Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1953, Blaðsíða 1
*
Islendingur í Indlandi skrifar um:
é
Demant Austurlanda
CALCUTTA er stærsta borg Asíu.
Sumir kalla hana demant Austur-
landa, aðrir ÍDrottningu Austur-
landa. En hvað sem gliti og reisn
borgarinnar líður, er að minnsta
kosti óhætt að fullyrða að þar sé
að finna dýpri andstæður og meiri
litauðgi en annars staðar á þessari
jörð.
Austurstræti, Vesterbrogade,
Trafalgar Square, Pigalle eða Via
Nationale eru næsta fáskrúðlegar
yfirlitum samanborið við Chowr-
inghee, Howrah eða Hoogli brú.
Calcutta, demant austursins,
brýtur mannlífið í þúsund flötum
sínum og hver flötur sýnir nýja
tegund af Homo sapiens og nýja
hlið á mannlegri tilveru og mann-
legum örlögum.
Mesti auður veraldarinnar og
heimsins sárasta örbirgð dafna hér
hlið við hlið. Hin glórulausasta fá-
fræði í nábýli við hina æðstu vizku.
Hógværð, mildi og mannkærleikur
í greip auðhyggju og spillingar.
★
Ef við tökum okkur morgun-
göngu yfir Maidan og niður að
Hoogli fljóti, sem skiptir borginni
í austur- og vesturhluta, getum við
séð nokkrar svipmyndir úr lífi
hennar.
Að þekkja og skilja indverska
borg er önnur saga. Maidan eru
víðáttumiklir grasvellir í miðju
borgarinnar. Þar er aðeins að sjá
Viktoríuhöllina, mesta mannvirki
Breta á Indlandi, og skeiðvöll borg-
arinnar, þar sem milljónir rúpía
skipta um eigendur á hverjum
laugardegi.
Við förum fram hjá smáhópum
af nautgripum, geitum og íþrótta-.
mönnum. Þeir síðastnefndu mættir
til Hockykeppni, sem ljúka verður
áður en skrifstofutími hefst. Á
Indlandi rísa menn snemma úr
rekkju.
Niður við fljótsbakkann situr