Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1953, Síða 5
„ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
651
ií‘>!H li'l
•iuU
.r/ft'ic ö (' t. .
nn um veðrabreytingar
í LESBÓK 25. okt. var sagt nokkuð frá þeim rannsóknum, sem
farið hafa fram á því, hver áhrif veðrabreytingar hafa á menn,
og var þar stuðst við grein eftir þýzkan lækni. Hér kemur önnur
grein um sama efni, en hún er eftir amerískan lækni, dr. W.
Schweisheimer. Greininni fylgja þessi inngangsorð: „Ef þú ert
eitthvað miður þín, þá getur það verið veðrinu að kenna“.
Þ A Ð er staðreynd, sem allir
þekkja, að sumir dagar ársins geta
vel nefnzt „dismaladagar“. Á þess-
um dögum er þér allt til miska.
Skóreimin þín slitnar, þegar þú ert
að flýta þér á fætur, þú skerð þig
með rakvélinni, þegar þú ert að
raka þig, morgunkaffið er ódrekk-
andi og konan heimtar af þér pen-
inga. Og svo þegar þú ert kominn
til vinnu, þá er eins og allt gangi
öndvert, og þú ert argur, uppstökk-
ur og leiður á lífinu. En þegar svo
er, þá er réttast fyrir þig að líta
á loftvogina (helzt veðurkort). Þar
geturðu fengið að sjá orsökina til
alls þessa.
Vinur minn, velmetinn banka-
stjóri, lenti einu sinni í hörkurifr-
ildi út af smámunum og það gekk
svo nærri honum að hann fekk
taugaáfall. Þetta er annars mesti
geðprýðismaður og kurteis í allri
framgöngu. Hvernig stóð þá á því
að hann rauk svona upp? Það var
blátt áfram vegna þess, að þrumu-
veður var í aðsigi, og veðrabrigðin
höfðu þessi áhrif á skapsmuni
hans.
Allir verðum vér að meira eða
minna leyti fyrir áhrifum af veðra-
breytingum. En það er einkenni-
legt að áhrifin eru mismunandi. í
suma kemur „hundakæti“, aðrir
verða sorgmæddir eða uppstökkir.
Það er áreiðanlegt að samkomu-
lag manna mundi batna stórum, ef
þeir gerðu sér grein fyrir þessu.
Þegar þeir vita, að það eru veðra-
breytingar, sem hafa þessi áhrif á
þá, ætti þeir að geta stillt sig og
haft hemil á skapsmunum sínum.
Annars eru margvíslegar orsakir
til þess að veðrabreytingar hafa
áhrif á einstaka menn og fjöldann.
Það er nú fyrst veðrabrigði, lægð-
ir, hitastigið, rafhleðsla í loftinu,
útbláir geislar og sólblettir. Þetta
veldur því að menn eru í góðu eða
vpndu skapi, hvort þeim eykst
dugnaður eða leti, hvort heilsa
þeirra batnar eða versnar.
Franskur vísindamaður segist
hafa komizt að raun um, að of-
hleðsla af radíum í andrúmsloftinu
valdi hinu svokallaða „vorkvefi“.
Hann heldur því fram, að meðan
snjór liggur á jörð á veturnar, sé
lítið útstreymi radíums frá jörð-
inni, en undir eins og snjóinn leys-
ir og klaki fer úr jörð, magnist
þetta útstreymi og valdi veikind-
um.
Læknarnir dr. W. F. Petersen við
háskólann í Illinois og dr. H. H.
Reese við háskólann í Wisconsin,
hafa sýnt fram á að skapferli
manna fer eftir ásigkomulagi blóðs
ins. Þeir segja að veðrabreytingar
hafi áhrif á blóðið og þess vegna
verði menn uppstökkir, niður-
beygðir eða önugir.
Alkunna er, að menn gleyma
helzt að taka með sér regnhlíf þeg-
ar þeir þyrfti helzt á henni að
halda. Það er vegna þess, að menn
■ j.
eru gleymnari en ella þegar loft-
lægðir eru. Þegar loftvog er fall-
andi, er það visst mark að menn
gleyma fleiri hlutum en ella í
strætisvögnum og anngr^ staðar,
og óskilamunum fjölgar mjög hjá
lögreglunni. Veðráttan hefur einn-
ig áhrif á aðra hæfileika manna.
Þegar athugun var gerð á því hve-
nær bankamönnum skjöpíaðist
helzt í starfi sínu, kom í ljós, að
þeir gerðu flestar villur sumar og
vetur, en fæstar á vorin og haustin.
Umferðarslysum og slysum í
verksmiðjum fjölgar líka þegar
lægðir fara yfir, menn eru þá mið-
ur sín og oft með höfuðverk. Þetta
hefur einnig áhrif á afköst manna.
Skýrslur eru til um það, að afköst
hafa minnkað um 10 af hundraði
þegar veðrabrigði eru í nánd. Og
menn leysa einnig verk sín ver af
hendi, eða koma alls ekki til vinnu
sinnar vegna þess að þeim finnst
vera eitthvað slen í sér.
Kaupmenn ætti að gefa nánar
gætur að veðurfarinu, því að það
getur orðið þeim bæði til gagns og
ógagns, eftir því hvernig á ér hald-
ið. Sérstaklega ætti afgreiðslufólk
að sýna varkárni þegar lægðir
ganga yfir, því að þá eru kaupehd-
ur bæði vanstilltari og útásetninga-
samari en ella. Sumir kaupmenn
mundu hreint ekki tapa á því að
hafa búðir sínar lokaðar á sKkum
dögum, því að þá er hætt við að
ekki sé hægt að selja mikið.
Veðrabreytingar hafa og undar-
leg áhrif á smekk manna. — Þá
reynslu hafa bakarar. Þegar kalt
er kaupa menn aðallega smákökur
og bollur, en þegar’ milt og gótt
veður er, þá kaUpa þeir meira af
tertum. Þess vegna eru nú sum