Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.1953, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.04.1953, Page 1
150 ár siðan GUFUSKIP KOM TIL SÖGLIMIMAR ROBERT FULTON hefur venju- lega verið nefndur „faðir gufuskip- anna“, enda þótt ýmsir aðrir eigi þátt í þeirri uppgötvan. En Fulton varð fyrstur allra manna til þess að smíða gufuskip, sem hægt var að hafa í förum. Það skeði í Ame- ríku árið 1807. En fjórum árum áður hafði hann sýnt annað gufu- skip í Evrópu. Þá skildu menn alls ekki hvað um var að vera og Fulton fekk ekki þá viðurkenningu fyrir uppgötvan sína, sem hann hefði átt skilið. Heimurinn var þá, eins og oft fyr og síðar, önnum kafinn við stríð og styrjaldir og gaf sér ekki tíma til að hugsa um frið- samlegar endurbætur á samgöng- um. Menn skildu heldur ekki þá, hverja þýðingu það hafði, að lítill bátur gat siglt gegn straumi með aðstoð hreyfivélar. Menn litu á hann eins og hvern annan kynja- grip, er ekki gæti haft neina hag- nýta þýðingu. Og það hefði þótt meiri fábjáninn, sem þá hefði hald- ið því fram, að hér væri keppi- nautur, sem mundi ganga með sig- ur af hólmi í samkeppni við stóru „Savannah" á leið yfir Atiantshaf 1819 seglskipin, sem þá brunuðu hnar- reist yfir heimshöfin. Blöðin geta um gufuskipin Einstaka manni fannst það þó ekki alveg ómerkilegur atburður, að hægt væri að knýa skip með vélum. í blaði nokkru, sem gefið var út í Gautaborg fyrir 150 árum, birtist þessi frétt, send frá París 16. júní: „Blanchard heldur því fram, að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.