Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.1953, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.1953, Síða 1
JfltnrjESimMsftg ms Sunnudagur 22. nóvember 1953 46. tbl. ÁRNI ÓLA: Undrin í Trékyllisvík Kort af Trókyllisvík TRÉKYLLISVÍK er á milli Reykj- áVfjarðar og Ingólfsfjarðar á Ströndum. Nafn sitt hlaut hún fyr- ir 1000 árum. Mun það hafa verið árið 949 að norskt kaupfar brotn- aði þar í víkinni, en um veturinn smíðuðu skipverjar annað skip úr brotunum,“ og og varð þeim það ó- hægt. Skipið varð lítið til skut- anna, en breitt um miðbyrðið“. Þess vegna kölluðu þeir það Tré- kylli, og af því dró víkin síðan nafn. Umhverfis víkina er meira gróðurlendi en víðast hvar á Ströndum. Eru þar grænir dalir og gróðursælar hlíðar. Norður úr vík- inni gengur Norðurfjörður. Stóð þar áður lítið kot samnefnt, en nú er þar verslunarstaður, símstöð og póstafgreiðsla. Fögur fjöll umlykja víkiha, en af þeim ber þó Reykjar- neshyrna, yzt með víkinni að sunn- an. Talið er að Trékyllisvík sé með sumarfegurstu byggðarlögum sýsl- unnar. Hér skal ekki lýst Trékyllisvik eins og hún er nú, en vér skulum skreppa 300 ár aftur í tímann og virða fyrir oss hina furðulegu at- burði, sem þá gerðust þar. Þá voru sýslumenn tveir í Strandasýslu, Jón Magnússon Ara- sonar á Reykhólum, sem fengið hafði þar sýslu 1639, og Þorleifur Kortsson síðar lögmaður (1662), nýlega kominn þangað. Var annar gamall og sinnisveikur en hinn ungur og metnaðargjarn og misk- unnarlaus. Prestur í Árnesi var Þorvarður Magnússon „hinn mesti hraust- leikamaður og fyrirhafnarmaður bæði í byggingum og stórum hell- um til stétta", sem hann dró þar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.