Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1957, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
87
iunnþórunn
lalldórsdóttir
eikkona 85
ira. Hún er
in á lífi af
>tofnendum
Leikfélags
Reykjavíkur
gulli fjTir 11 sundmet á árinu sem
leið (26. og 30.)
Ákveðið hefir verið að Golfvöllur
Reykjavíkur verði framvegis í Grafar-
holtslandi (30.)
Á sundmeistaramóti Reykjavíkur
voru sett 2 íslandsmet og 3 ungiinga-
met (31.)
LISTIR
Magnús Jónsson söngvari hefir verið
ráðinn við konunglegu óperuna í
Kaupmannahöfn (6.)
Brezkur píanósnillingur, Kendell
Taylor, kom hingað á vegum Tónlistar-
félagsins (15.)
Kammermúsíkklúbbur hefir verið
stofnaður í Reykjavík (23.)
Fyrsta sameiginleg iistsýning ís-
lenzkra kvenna, var opnuð í Reykja-
vík (29.)
FLUGMÁL
Flugvél lenti í fyrsta sinni á Flug-
vellinum í Bolungavík. Var það sjúkra-
flugvél Björns Pálssonar (11.)
Farþegafjöldi hjá Flugfélagi íslands
árið sem leið var hálfu meiri í milli-
landaflugi og fjórðungi meiri í innan-
landsflugi heldur en árið áður (18.)
Farþegaflutningar Loftieiða árið sem
leið voru nær þriðjungi rneiri en árið
áður og sama var um póst og vörur
((20.)
Loftleiðir hafa opnað skrifstofu í
Lundúnum (30.)
Félag íslenzkra flugmanna hefir far-
ið fram á miklar kjarabætur og boðað
verkfall 5. febr. ef samningar hafa
ekki tekizt við flugfélögin fyrir þann
tíma (27.)
FRAMKVÆMDIR
Nýr stálbátur, smíðaður í Þýzkalandi,
kom til Patreksfjarðar. Heitir hann Sæ-
borg og er 66 lestir (11.)
Rannsóknaráð ríkisins heíir sótt um
að ííí spildu úr landi Korpúlfsstaða hjá
Reykjavíkurbæ, til þess að koma þar
upp miðstöð náttúrurannsókna (12.)
Rauði krossinn hefir fengið tvo nýa
sjúkravagna frá Ameríku (13.)
Strætisvagnar Reykjavíkur fengu 5
Mercedes Benz farþegavagna og er
rúm í hverjum fyrir 78 farþega (13.)
Stykkishólmsbúar hafa ákveðið að
reisa stórt hús fyrir héraðsbókasafn
sitt (16.)
í Keflavík hefir verið reist ný ver-
búð og fiskverkunarhús með salt-
geymslu og er með nýtízku sniði (17.)
Nýr togari, Gerpir, kom til Norð-
fjarðar. Hann var smíðaður í Þýzka-
landi og er með stærstu togurum (17.)
Nýtt sjúkrahús, búið íullkomnustu
tækjum, var vigt í Norðfirði. Hefir
það rúm fyrir 24 sjúklinga og auk
þess 12 gamalmenni (18.)
Lögreglumenn í Reykjavík hafa
stofnað til kennslu í umferðarrreglum
og meðferð og akstri bifreiða (18.)
Nýum báti, 39 lesta, var hleypt af
stokkunum í ísafirði. Hann heitir Páll
Pálsson og verður gerður út frá Hnífs-
dal.
Ákveðið hefir verið að reisa stórt
hraðfrystihús fyrir Bæarútgerð Reykja-
víkur (26.)
MENN OG MÁLEFNI
Úthlutað var í fyrsta sinn styrk úr
Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og
hlutu hann skáldin Guðmundur Fii-
mann og Snorri Hjartarson (3.)
Benedikt Gröndal var skipaður for-
maður Útvarpsráðs og Þórarinn Þor-
arinsson ritstjóri varaformaður (8.)
Bandarískur milljónamæringur hefir
veitt 2 íslenzkum stúdentum styrki til
framhaldsnáms við háskólann i Madi-
son í Wisconsin. Piltarnir, sem urðu
fyrir valinu eru Halldór Gíslason og
Jón Friðsteinsson (12.)