Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1950, Síða 1
FORSETI FINNLANDS
J. K. PAASIKIVI ÁTTRÆÐUR
Paasikwi viS skrifborð sitt.
JUHO KUSTI PAASIKIVI er
fæddur 27. nóvember 1870 í
Tammerfors (Tampere), sem nú er
næststærsta borgin í Finnlandi og
mest iðnaðarborg þar í landi. Faðir
hans var kaupmaður af bændaætt-
um og hjet Hellsten, en nafninu
sneri sonur hans á finsku og kall-
aði sig Paasikivi.
Nítján ára gamall útskrifaðist
hann sem stúdent frá Tavastehus,
þar sem margir nafnfrægir Finnar,
eins og t. d. Sibelius, hafa stundað
nám. Síðan fór Paasikivi til háskól-
ans í Helsingfors og tók þar em-
bættispróf í lögfræði, og varð dokt-
or í lögfræði 1901.
Hann ætlaði sjer upphaflega að
gerast vísindamaður og alla ævi
hefir hann haft mikinn áhuga fyr-
ir menningu og vísindum, enda er
hann mjög lærður maður, eigi að-
eins í lögfræði, heldur ýmsum öðr-
um greinum. Það er enginn efi á
því að Finnland hefir farið mikils
á mis við það að hann skyldi ekki
gefa sig eingöngu við vísindum, en
í staðinn eignaðist það framúrskar-
andi fjármálamann og stjórnmála-
mann, þar sem hann er.
Arin 1899—1903 var hann kenn-
ari við lagadeild háskólans í Hels-
ingfors, en þá var honum fengin
mjög ábyrgðarmikil staða, því að
hann var gerður að yfirskrifstofu-
stjóra ríkisstjórnarinnar. Helt hann
því embætti fram á fyrsta ár fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Á þessum ár
um varð hann þingmaður og var
framsögumaður landbúnaðarnefnd-
ar þingsins 1907—1913 og fjármála-
nefndar 1910. Hann var íhaldsmað-
ur og fylti flokk hinna svonefndu
„gamalfinsku flokka“, sem nú eru
kallaðir hinir þjóðlegu sameining-
arflokkar, en það eru allir hægri
flokkarnir. En frá 1936 er Paasi-
kivi ekki í neinum flokki, og sem
forseti er hann nú hafinn yfir alla
flokka.
Sem stjórnmálamaður var hann
gætinn og glöggur og stóð fast á
grundvelli laga og rjettar. Hann
varð fjármálaréðherra í ríkisstjórn
inni 1908—1909, en hún varð að