Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.1953, Blaðsíða 4
442
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Kúptar bronznælur, sem verið hafa alg-engar á víkingaöld og finnast oft tvær saman. — Þessar nælur eru mismunandi
gamlar og er yngri gerðin (til hægri) íburðarmeiri og með mörgum typpum til skrauts.
sagt verið kvenskraut, en karl-
menn hafa stundum borið þau líka,
og þá sennilega sem verndargripi,
(sbr. Heiðarvígasaga cap. 19).
Sérstaka athygli — og jafnvel
bros — vekur lítið „Þórslíkneski“
úr kopar, sem situr á stól og held-
ur báðum höpdum um hið síða,
fléttaða skegg sitt, og — ekki síður
— annar verndargripur, sem lík-
lega hefur verið borinn í festi eða
b'andi um hálsinn, er það svonefnd-
ur „Þórshamar“, lítill silfurkross,
dálítið skreyttur og með gapanda
galtarhöfuð á neðri enda (eða enda
skaftsins, ef litið er á það sem
hamar). Er ekki vafi á, að þar
gætir áhrifa jafnt frá kristni sem
heiðni.
Þá er í þessum skápum margt
frá búnaði hesta, eins og járnmél
af ýmsum stærðum og gerðum,
skraut af aktygjum, reiðbjöllur,
ennislauf og beizlisádrættir úr kop-
ar, allt meira og minna skreytt,
ístöð úr bronzi með ágröfnu
skrauti, en furðulega lítil, að
manni finnst, gæti það bent til
þess, að fornmenn hafi verið fót-
smáir, eins og meðalkaflar sverð-
anna virðast sýna, að þeir hafi ver-
ið fremur handsmáir.
í skápunum við vegginn að vest-
anverðu er líka hægt að sjá ýmsa
góða gripi. Þar er t. d. Úlfljóts-
vatns-fundurinn með gripum
„vopngöfgra Grímsnesinga", (sjá
„Gengið á reka“, bls. 25—44), eink-
um er sverðið frá Úlfljótsvatni sér-
lega merkilegur gripur, og spjótið
mikla raunar engu síður, er það
eitt hinna lengstu spjóta, sem fund-
izt hafa frá víkingaöld. Örvarnar,
sem þarna fundust, eru einnig at-
hyglisverðar, benda þær til þess,
að þar hafi bogaskytta verið graf-
in, en örvar eru annars afar fátíðar
í gröfum hér á landi.
í sama skáp eru og vopn Bárðar
Hallasonar, sverð og spjót, (sjá
„Gengið á reka“, bls. 54—62 og sbr.
ts
Til vinstri: Smáralaufsnælur, algengt kvenskraut p víkingaöld.
Til hægri: Steinasörvi gert úr rafperlum og marglitum gler-
perlum.
<* ■- '2 v .O
' • £ e rr*x -