Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1953, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 03.05.1953, Side 14
268 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS mönnum og starfsliði Fjárhagsráðs, þar sem verkefni þess yi'ði þá ekki annað en leyfisveitingar fyrir % innflutnings- ins. Ég áætla, að með breytingu þess- ari, sem ég tel alveg sjálfsagða, megi spara um 600 þús. kr. á ári. Það er óverjandi að halda uppi stórri stofn- un að nauðsynjalausu, þótt rikissjóður greiði ekki kostnaðinn heldur neytend- urnir í landinu. — Að því ber að keppa, að allur innflutningur verði gefinn frjáls sem allra fyrst — og Fjárhagsráð hætti störfum jafnframt — o — ÚTLAN BANKANNA Nokkrar deilur hafa sprottið upp um útlán bankanna og hafa samvinnumenn sérstaklega haldið því fram, að sam- vinnuverzlunin fái ekki eðlilegan skerf af því fé sem lánað er til verzlunar. Halda þeir því fram ennfremur, að Sjálfstæðisflokkurinn ráði yfir bönk- unum (Landsbankanum og Útvegs- bankanum) og noti aðstöðu sína til þess að draga taum sinna manna á kostnað samvinnumanna og kaupfélag- anna. Slíkar fullyrðingar eru svo fá- vislegar, að þær eru ekki svaraverðar, enda hefir ekki verið reynt að rök- styðja þær á nokkurn hátt. Sjálfstæð- isflokkurinn hefir aldrei haft afskipti af útlánum bankanna. Sjálfstæðismenn eru að vísu í bankaráðum þessara banka, eins og þar eru menn frá öðr- um flokkum. Bankaráðin hafa yfirleitt engin afskipti af þvi hvaða mönnum er lánað. I bankastjórn Landsbankans hefir verið í 'mörg ár aðeins einn Sjálf- stæðismaður, en nú eru þeir tveir. í bankastjórn Útvegsbankans er ekki talið að Sjálfstæðismaður hafi verið á annan áratug þar til nú fyrir nokkrum mánuðum. Sjálfstæðisflokkurinn hefir því hvorki haft aðstöðu né nokkra hvöt til að hafa áhrif á lánveitingar bank- anna. SKIPTINGIN MILLI ATVINNUVEGA En af því að þessi deila hefir risið þykir mér rétt að birta yfirlit um hvernig útlán bankanna skiptast á að- alatvinnuvegina. Miðast skýrslan við útlán Landsbankans og Útvegsbankans 28/2 1953, en Búnaðarbankans 30/9 1952. Heildarútlan þessara banka eru 1530 rrnllj. kr.: útlAn bankanna IMillj. kr. % Sjávarútvegur (síldar- verksm. meðtaldar).. 674 42.7 Landbúnaður 149 9.4 Verzlun 238 15.1 Iðnaður 115 7.3 Ríki og sveitarfélög .. 198 12.5 Byggingar 55 3.5 Allt annað 151 9.5 1,580 100.0 Þetta hlutfall í útlánum til atvinnu- veganna hefir myndazt af langri reynslu á þörfum þeirra og aðstöðu í sambandi við þróun atvinnulífsins í landinu. Um það má lengi deila hvort einn atvinnuvegur fái of mikinn skerf af lánsfénu í hlutfalli við anním. En hitt hygg ég að mundi fárra meðfæri að ákveða hvernig hutfallið ætti að vera svo á engan sé hallað. í árslok 1951 voru sjóðir kaupfélag- anna ásamt innstæðum í innlánsdeild- um og innstæðum viðskiptamanna, samtals 150 millj. kr. Verður það ásamt lánsfé til samvinnuverzlunar, álitlegt rekstrarfé fyrir starfsemi kaupfélag- anna. Af útlánum til verzlunar fær sam- vinnuverzl. nú um 36% en einkaverzl- unin 64%. Samkvæmt hlutdeild hvors aðila í ínnflutningnum, er í lánsveit- ingunum betur búið að samvinnuverzl- uninni, þar sem telja má að hún hafi ekki meira en fjórða hluta af öllum innflutningnum. — o — STEFNT AÐ BÆTTUM LÍFSKJÖRUM Ég hefi nú leitazt við að gefa stutt yfirlit um þróun viðskrptamálanna síðastliðin þrjú ár, í sambandi við þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið af opinberri hálfu til þess að koma verzl- uninni úr þvi ófremdarástandi sem langvarandi höft höfðu íært hana í. Hin opinberu afskipti hafa fyrst og fremst stefnt að því, að koma verzlun- inni I þann farveg, sem mest gæti stuðlað að bættum lífskjörum almenn- ings í landinu, um leið og þeir, sem að verzluninni starfa njóti fulJkomins jafnréttis og að með sanngirni og skiln- ingi sé fjallað um mál þejrra. Ráðstafanir í verzltmarmaluuum undanfarin þrjú ár, hafa jafnan verið gerðar með þetta megin-sjónarmið fyrir augum. VERKEFNI Á NÆSTA KJÖRTÍMABILI Ég álít að það eigi að vera eitt af höfuðverkefnum Sjálfstæðisflokksins á næsta kjörtimabili, AÐ halda fast við það verzlunarfrelsi, sem náðst hefur og fylgja því fast eftir, að það sé aukið þar til öll verzlunin er orðin frjáls. /VÐ verðlag verði frjálst á öllum vör- um jafnóðum og vöruframboðið er nægilegt af hverri vöru og frjáls sam- keppni er ráðandi í sölunni, AÐ stuðla að því að raunhæfar ráðstafanir verði gerðar til myndunar hæfilega mikils gjaldeyrissjóðs vegna utanrikisviðskipt anna. Og síðast en ekki sízt, AÐ flokk- urinn vaki yfir því og beiti til þess öllum áhrifum sinum ef með þarf, að efnahagskerfi landsins sé haldið í heil- brigðu jafnvægi, því án þess getur frjáls og hagstæð verzlun ekki þrifizt. Iðnaðurinn Ég kem þá að öðrum þætti máls míns, iðnaðinum. Þegar núverandi ríkisstjórn skipti með sér verkum, féllu iðnaðarmálin í hlut atvinnumálaráðherra. En í októ- bermánuði 1951, eða fyrir rúmu hálfu öðni ári, varð það að samkomulagi milli okkar, að ég tæki við iðnaðar- málunum gegn því að hann tæki í stað- inn mál úr mínu ráðuneyti. Um það leyti sem þessi skipti fóru fram, var allt fremur friðsamlegt í iðnaðarmál- unum og gerði ég mér litla grein fyrir þá, að mikill áróður og ýmsir pólitískir erfiðleikar ætti eftir að spretta upp í kringum þessi mál. VAXANDI SAMKEPPNI ERLENDRA VARA Eftir að frílistarnir höfðu veríð gefn- ir út, fór að bera á nokkrum óróa í iðnaðinum vegna vaxandi samkeppni ýmsra erlendra iðnaðarvara, sem nú var írjálst að flytja inn. Ýmsar iðn- greinar þurftu af þessum sökum að draga saman reksturinn og nm stund bar á nokkru atvrrmuleysi í iðnaðm- m Þetta astand vax svo óspart notaO

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.