Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1955, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 30.01.1955, Side 1
Þjóðskáldið hyllt Davíð Stefánsson sextugur FÖSTUDAGINN 21. þ. mán. átti þjóð- skáldið Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi sextugsafmæli. Yar hann boðinn til höfuðborgarinnar, að halda afmæl- ið þar, og þar var honum margs konar sómi sýndur. Á afmælisdaginn hafði Þjóðleikhúsið sýningu á „Gullna hlið- inu“ og þar var skáldið óspart hyllt af leikhúsgestum, en þeir Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri og Vil- hjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri héldu ræður. Daginn eftir var skáldinu svo haldin fjölmenn veizla í Sjálfstæðishúsinu. Þar tilkynnti Þorsteinn M. Jónsson for- seti bæarstjórnar á Akureyri, að Akur- eyrarbær hefði kosið skáldið heiðurs- borgara sinn, en Þóroddur Guðmunds- son frá Sandi, formaður Félags ís- lenzkra rithöfunda, tilkynnti að skáld- ið hefði verið kosið heiðursfélagi þess félags. í hófinu voru haldnar þrjár ræður fyrir minni heiðursgestsins og voru ræðumenn þeir Bjarni Bene- diktsson menntamálaráðherra, Þórar- inn Björnsson skólameistari á Akur- eyri og Steingrímur J. Þorsteinsson háskólaprófessor. Fara ræður þeirra hér á eftir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.