Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1956, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1956, Side 12
208 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Einar Bogason frá Hringsdal: Hetjudnuði Úlufs Thorluciusur dunsko i < V" 0LAFUR riddari Thorlacius Þórðarson í Hlíðarhúsum í Rcvkjavík Sighvatssonar, fæddur 1762, var kaupmaður á Bíldudal frá 1790—1815 að hann dó. Kona hans var Guðrún Oddsdóttir Hjaltalín lögréttumanns á Reyðará. Hjón þessi voru talin ágætishjón. Ólafur var talinn auðugasti kaup- maður á landinu. Þau hjón áttu tvo sonu, Árna og Ólaf. Báðir eru þeir bræður fæddir á Bíldudal, Árni 1802 en Ólafur 1804. Eftir andlát Ólafs riddara föður þeirra erfðu þeir bræður- verslunarstöð- ina á Bíldudal og í Stykkishólmi, því Höitersverslun í Stykkishólmi hafði Ólafur faðir þeirra keypt 1807. og setti Boga yngri sagnfræð- ingþar verslunarstjóra og var hann þar verslunarstjóri til 1827, að Árni Thorlacius tók við henni. Árið 1823 kemur Ólafur Thor- lacius, bróðir Árna frá Stykkis- hólmi, sem kaupmaður til Bíldu- dals og er þá giftur Helgu Sig- mundsdóttur frá Akureyjum, son- ardóttur Magnúsar Ketils6onar sýslumanns í Búðardal, sem var systursonur Skúla fógeta. Á Bildudal var hann kaupmaður í 3 ár. Fluttist hann þá 1826 að Fremri- Hvestu í Daláhreppi og bjó þar í 5 ár. Þaðan fluttust þau hjón að Fagradal á Skarðsströnd, og bjuggu þar til þess er Ólafur dó 1837. Um það leyti sem Ólafur fluttist í Fremri-Hvestu keypti Þorleifur skipstjóri Jónsson frá Suðureyri, af ætt Sellátrabræðra, Bíldudalsverslun af þeim bræðr- um. Var Þorleifur giítur Guðrúnu ekkju Ólafs riddara og moður þeirra bræðra, Árna og Ólafs. Bjó Þorleifur með Guðrúnu, sem kaup- maður á Bíldudal þar til hún dó 1838. Þau Ólafur og Helga áttu sam- an fjóra syni: 1. Ólaf eldra Thorlacius, fæddan á Bíldudal 8. jan. 1824. 2. Kristján Thorlacius, fæddan í Fremri-Hvestu 1827. 3. Ólaf yngra Thorlacius, fædd- an í Fremri-Hvestu 1829. 4. Þorleif Thorlacius, fæddan í Fagradal 1833. 5. Árna Thorlacius, fæddan í Fagradal 1834. Eftir að Ólafur Thorlacius maður Helgu dó, fluttist hún frá Fagradal til Bíldudals með 3 syni sína, Krist- ján, Ólaf yngra og Þorleif. Árni yngsti sonurinn, var tekinn í fóstur af Árna Thorlaciusi í Stykkishólmi, þar sem hann dvaldist þar til hann var 15 ára. Sigldi hann þá til útlanda. Fór hann í útsiglingar og hefir ekki spurzt til hans síðan. Eins og að ofan er sagt dó Guð- rún Hjaltalín, kona Þorleifs kaup- manns 1838. Árið eftir, 1839, giftist svo Þorleifur Helgu Sigmundsdótt- ur, sem þá var með 3 sonum sín- um flutt til Bíldudals. Munu þeir hafa alizt upp hjá móður sinni og stjúpa þar til þeir voru orðnir full- veðja menn. Ólafur bjó í Dufans- dal og var hreppstjóri. Dó af af- leiðingum voðaskots 1879. Kristján varð hreppstjóri og bjó í Fremri- Hvestu, d. 1882. Þorleifur varð bójidi, bjó lengst. á Bakka í Dala- hreppi. d. 1882. Ólafur var fyrst giftur Stemunni Ólafsdóttur J’als- &onar prests i Otrardal cg siðan systur hennar Filippíu. Kristján var giftur Kristínu Guðbrandsdótt- ur kammeráðs í Feigsdal og Þor- leilur Jóhönnu systur hennar. Bræður þessir eiga marga afkom- endur. Margt af því er myndar- fólk. Þau Þorleifur og Helga bjuggu saman sem kaupmannshjón á Bíldudal 16 ár, því árið 1855 fluttust þau frá Bíldudal að eignar- jörð sinni, Suðureyri, en fluttust svo þaðan aftur 1862 að Litlevri, þar sem þau bjuggu þau fáu ár, sem þau áttu etfir ólifað. Hún dó 1865 en hann 1866. Þau áttu 3 börn. 1. Jón Th. Johnsen, óðalsbónda að Suðureyri, f. á Bíldudal 1839, giftur Þórdísi Jónsdóttur frá Steinanesi. Johnsen eins og hann var oftast kallaður, var afrendur maður að afli og að mörgu leyti merkis- maður. 2. Valgerði Þorleifsdóttur, f. á Bíldudal 1844, d. 10. maí 1909, gifta Stefáni snikkara Benediktssyni prests frá Selárdal og 3. Guðrúnu Þorleifsdóttur, fædd á Bíldudal 1841, gift Pctri Stefáns- syni frá Ballará. Að framan er þess getið að Ólaf- ur eldri, sonur Ólafs Thorlaciusar og Helgu Sigmundsdóttur, sé fædd- ur á Bildudal 8. jan. 1824. Eftir það er ekki unnt að sjá hvar hann hafi verið, því hann er hvorki á heimili foreldra sinna í Fremri- Hvestu eða í Fagradal, þar til hann er talinn í manntalinu 1840 til heimílis á Bíldudal hjá móður sinni og Þorleiíi stjúpa sínum, 16 ára gamall og svo aítur 1845 ógiftur stýrimaður a Bildudal. Árið 1850 er hann giftur, þá 26 ára, a Bildu-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.