Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1957, Blaðsíða 1
11. tbl.
jÝlarumWa&á in$
Sunnudagur 17. marz 1957
XXXII árg.
Ferðalag um Migeriu
Þjóðlífsmyndir, staðhættir og markaður fyrir íslenzka skreið
Þóroddur Jtnsson stórkaupmaður hefir tvívegis farið til Nigeríu til
þess að greiða fyrir sölu á íslenzkri skreið og kynnast viðskiptavin-
unum þar. Hefir hann ferðast um landið þvert og endlangt og kynnzt
þar ýmsu, sem gaman er að vita, einkum þar sem hér er um að
ræða eitt af hinum nýu viðskiptalöndum vorum. A5 beiðni Lesbók-
ar hefir har.n því tekið saman eftirfarandi grein fyrir lesendur
hennar.
lyiGERIA er stórt land og liggur
að botni Guinea-flóans á vest-
urströnd Afríku. Þetta er „svart“
land, þar eiga heima um 32 milljón-
ir manna, en þar af eru aðeins 18
—19 þús. hvítra manna, og eiga
þeir aðallega heima í stærstu borg-
unum, Lagos og Kano, sem er
langt norður í landi. Landið er að
vísu talið brezk nýlenda. Bretar
byrjuðu á því að kaupa eyna Lagor
af Svertingjahöfðingja þeim, sem
þar átti fyrir að ráða, og greiddu
honum kaupverðið í gulli. Síðan
færðu þeir sig upp á skaftið og
gerðust verndarar hinna ýmsu
höfðingja, þar til svo var komið
að þetta var kölluð brezk nýlenda.
En þar er engin nýlendukúgun,
eins og óvandaðir menn vilja vera
láta, heldur er þar hið mesta frjáls-
ræði. Utanríkismálin eru að vísu í
höndum Breta, og þeir eiga aðal
bankana þar í landi. En verslunin
er frjáls. Svertingjar kaupa sjálfir
vörur erlendis og selja sínar vörur
til útlanda, og þeir eru að koma
sér upp eigin bönkum og efla þá.
Þó langt sé frá íslandi til Nig-
eríu, er auðvelt að komast þangað
með flugvélum. Öll helztu flug-
félög álfunnar, sem senda flugvélar
til Suður-Afríku, láta þær koma
við í Kano. En bezt er að fara fyrst
til London og fljúga svo þaðan til
Lagos, það er tæplega sólarhrings
ferð. Eg fór héðan á föstudags-
morgni og var kominn til Nigeríu
kl. 7 á mánudagsmorgni, og hafði
þó farið aðra leið, frá London til
Róm og þaðan til Kano.
tiiii 1
Þoroddur Jonsbon og tveir skreiðarkaupmenn í Nigenu.