Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1952, Síða 13
Kjarnaskóg, Kjósverjar í Reykjavík
færðu sveit sinni 2000 plöntur og gróð-
ursettu þær. Mikil eftirspurn var að
trjáplöntum í garða í Revkjavík og vex
sú eftirspurn ár frá ári. í fyrra afhenti
Skógræktarfélag Reykjavíkur 67.000
trjáplöntur úr uppeldisstöð sinni í Foss-
vogi, og sjálfsagt ekki minna nú. Félag-
ið á sem stendur rúml. 50 tegundif trjá-
plantna í uppeldi, þar á meðal plöntur,
sem eiga ættir sínar að rekja alla leið
til Eldlands og Alaska.
SÝNINGAR
í Listamannaskálanum í Reykjavík
voru í þessum mánuði þrjár málverka-
sýningar. Fyrst sýndi Hjörleifur Sig-
urðsson um 30 málverk. Síðan hafði
frú Kristín Jónsdóttir sýningu á 60
málverkum og sóttu hana um 1200
manns. Seinast;í mánuðinum opnaði
Halldór Pétursson sýningu á myndum
og málverkum.
ÍÞRÓTTIR ,
Um mánaðamótin stóð yfir skíða-
keppni í ísafirði, en svigkeppnin stöðv-
aðist í miðju kafi, vegna þess að snjó-
flóð fell á skíðabrautina og sópaði henni
burtu að miklu leyti.
Körfuknattleiksmóti lauk um fyrri
mánaðamót í Reykjavík. íþróttafélag
flugvallarstarfsmanna í Keflavík bar
sigur af hólmi. j
Hið árlega maí-boðhlaup fór fram á
Akureyri og sigraði sveit úr mennta-
skólanum eftir harða viðureign.
Sundmeistaramót íslands fór fram í
Hveragerði 10.—11. maí og kepptu þar
sundmenn frá Reyk.iavík, Hafnarfirði,
Akranesi, Keflavík, Ölfusi og Borgar-
firði. Reykvíkingar fengu öll meistara-
stigin nema 2.
Skotkeppni fór fram 29. milli sjóliða
af brezka skipinu HMS Remola og
Skotfélags Reykjavíkur. Voru 8 menn
í hvorri sveit. íslendingar sigruðu með
1345 stigum, en Bretar fengu 979 stig.
ERLENÐIR GESTIR
Norris E. Dodd aðalforstjóri FAO
kom hingað í kynnisför og dvaldist hér
vikutíma. Það varð að ráði að sérfræð-
ingar frá FAO veittu íslendingum lið
1 baráttunni við búfjársjúkdóma.
Hollenzkur skákmeistari, Prins, kom
hingað og tefldi fjöltefli og kappskákir
í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akur-
eyri.
Amerískur blaðamaður frá „Chicago
Tribune", Larry Rou að nafni. dvaldist
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
r~' 321
Hér um hríð til að safna efni í greinar
um ísland.
Sextíu norskir skógræktarmenn
komu hingað með norska skipinu
„Brand V“ og störfuðu viðsvegar um
land fram yfir mánaðamót. Með skip-
inu fóru út 63 íslendingar, karlar og
konur, til skóggræðslustarfa í Noregi.
Brezkir knattspyrnumenn úr félag-
inu Brentford (atvinnúmenn) komu
hingað til að keppa við íslenzku félög-
in. Keppninni var ekki lokið um mán-
aðamót.
Danskir leikarar frá konunglega
leikhúsinu í Höfn komu hingað og
sýndu nokkrum sinnum í Þjóðlgikhús-
inu „Det lykkeliga Skibbrud" eftir
Holberg.
Tora Segelcke frægasta leikkoná
Norðmanna kom hingað til þess að
leika aðalhlutverkið í Brúðuheimilinu
eftir Ibsen, sem sýnt var í Þjóðleik-
húsinu. ,
Prófessor H. A. Muller frá Columbía-
háskólanum kom hingað í boði Hand-
íða og myjidlistarskólans til að kenna
svartíist á námskeiðum skólans.
Franskur tenórsöngvari, Leonida
Bellon, kom hingað og söng hér nokkr-
um sinnum.
UTANFARIR
Tólf íslenzkar konur fóru á kvenna-
þing í Osló.
Karlakórinn Geysir á Akureyri leigði
skipið Heklu til Noregsfarar og slóst
fjöldi ferðamanna í hópinn. Geysir söng
á ýmsum stöðum í Noregi, Gautaborg,
Kaupmannahöfn og Þórshöfn í Færey-
um á heimleið.
Haraldur Guðmundsson forstjóri
Tryggingarstofnunarinnar og Gunnar
Möller forstjóri Sjúkrasamlagsins fóru
til Kaupmannahafnar og sátu þar fund
til að undirbúa gagnkvæmar sjúkra-
tryggingar á Norðurlöndum.
sjúkraiiússmAl
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
bárust margar og miklar gjafir í þess-
um mánuði, þar á meðal samskot úr
ýmsum hreppum:. 2850 kr. úr Öxna-
dal, 11,515 úr Svarfaðardal, 15.450. úr
Presthólahreppi, 7370 úr Axarfirði,
5920 úr Skriðuhreppi. Sjómanna og
skipstjórafél. Akureyrar gaf 26.200 kr.,
Ræktunarfélag Norðurlands 5000, Minn
ingargjöf um Ingvar Guðjónsson út-
gerðarmann 10.000, Verzlunarmannafél.
Akureyrar 5000, konur í Húsavík 4000,
Kvenfélag Hríseyar 3732 kr.
Sjúkrahús Akraness fekk 67.000 lcr.
gjöf er kvenfélagið hafði safnað, Spar-i-
sjóður Akraness gaf 50.000, starfsfólk í
frystihúsum 28.000.
Aðalfundur Kvenfélagsins Hringur-
inn bauð fram byggingar$jóð sin'n,
rúmlega 2 milljónir króna-, til þess að
barnaspítali yrði reistur í Sámbandi við
Landspítalann.
Ný frímerki, flugfrímerki 1.80, 2.50
og 3.30 kr. gaf póststjórnin út 2. maí.
Beint talsímasamband frá Reykjavík
var opnað 1. maí við símstöðvarnar á
Brúarlandi, Selfossi og Hveragerði.
Skálholtsstaður. Grunnavíkurhrepp-
ur gaf 500 krónur í sjóð til endurreisnar
Skálholtsstað.
100 heiðagæsir, sem merktar voru hjá
Hofsjökli í sumar er leið, Hafa verið
handsamaðar í Englandi.
Iíallgrímur Benediktsson stórkaup-
maður var kjörinn af bæarráði til þess
að vera fulltrúi Reykjavikur á Olym-
píuleikunum í Helsingfors.
Frú Dóra Sigurðsson var skipuð pró-
fessor í söng við kgl. danska hljómlist-
arskólann.
Nýr flugvöllur. Hafnar voru fram-
kvæmdir að gerð nýs flugvallar við
mynni Eyafjarðarár. Þýkir þ’að að öllu
hentugri staður en Melgerðispielar, þar
sem flugvöllur Akureyrar hefur verið.
Ilæstaréttardómur fell í máli þeirra,
er gerðu aðsúg að Alþingi 30. marz
1949. Fjórir hinna ákærðu voru sýkn-
aðir, tveir hlutu sektir, en 18 voru
dæmdir til fangelsisvistar.
Oliuskipið sokkna. Byrjað var að
dæia olíu úr olíuskipinu, sem sökk í
Seyðisfirði á stríðsárunum. Gekk það
vel í fyrstu og hafði olíuskipið Þyrill
verið hálfhlaðið, en þá spilltist tíð. —
Verður svo tekið til óspilltra málanna
er veður batnar aftur.
Jarðskjálftar. Snarpur jarðskjálfta-
kippur fór um Suðurnes hinn 16. Urðu
talsverðar skemmdir í Krýsuvík. Smá-
hræringar voru síðan fram undir kvöld.
— Upptök jarðskjálftanna voru talin
skammt fyrir austan Kieifarvatn. .
Ný íslenzk flugvél kom hingað í
mánuðinum og er eign Loftleiða.. Er
það Skymaster,: sem getur ílutt 65 far-
þega. Hlaut hún nafnið Hekla. Hún
kostaði nær jafnmikið og nýr togari.,
Nýr doktor. Gunnlaugur Þórðarson
Sveinssonar læknis á Kleppi, lauk
doktorsprófi við háskólann Sorbonne
i París. Doktorsritgerð hans fjallaði um
íslenzka landhelgi.