Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1957, Page 12
152
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
íyrir 35 áruin, er nú lokið, og er sagan
um 220 arkir að staerð (26.)
Ákveðið hefir verið að reisa á næst-
unni nokkur 10 og 12 hæða íbúðar-
hús í Reykjavík (28.)
MENN OG MÁLEFNI
Gunnar Thoroddsen hefir nú gegnt
borgarstjórastarfi í Reykjavík um 10
ára skeið. Vinir hans heldu honum
samsæti af því tilefni (3.)
Finnbogi Rútur Valdimarsson var
sendur sem fulltrúi íslands til þings
Sameinuðu þjóðanna (3.)
Frú Auður Auðuns var endurkjör-
in forseti bæarstjórnar í Reykjavík
(8.)
Kristinn Guðmundsson sepdiherra í
London hefir afhent trúnaðarbréf sitt
sem ambassador í Hollandi (9.)
Ármann Dalmannsson var endur-
kjörinn formaður Búnaðarsambands
Eyafjarðar (9.)
Steinar Waage hefir lokið sérstöku
prófi í skósmíð fyrir bæklaða menn,
og sett á fót skóvinnustofu í Reykja-
vík (10.)
Listasafnsfélag var stofnað i Reykja-
vík í vetur og hefir það nú gefið Lista-
safni ríkisins mynd eftir franskan mál-
ara (13.)
Rauðakrossdeild Hafnarfjarðar hefir
gefið bænum nýan og fullkominn
sjúkrabíl (14.)
Vilhjálmur Einarsson íþróttamaður
var ráðinn erindreki Sambands bind-
ir.disfélaga í skólum til þess að ferð-
ast um landið og flytja bindindisfyrir-
lestra í skólunum (15.)
Vaclav Sinatácek, tékkneskur hljóm-
sveitarstjóri, kom hingað í boði Sin-
Nýr sjúkra-
MU Hafn-
arfjarðar
fóníuhljómsveitarinnar og stjórnaði hér
tónleikum (15.)
Sveinn Þórðarson féhirðir Búnaðar-
bankans hefir verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Reykvíkingafélagsins í
stað Hjartar heitins Hanssonar kaup-
manns (19.)
Fjórir íslendingar, Gunnar G.
Schram blaðamaður, Helgi Tryggva-
son kennari, Óskar Hallgrímsson raí-
virki og Stefán Gunnlaugsson bæar-
stjóri, fóru utan í boði brezka utan-
ríkisráðuneytisins og munu ferðast
víðsvegar um Bretland (19.)
Erlendur Einarsson forstjóri hefir
verið ráðinn til þess að vera fulltrúi
Islands á fullveldishátíð Gullstrandar-
innar (Ghana) í Afríku (20.)
Jacque Abram píanóleikari frá
Bandarikjunum kom hingað á vegum
Tónlistarfélagsins (21.)
Harry Hjörne, aðalritstjóri sænska
blaðsins „Göteborgs Posten“, kom.
hingað í kynnisför (21.)
Iðnnemafélag stúlkna var stofnað i
Reykjavík (21.)
Sjómannasamband íslands var stofn-
að í Reykjavík og hafði Sjómanna-
félag Reykjavíkur forgöngu um það.
Formaður var kosinn Jón Sigurðsson,
ritari Hilmar Jónsson og gjaldkeri
Magnús Guðmundsson (27.)
Agnar Kl. Jófisson sendiherra í Par-
ís hefir afhent Franco trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra á Spáni (21.)
Búnaðarþing var sett í Reykjavík
(22.)
Valur Gíslason leikari var kosinn
íorseti Bandalags íslenzkra listamanna
(26.)
Uelgi P. Briem ambassador i Þýzka-
landi hefir afhent forseta Sviss trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra þar i
landi (27.)
Ökumenn í Garði hafa stofnað deild
í Bindindisfélagi ökumanna og voru
stofnendur 32 (28.)
FJÁRMÁL
Kvennadcildin Eykyndill í Vest-
manneyum hefir afhent Slysavamafé-
lagi íslands 47 þús. kr. til slysa-
varna (2.)
Á bókauppboði í Reykjavík var eitt
ointak af „Pétri Gaut“ (þýðing
Einars Benediktssonar) selt fyrir 9500
krónur (2.)
Fjárhagsáætlun Akraness gerir ráð
fyrir að útsvör nemi 8,5 millj. kr.
(3.)
Fjárhagsáætlun Akureyrar gerir ráð
fyrir rúmlega 16 millj. kr. útsvars-
álagningu, og er það um 30% hækkun
frá seinasta ári (5.)
Viðskiptajöfnuður ársins 1956 varð
óhagstæður um 438,4 millj. kr. (7.)
Kvennadeild Slysavarnafélagsins í
Reykjavík hefir lagt fram um 90 þús.
kr. til slysavarna árið sem leið (9.)
Firmað J. Þorláksson & Norðmann
átti 40 ára afmæli og þann dag gaf
það 25.000 kr. í Minningarsjóð Jóns
Þorlákssonar, er stofnaður var 1952
(7.)
Vísitala framfærslukostnaðar var
186 stig, en kaupgjaldsvísitala er 178
stig (12.)
Úthlutað hefir verið styrkjum úr
dönsku deild Sáttmálasjóðs, og eru þar
á meðal 4000 d. kr. til kirkjumálaráð-
hema Dana, til þess að bjóða Bjarna
Jónssyni vígslubiskupi til Danmerk-
ur (15.)
Alþingi afgreiddi fjárlögin og eru
riðurstöðutölur þeirra rúmar 800
milljónir króna.
AFMÆLI
Múrarafélag Reykjavíkur átti 40 óra
aímæli (1.)
Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur átti
90 ára afmæli (3.)
Félag matreiðslu- og framreiðslu-
manna átti 30 ára afmæli (12.)
Heimdallur, félag ungra Sjálfstæð-
isrnanna, átti 30 ára afmæli (13.)
Bæarúígerð Reykjavíkur átti 10 ára
afmæli (17.)
Kaupfélag Þingeyinga, elzta kaup-
félag landsins, átti 75 ára afmæli (20.)
Skátafélögin minntust þess á virðu-
legan hátt, að 100 ár voru liðin frá