Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1953, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 22.03.1953, Qupperneq 1
11. tbl. XXVIII. árg. |H.0TðiTOÍ»Iaí»2í m$ Sunnudagur 22. marz 1953 JÖRGEN BUKDAHL: NORÐLRLAIMDARÁÐIÐ OG ÍSLEIMZKLI HAIMDRITIIM J()RGEN BUKDAIfL er einhver snjallasti rithöfundur Dana og mikill mælskumaður. Af helztu ritum hans má nefna: „Hovedströmninger i skandinavisk Litteratur 1890—1925“, „Mellemkrigsbogene", „Danmark og Norge undir Krig og Besættelse“ og „Norden og vi“. Ilann hefur gert sér Ijósa grein fyrir menningarsögu Norðurlanda frá upphafi til vorra daga, eins og grein þessi ber ljóst vitni. — Er íslendingum því ómetanlegur styrkur að því að hafa eignazt slíkan. málsvara í Dan- mörku, þar sem um menningararf vorn er að ræða. NORÐURLANDARÁÐIÐ er sezt á rökstóla í Kaupmannahöfn. Það var Hedtoft sem dró tjaldið frá hinni miklu sýningu með áferðar- fallegri ræðu, þar sem hann dró fram sögulega þýðingu norrænnar samvinnu, er hann taldi að ekki hefði verið nægur gaumur gefinn. „Vér stæðum ekki hér í dag, ef það væri ekki vegna aðgerða for- feðra vorra fyrir hundrað árum“. Og svo minntist hann á fund stúd- enta og borgara í ráðhúsinu 1845. Hann minntist einnig á vankant- ana á þeirri hreyfingu, að hún var ekki alþýðleg, afstöðuna til dönsku landamæradeilunnar og hve lítt hefði verið skeytt um þjóðarein- kenni. Og hann sagði að það væri lýðskólunum að þakka að norræna hugmyndin væri enn lifandi. Það var svo sem ekki mikið út á ræðu þessa að setja, annað en það, að mælskan skyggði alveg á þann reginmismun, sem er á draumórum gamla „skandinavism- ans“ og þeirri raunsæi, sem hlýtur að vera grundvöllur norrænnar samvinnu nú, því að hún blessast því aðeins, að menn núi hinar rómantísk-norrænu gullstírur úr augunum og losi sig alveg við hin- ar gömlu grillur, sem fremur öllu standa nú norrænni samvinnu fyrir þrifum; þær setja á hana lyriskan loftkastalasvip, eru eins og þýður sumarblær, sem breytist í haglel þegar hann rekst á kletta raun- veruleikans. s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Jörgen Bukdahl Hinn gamli „skandinavismi“ var mergfúinn Fyrst og fremst var nú „skand- inavisminn“ þröng yfirstéttahreyf- ing. Hann var borinn fram af stúdentum og borgurum og hann var pólitískur, því að af Dana hálfu átti hann að vera einn liðurinn í landamæraþrætu þeirra við Þjóð- verja. Þeir töluðu um suðurtak- mörk Norðurlanda, og þeir töluðu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.