Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1953, Qupperneq 4
506
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Þetta gerðist í ágúst
A L I- T cr enn í óvissu um skipun
ríkisstjórnarinnar. Framsóknar-
flokkurinn viidi fyrst að leitað vrði
til Alþýðuflokksins um samstarf o?
síðan mynduð þriggja flokka stjórn.
A því urðu þó meinbugir og um
miðjan mánuðinn felst Framsókn-
arflokkurinn á að taka upp viðræð-
ur um stjórnarsamstarf við Sjálf-
stæðisflokkinn. Voru þingmenn
flokkanna boðaðir til Reykjavíkur
og síðan stóðu samningaumleitanir
yfir fram til mánaðamóta.
VEÐRÁTTA OG LANDBÚNAÐUR
Allan þennan mánuð mátti heita
eymunatíð um land allt, nema hvað
óþurkar gengu seinni hluta mánaðar-
ins á Austfjörðum. Heyskapur gekk
víðast vel með afbrigðum, varð töðu-
fall langt yfir meðallag og nýting góð.
Um miðjan mánuð voru tún víða al-
hirt. Uppgripaheyskapur varð á útengi
því að spretta var þar með langbezta
móti. Er mælt að aldrei síðan iand
byggðist haft jafnmikill heyfengur ver-
ið kominn í garð í lok ágústmánaðar
eins og nú. Vel leit út með uppskeru
af byggi og höfrum þar sem það er
ræktað og búizt við að kartöfluupp-
skera muni verða með mesta móti.
Voru margir farnir að taka upp kar-
töflur um miðjan mánuðinn og var
spretta með langbezta móti á þeim
tíma. Aðrir garðávextir hafa einnig
þroskast vel og trjágróðri farið vel
fram á þessu sumri.
SÍLDVEIÐIN
Oll herpinótaskip voru hætt veiðum
norðan lands og austan í lok mánað-
arins. Alls höfðu 163 skip verið á
síldveiðum í sumar og varð afli þeirra
samtals um 270 þús. mál. Saltað hafði
verið í 154 þús. tunnur og er útflutn-
ingsverðmæti þeirrar síldar talið rúm-
ar 60 millj. króna. Afli skipanna varð
mjög misjafn. Síldin helt sig alltaf á
djúpmiðum, en kom aldrei inn í firði
né flóa. Var það merkilegt að nú
veiddist jvarla annað en 15 ára göm-
ul síld og var síldarmagnið í sjónum
því að vonum ekki mikið, því að mik-
il vanhöld hljóta að vera orðin á svo
gömlum stofni. Ef veður hefði ekki
verið mjög gott framan af mánuðinum,
er hætt við að lítið hefði veiðst, því
að síldin hætti að vaða. þegar brá til
óþurka. Talið er að útgerðarmenn hafi
ekki orðið fyrir miklu tjóni af út-
haldinu í sumar, og sama er að segja
um sildarsaltendur. En síldarverk-
smiðjurnar hafa orðið fyrir stórtjóni,
því að þeim barst eigi meiri síld en
hægt hefði verið að bræða á hálfum
sólarhring. — — Fyrir mánaðamótin
voru nokkrir stórir bátar komnir á
reknetjaveiðar langt austur í haf og
öfluðu sæmilega. — Faxaflóasíldin
kom seinna en vant er, fór ekki að
veiðast fyr en um miðjan mánuð. Sein-
ustu vikuna var þó yfirleitt góður afli
í öllum verstöðvum hér, en síldin var
svo smá, að lítið af henni var sölt-
unarhæft.
ÖNNUR AFLABRÖGÐ
Afli togara hér við land var dræm-
ur. Nokkrir togarar voru á veiðum við
Grænland og öfluðu sæmilega. Undir
mánaðamótin fóru svo nokkrir togarar
a ísfiskveiðar fyrir Þyzkalandsmarkað.
— Rækjuafli var geisimikill á Vest-
fjörðum. í Faxaflóa var lítið um fisk
nema smálúðu. — Laxveiðin brást svo
að segja algjörlega í mörgum ám og
var því kennt um hve lítið vatn væri
í þeim. Og yfirleitt var .laxveiðin tal-
ih rýr.
Páll A. Pálsson, formaður á hrefnu-
veiðabátnum Björgvin, sem er aðeins
13 smál., skaut beinhákarl á Lundey-
arsundi hjá Tjörnesi. Hákarlinn dró
bátinn lengi með miklum hraða, en
loks tókst Páli að vinna á honum með
kúluskotum. Hákarlinn var 8 metrar
á lengd og vóg fjórar smálestir, en
úr lifrinni fengust um 7 tunnur lýs-
is (1.)
SLYSFARIR OG ÓHÖPP
Þorgeir Ágústsson, starfsmaður hjá
vélaverksmiðjunni Odda á Akureyri,
renndi á hjóli fram af Torfunesbryggj-
unni og druknaði (1.)
Lítil telpa varð fyrir bíl í Reykja-
vík og fótbrotnaði. (1.)
Fimmtán ára piltur fell af hússvöl-
um í Reykjavík og kom niður á stein-
rið og meiddist talsvert (6.)
Stúlka, sem var á skemmtiferð inni
í Landmannalaugum, slasaðist þar svo,
að ekki þótti fært að flytja haná það-
an á bíl. Sjúkraflugvélin var þá feng-
in til þess að reyna að sækja hana og
tókst flugmanninum að lenda skammt
frá tjöldum ferðafólksins (5.)
Sprenging varð í smiðju Kaupfélags
Árnesinga á Selfossi. Sprakk þar
karbid-tæki, sem notað var við log-
suðu. Allar rúður í húsinu brotnuðu
við sprenginguna, en menn sakaði
ekki (8.)
Jón Þorsteinsson, verkamaður á
Keflavíkurflugvelli, var að bera fötu
fulla af sjóðandi koltjörnu, skrikaði
fótur og fell, en tjaran siettist yfir
Beinhá-
karlinn.
sem skot-
inn var hjá
Tjörnesi