jörð, Reyki í Tungusveit. En um það ieyti sem þau hófu búskapinn, dreymir Elínu að þessi visa var höfð yfir, sem Benedikt hafði ort um Hólmfríði fjög- urra til fimm ára. Um sama leyti og Elínu dreymdi vis- una veiktist Hólmfríður af berklum og var hún þá flutt heim í Brúnastaði og þar dó hún eftir um það bil árlanga þunga legu. Virðingarfylst Þorsteinn Magnússon írá Gilhaga. Jw íW 4* íW ^ - Molar - / LÆKNIR nokkur, sem var frægari fyr- ir þekkingu sína en fyrir það hvað hann skrifaði vel, sendi einum af sjúk - iingum sínum kort og bauð honum heim. Skrifaði hann á kortið að menn mundu skemta sjer við hljóðfæraslátt, spil o. s. frv. Ekki kom- boðsgesturinn, og ekki sendi hann neina afsökun. Það var ekki fyr en nokkrum dög- um seinna að þeir hittust og spurði læknirinn þá hvort hann hefði ekki fengið miða frá sjer. — Jú, þakka yður fyrir, svaraði hinn, og jeg fór þegar með hann í lyfjabúð- ina og fekk út á hann, og það eru þau bestu meðúl, sem jeg hef fengið, því að nú er jeg eins og nýr maður. ------o----- Hinn mikli ameríski stjórnvitiingur, Thomas Jefferson, sagði einu sinni: — Sparsemi tel jeg einhverja bestu og þyðingarmestu dygð, en af rfkisskuld- um stafar hverri þjóð meiri hætta en af nokkru öðru. Ef vjer viljum varð- veita sjálfstæði vort, megum vjer ekki leyfa hinum ráðandi mönnum að hlaða sífelt á oss nýum sköttum. Vjer verð- um að velja á milli sparnaðar og frelsis annars vegar, og eyðslusemi og þræl- dórag hins vegar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.