Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1957, Side 1
Egill Hallgrímsson:
Hrakningar um Almenning
op Kapelluhraun fyrir hálfri öld
Á RLA morguns hinn 2. janúar
1907 eða fyrir 50 árum, stóðu
tveir ungir menn, Jón Jónsson og
Helgi Pálsson Eggerz, ferðbúnir á
hlaðinu heima hjá sér, í Kirkjuvogi
í Höfnum suður, og litu til veðurs.
Var ferðinni heitið til Hafnarfjarð-
ar.
Veðurútlit var ekki gott, loftið
dimmt og drungalegt, en kyrrt veð-
ur og frostlítið niðri í byggð og
snjór svo mikill að varla sást á
dökkan díl. Ef þá hefði verið kom-
ið útvarp og veðurfregnir, myndi
veðurspáin ekki hafa verið góð.
Þeir ferðafélagar létu það ekki á
sig fá og kvöddu heimafólk og
lögðu af stað í þeirri von, að veð-
ur myndi ekki spillast þann dag-
inn. Héldu þeir svo sem leið ligg-
ur um Hafnaheiði, Vogastapa og
Reiðskarð inn í Voga.
Gamli vegurinn á Stapanum var
niður grafinn og grýttur, einn
versti vegurinn á Suðurkjálkanum
í vætutíð og snjókomu. Urðu menn
stundum þar úti í hríðarveðrum,
viltust og hröpuðu fyrir björgin —
í sjóinn, eða sofnuðu hinum hinsta
svefni, þar sem þeir höfðu lagst til
hvíldar við veginn, örmagna af
þreytu og vosbúð og má vera að
brennivínið hafi oft átt sinn þátt
í því. Sagt var og, að Stapadraug-
urinn hafi komið hér við sögu.
Þeir félagar, Jón og Helgi, voru
komnir inn í Voga um dagmál.
Fyrsti áfangi þeirra hafði gengið
vel þrátt fyrir þunga færð. Þar
bættist einn við, sá sem þetta rit-
ar. Þegar þeir Jón og Helgi höfðu
fengið hressingu heima hjá mér í
Vogum og hvílt sig um stund, lögð-
um við af stað og héldum með
bæum inn á Vatnsleysuströnd.
Bættust þar í hópinn þeir Ingvar
Gunnarsson frá Skjaldarkoti og
frændi hans Þórður Guðmundsson
frá Brunnastöðum. Höfðum við
Jón og Ingvar, en við vorum allir
nemendur í Flensborgarskólarium,
komið okkur saman um að verða
samferða til Hafnarfjarðar aftur
að jólaleyfi loknu, en hinir tveir,
EgiII Hallfrimuso'-
Helgi og Þórður, höfðu slegist með
í förina. Héldum við nú án tafar
áfram ferðinni svo sem leið ligg-
ur um Strandarheiði.
„Áður fyrr lá leiðin frá Vogum
til Hafnarfjarðar um götutroðn-
inga, sem lágu um eldri og yngri
y
k