Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1953, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1953, Síða 1
6. tbl XXVTIT. árg. # Sunnudagur 15. febrúar 1953 Rrynjólíur !tf: Fjárflutningarnir miklu *»' KINN af merkilegustu atburðum í sögu hins íslenzka landbúnaðar má eflaust telja fjárflutningana miklu frá Norðurlandi til Suðurlands á s.l. hausti. Ef slíkir fjárflutningar hefði átt að fara fram fyrir svo sem 30—40 árum, hefði ekki verið um annað að gera en reka féð þessa löngu leið og er hætt við að það hefði þá týnt tölunni, en hrakið, úrvinda og uppgefið það, sem komst alla ieið. En nú var féð allt flutt á bílum og lét lítt á sjá. Bílarnir, sem voru í þessum ferðum voru um 120 alls og fóru flestir þrjár ferðir. Alls voru fluttár'. 16,500 kindur óg stóðu flutningarnir í 10 daga. — Eftirfarandi frásögn um þessa fjárflutninga hefur Lesbók fengið hjá Brynjólfi vegaverkstjóra Melsteð á Hofi í Gnúpverjahreppi, en hann fór þrjár ferðir norður eins og hér segir. — ÞAÐ VARÐ að ráði að ég tæki þátt í hinum miklu fjárflutning- um írá Norðurlandi í haust sem leið. Ég á gamlan vörubíl, Bed- ford, smíðaár 1940, og treysti hon- um, þótt gamall væri. Sumir spáðu illa fyrir mér, en þetta var þó ekki elzti bíllinn í fjárflutningunum, sumir voru miklu eldri. Ég lagði á stað að heiman kl. 7 að morgni hins 16. september. Var þá blíðskapar veður eins og verið hafði það sem af var þess- um mánuði. Með mér var annar maður og ætluðum við að skiftast á um akstur og gæzlu fjárins að norðan. Var nú haldið rakleitt að Selfossi. Þar vildi ég láta athuga bílinn til vonar og vara, enda þótt hann væri nýkominn úr hreinsun og viðgerð hjá „Dvergi“. Allar bílasmiðjur á Suðurlandi fengu mjög aukna atvinnu vegna fjár- flutninganna, og það var mikið að gera hjá bílasmiðjunni á Selfossi, svo að við vorum ekki ferðbúnir fyrr en um nón. Var þá veður breytt, kominn hörkustormur af norðvestri. Var þó enn sólskin um Suðurland, en þoka og skýafar á næstu fjöllum og hríðarbylur á há- lendinu og um Norðurland, svo að útlitið hafði nú versnað mjög á stuttri stund. Undir Ingólfsfjalli fengum við miklar stormhrynur og helzt svo Brvnjólfur Melsted. upp með Sogi og inn fyrir Mið- fell. Á Þingvöllum mátti heita logu milli gjánna. Inni hjá Ármanns- felli hafði snjóað, en tekið að mestu upp aftur. Versta sandbvl fengum við hjá Sandkluftavatni og síðan hvassviðri á móti alla leið niður í Lundarreykjadal. Þar hitt- um við Ara, hinn margfróða vega-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.