Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1955, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1955, Page 14
r 658^ LESB'ÓK MORGUNBLAÐSINS En eitt er nokknrn veginn víst, að vér munum aldrei stíga fótum á Júpíter. Þar er oss eigi vært. Fyrst og fremst er nú inn mikli kuldi, svo er aðdráttaraflið svo mikið, að 200 punda maður mundi vega þar 514 pund, og í þriðja lagi eru inar banvænu lofttegundir, sem áður er sagt frá. Það væri meira vit í því að reyna að lenda á einhverjum af fylgihnöttum hans og athuga hann þar. r Fylgihnetíir Þegar Galileo beindi fyrstu sjón- pipu sinni til himins árið 1609 sá hann fjóra hnetti. er virtust vera í fylgd með Júpíter, og reyndust vera tungl. Simon Maríus sá þessa fylgihnetti um líkt leyti og nefndi þá Io, Evi'opa, Ganymede og Call- isto. Alla þessa hnetti má sjá í góð- um sjónauka, og sumir þykjast hafa séð þá með berum augum. Af því má álykta að þeir sé nokkuð stórir. Nýustu mælingar sýna að þvermál Evi'ópa er 1950 enskar mílur, Io 2310 mílur, Ganimede 3200 mílur og Callisto 3220 mílur. Evropa er því minni en tungl jarð- ar, en bæði Ganymede og Callisto eru stærri heldur en jarðstjarnan Merkúr, enda þótt þéttleikinn sé ekki jafn mikill. Io er næst Júpiter og eru þó 262.000 enskar mílur á milli. Þessi fylgihnöttur þeytist umhverfis Júpiter á einum sólarhring og 1814 klukkustund. Evropa er næst, og enda þótt hún sé minni, virðist hún jafn björt og Io, svo af því má ráða að þar endurkastist sólargeisl- arnir betur og þess vegna ætti yfir- borðið þar að vera gljáandi með nokkru móti. Ganimede er björtust og ekki ósvipuð Marz. Nokkrir dökkir blettir eru á henni, en eng- um mun þó koma til hugar að þar sé nokkur gróður, því að bæði er þar naprasti kuldi og svo er þar ^ Iikiega ekkert loít. Callisto er á margan hátt merkust af þessum fylgistjörnum, því að bæði er hún stærst en þó léttust. Sumir stjörnu- fræðingar hafa því hallazt að því að þetta -sé nokkurs konar „him- neskur snjóbolti“. samsettur af sundurlausum ískrystöllum. Lík- legra er þó, að hnötturinn sé úr einhverju léttu efni — máske vikri — en þakinn utan með klaka. Ekki þykir líklegt að þar sé neitt and- rúmsloft. Smáhnettir En svo hefur Júpiter 8 aðra íylgi- hnetti, og eru þeir svo litlir, að ekki er unnt að sjá þá nema í beztu stjörnusjám. Þeir eru allir nafnlausir, nema hvað sumir hafa nefnt einn þeirra Amalthea, en það nafn er ekki viðurkennt. Þetta er þó merkilegur hnöttur. Próf. Barnard uppgötvaði hann 1892. Þessi hnöttur er ótrúlega nærri Júpíter — þar eru ekki nema 70.000 mílur á milli. Hann er svo lítill, að hann er ekki nema 150 enskar mílur í þvermál (240 km.), en hann fer hringinn i kring um risann á einum sólarhring. Ef einhver mað- Maður var að búa sig út á ljónaveiðar í Afríku. Konan vildi endilega fara með honum, og svo var ekki við annað kom- andi en tengdamamma færi líka. Segir svo ekki af þeim fyr en einn morgun snemma inni í frumskógum Afriku. Hjónin vöknuðu í tjaldi sínu og upp- götvuðu að tengdamamma var horfin. Þau fóru að leita hennar og rnn síðir fimdu þau hana í rjóðri nokkru. Þar stóð hún frammi fyrir Ijóni, sem var búið til stökks. ---Hvað eigum við að gera? hrópaði konan í örvaentingu. — Ekki neitt, ljónið hefir sjálft komið sér í þessa blipu, og það er bezt að það rcyni sjálft að losna úr henni. _.®__ Hjónum hafði orðið sundur- orða og í bræði sinni sagði kon- an: — Eg vildi að ég hefði farið að ráðum mömmu og ekki gifzt þér! Hann varð afar vandræða- legur. — Er það satt að mamma þín hafi bannað þér að giftast mér? — Já, víst gerði hún það, sagði konan. — Hamingjan hjálpi mér, hvað ég hef gert þeirri konu rangt til. — ® — Þegar maðurinn kom heim, flóði kona hans í tárum og sagði: — Móðir þín hefir gert mér óheyrða svívirðingu! — Móðir mín? Það getur ekki verið, hún sem á heima á öðru landshorni. — Það er rétt, en það kom bréf frá henni í morgun og ég opnaði það. Hann varð alvarlegur; — Nú, jæja, og hver var svívirðingin? — Neðan á hréfið befir hún skrifað: Kæra. Dóra, gleymdu ckki að Já manninum þanum bréfið þegar þú hefir lesið það. _®_ Maður nokkur var svo hreyk- inn af því hvað hann lék golf vél, að hann kom með tengda- móður sina út á leikvöll og lét hana standa þar sem hún gæti fylgzt vel með leikni sinni. Þegar hann bjó sig uiidir fyrsta höggið, sagði hann við keppinaut sinn: — Eg þarf að slá knöttinn langt í dag. Það er hún tengdamóðir min sefti stend- ur þarna og horfir á. Hinn hristi höfuðið: — Það er vonlaust. Þú hittir hana aldrei á svona löngu færi. — Skemmtir tengdamóðir þín sér vel hérna uppi í fjöllunum? — Ekki held ég það. Hún er nú loksins komin á þann stað, þar sem hún getur ekki vaðið yfir allt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.