Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1953, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1953, Page 1
Þrír brautryðjendur Páll Briem Stefán Stefánsson Sigurður Sigurðsson Þeir hrundu vorum hag á leið með heillar aldar taki. RÆKTUNARFÉLAG Norðuriands minntist 50 ára afmælis síns, á Akureyri 20. júní 1953. Við það tækifæri voru blómsveigar lagðir að minnismerkjum þeirra Stefáns Stefánssonar við Menntaskólann og Páls Briem og Sigurðar Sigurðssonar í Gróðrarstöðinni. Þar minntist formaður félagsins Steindór Steindórsson, þessara þriggja brautryðjenda félagsins með eftirfarandi ræðu. VÉR höfum komið saman hér í dag til þess að heiðra minningu þriggja ágætismanna, sem fyrir hálfri öld tóku höndum saman um stofnun Ræktunarfélags Norðurlands. — Manna, sem unnu ómetanlegt brautryðjendastarf til heilla og hagsbóta íslenzkum landbúnaði og íslenzkri menningu. Örlögum manna og hæfileikum er misskipt. Sumir eru gæddir þeirri náðargáfu, að hvar sem þeir fara, og hvar sem þeir leggja hör.d að verki grær eitthvað eftir þá. Umhverfis þá er síffellt meiri birta og gróandi en aðra menn, og þeim er líkt og gefið það innsæi að finna hverju sinni, hvar þörfin er mest á starfskröftum þeirra, og þeim gefast tækifærin til að beita þeim þar. Því miður eru slíkir menn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.