Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1952, Side 4
312
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
T
« '
Gamla prentsmiðjuhúsið, Austurstræti 8
Um áramótin 1885—86 hafði
Björn Jónsson keypt „Skraddara-
húsið“, eða Lambertssens-húsið í
Austurstræti. Lét hann rífa það
ög byggja að nýu fvílyft timbur-
hús. Gekk smíði þess fljótt og vel,
því að prentsmiðjan er komin í það
seinast í júlí. í 31. tbl. ísafoldar b.
ár stendur: „Isafoldarprentsmiðia
og afgreiðslustofa er í nýa húsinu
milli Austurvallar og Austurstræt-
is. Vegna flutnings á prentsmiðj-
unni m. m. hefir útkoma þessa
blaðs dregist einn dag“.
Þótt smíði hússins gengi fljótt,
var það mjög vel vandað. Máttar-
viðir voru hinir traustustu og svo
að segja hver spýta úr kiörviði. Má
sjá þess enn merki, því að allir við-
ir eru enn ófúnir. Húsið var líka
hlýtt Qg vel éinangrað.
Fyrir nokkru fór ég á fund
manns hér í bænum, sem Eiríkur
heitir Torfason og á heima á Báru-
götu 32. Hann er nú 95 ára að aldri.
Eg ætlaði að fræðast af honum um
atburð, sem gerðist hér í Reykia-
vík fyrir rúmlega 65 árum. „Eg
man ekkert um það“, sagði hann,
„því að þá var ég bóndi á Minni
Vatnsleysu. En ég man eftir því
þegar ég setti tróðið í ísafoldar-
prentsmiðju. Björn heitinn Jónsson
bað mig að safna grámosa suður í
hraunum og flutti ég til hans fjóra
bátsfarma og var það allt haft til
einangrunar í húsið“. Þetta sýnir
hugkvæmni og forsjá Björns Jóns-
sonar að hann skyldi velja þetta
efni til einangrunar. Og líklega er
ísafold eina húsið í bænum þar
sem tróðið er þur grámosi.
Gengið var inn í húsið í vestur-
enda frá Austurstræti og var þar
anddyri allmikið. Til vinstri hand-
ar úr því var gengið upp nokkur
þrep í dálítið herbergi og var þar
afgreiðsla blaðsins. Önnur þrep
voru í miðju anddyri upp á ofur-
lítinn pall og voru þar aðrar dyr
á vinstri hönd. Þar fyrir innan var
gangur jafnlangur afgreiðsluher-
berginu. í honum miðjum var
brattur stigi upp á loft, en framan
við hann var gengið inn í skrif-
Nýa prentsmiðjuhúsið, Þingholtsstræti 5