Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1957, Blaðsíða 8
84
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ÞETTA GERÐIST I JANÚAR
FORSETI íslands ávarpaði þjóðina
í útvarpi á nýársdagr.
Alþingi kom aftur saman til funda
20. jan. eftir jólahvíldina.
Haraldur Guðmundsson al-
þingismaður er á förum af
landi burt. Kom þá til álita hvcr
æíti að taka sæti hans á þingi.
Rannveig Þorsteinsdóttir, sem átti
a5 vera varamaður hans, hafði af-
salað sér þvi, og nú vildi Alþýðu-
flokkurinn fá Eggert Þorsteinsson,
en yfirkjörstjórn þóttist ekki geta
veitt honum kjörbréf (29.)
VEÐRÁTTA
Mánuður þessi mun lengi í minnum
hafður vegna þeirra stórviðra, er geis-
að hafa. Allan mánuðinn komu djúp-
ar lagðir vestan úr hafi, hver á faetur
annarri og fylgdu þeim oft'tvö stór-
viðri sama sólarhringinn, fyrst á aust-
an og svo á vestan. Varð aldrei hlé
á þessu, og komst veðurhaeðin upp í
15 vindstig í Vestmanneyum. Verstu
aftökin voru 6., 14., 16., 17., 22., 28.
og 29. Miklar skemmdir urðu víða,
fuku hlöður og hjallar, en þök tók af
lbúðarhúsum, símastaurar og rafmagns
-síaurar brotnuðu, bátar fuku og
strönduðu. Mestar skemmdir urðu á
Vestfjörðum í stórviðrakaflanum frá
14.—22. Var þá einnig stærstur
straumur og gekk sjór víða á land,
einkum á Flateyri, braut þar varnar-
garð, reif upp götur og fór inn í hús,
svo að víða varð fólk að flýa. Fisk-
verkunarhús kaupfélagsins fauk og
lenti brak úr því á öðrum húsum og
skemmdi þau. Þá urðu miklar skernmd-
ir á hafnarmannvirkjum í Súganda-
firði, bryggjur á Ísaíirði fóru i kaf
og sjórinn flæddi inn í bæinn. Miklar
skemmdir urðu á bækistöð verka-
manna við radíóvitann á Straumnes-
fjalli. Rafmagnslaust varð þá viða:
í ísafirði, Hnífsdal, Súðavík, Suður-
nesjum, Akranesi og Siglufirði. Flóð
gekk á land á Álftanesi syðra, braut
sjóvarnargarða og vegi, en bar grjót
og sand á ræktunarlönd. — Eftir miðj-
an mánuðinn fór að snjóa og urðu þá
miklir samgönguerfiðleikar. Fjallvegir
Forsetl fslands
i skrifstofu
sinni á Bessa-
stöðum
suðvestan lands tepptust hvað eftir
amiað og jafnvel götur í Reykjavík.
Varð þá hvað eftir annað að aflýsa
öllum mannfundum. Mjólkurflutning-
ar stöðvuðust þó aldrei alveg, vegna
þess að snjóýtur voru látnar fylgja
bílunum. Flugsamgöngur lögðust nið-
ur að miklu leyti innan lands og flug-
samgöngur við útlönd trufluðust meira
og minna, enda var oft ólendandi á
flugvöllunum. — í einu ofviðrinu
skekktust olíugeymar í Ólafsfirði og
Grímsey og fór niður öll olía, sem í
þcim var, og var það stórtjón. 28. var
veðrið verst í Siglufirði og olli þar
nokkru tjóni. Meðan þessu fór fram
um mestan hluta landsins, var eymuna
góð tíð á Austfjörðum og leiðin yfir
Fagradal eins og að sumarlagi. Annars
voru hlýindi um allt land, oftast frost-
laust, nema hvað 19 stiga frost varð
í Möðrudal 23.
ÚTGERÐIN
Róðrar áttu að hefjast þegar upp úr
áramótum, en varla gaf nokkum tíma
á sjó í mánuðinum. Bátarnir urðu að
halda kyrru fyrir í höfnum og menn-
irnir, sem ráðnir voru á þá, að ganga
vinnulausir. Bætist það nú ofan á önn-
ur óhöpp útgerðarinnar, að hún hefir
orðið að gjalda þessum mönnum kaup-
tryggingu allan tímann, án þess að fá
nokkuð í aðra hönd. — Togarar urðu
og oftast að liggja í vari vegna stór-
viðranna.
í öndverðum mánuðinum sigldu
nokkrir togarar til útlanda með afla,
og fengu þá geipihátt verð fyrir. Jón
forscti seldi í Þýzkalandi fyrir 135 þús.
mörk og er það metsala hjá íslenzk-
um togara þar. Fjórir togarar seldu í
Englandi fyrir 15 þús. pund hver, og
svo seldi Akurey fyrir 18.761 pund og
mun svo hátt verð ekki hafa fengizt
síðan í stríðinu.
Samningar tókust í kjaradeilu sjó-
manna á Akranesi (5.) Verkfall varð
í Grindavík vegna kaupdeilu sjó-
manna þar, en því var af létt (17.)
SLYSFARIR
Togarinn Goðanes frá Norðfirði átti
að sækja færeyska sjómenn, en strand-
aði og fórst í Skálafirði á Færeyum.
Öllum mönnunum var bjargað nema
skipstjóranum, Pétri Hafstein Sigurðs-