Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1957, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
207
Hafnagjá hjá Vogum. — Slikar hraun-
gjár eru hættulegar ferðamönnum í
myrkrl og hríð.
við nú leiðsögumanni fylgdina og
hélt hann heimleiðis, en við héld-
um áfram ferðinni í umbrotafærð
eftir veginum, sem liggur niður-
grafinn gegnum Kapelluhraun.
Hraun þetta er afar úfinn bruni,
runnið úr gígum við Undirhlíðar.
Það mætti skjóta því hér inn í, að
oft hefir verið og er rætt um að
gera þama flugvöll fyrir innan-
landsflug og leggja niður Reykja-
víkurflugvöll. Virðist staðurinn
heppilegur og í hæfilegri fjarlægð
frá höfuðborginni. Verður þarna ef
til vill annar stærsti flugvöllur
landsins í framtíðinni. Nafnið hef-
ir hraunið af gamalli „kapellu“,
grjótdys við gamla veginn í því
miðju; segja munnmæli, að þar
hafi verið dysjaður einn af mönn-
um Kristjáns skrifara.
Þegar við lögðum í hraunið mun
hafa verið liðið að miðaftni. Herti
nú óðum frostið og veðrið með
þrumum og ljósagangi, stórhríð og
skafrenningi. í gegnum Kapellu-
hraun gátum við haldið veginum
með hraunið á báðar hendur. En er
við vorum komnir inn úr því og
inn í síðasta hraunflákann, er nefn-
ist Hvaleyrar- eða Hellnahraun og
er flatt og hellótt hraun, með kötl-
um og sprungum, týndum við brátt
veginum. Sáum við nú fram á, að
áframhald væri tvísýnt mjög og
hugðumst því snúa við og brjótgst
sömu leið til baka, en þá hafði
fennt og skafið í öll spor, svo að
ógerlegt var að finna veginn inn
í Kapelluhraunið. Hefðum við get-
að átt á hættu að villast út í hraun-
ið, þennan úfna bruna, og lenda
í ógöngum. Var nú úr vöndu að
ráða.
Við vorum lítt vanir að þreyta
fangbrögð við náttúruöflin og auk
þess ekki vel kunnugir á þessum
slóðum. Réðum við nú ráðum okk-
ar og komumst brátt að þeirri nið-
urstöðu, að ekki væri nema um þá
einu leið að ræða, að halda áfram
ferðinni, með veðrið í fangið, í átt-
ina til sjávar, í þeirri von að kom-
ast að Hvaleyri. Af vindstöðunni
var okkur ljóst, að sjórinn var á
vinstri hönd. Við urðum að forð-
ast að halda upp á við, og einnig
urðum við að gæta þess að halda
ekki undan veðrinu, til þess að
lenda ekki í Kapelluhrauninu með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Okkur var kunnugt um að allt frá
Lambhagaeyri og inn undir Hval-
eyrarsand eru allhá, en slitrótt,
þverhnípt, klettabelti í sjó fram,
sem nefnd eru einu nafni Gjögrin
og hætta gat verið á því, að við
gengjum fram af þessum klettum.
Hætturnar, sem biðu okkar á þess-
um slóðum, voru því margar, og
urðum við að hafa gát á öllu.
Við héldum nú ferðinni áfram í
áttina til sjávar. Þrátt fyrir við-
leitni okkar til að halda í veðrið,
hrakti okkur út í Kapelluhraunið
og munum við hafa verið all-lengi
að veltast um það og komast út úr
»rhöíi4i
j/riiJv J’VV ''/j/kcií/'''1 , ■
/ 7 * /1 *
/ ^ // ' ■ // ■ • x • ■ I
A A- v •i.w w. 4 -. |
>' / ' ••'■ ■é&T >' - *
/<**! ^ jf ■ ^ ' ■&' i *'■■> ■ ■*• - ’
■
.............. ÍmMzm.
>• ■ VV- v v N V
... m wr V. -v'
Mriuttini'ik >
, .. ■# i I r n rh r aíi k\ ,, ; , JO
v' w *.
... X J’h.ufi » ’ ' y y - >' ,A ,-,• \-,
y/mtttnttr 7 ■*, ™ . . > If:-
% I **■ W ’ * v," gfpra
í, * i*.
*. «• V
■•> % v \
.. / '■■■ 'd *. * \ * _ ' ,< - '■ -*■ ♦ " '
; ;\ . x \ . A '■.'■, - ' - r
?<■ C' J- , , \ .,■ .
m p. $ ^ *
.: ^ * y* •
. '••*"' ■* \ ■ i >. \
V - \ * 'V
11 1 ' i \- ■
V- ^ ^ A ' t T \ * i . í ! ^ >%
.V , \ K a n o 11 u h r a u n
' ' .... ■ ií : v>. \ ' ' ,% _ ' “\ ' ■ .. - V v
^ 4«r ' <m,- ' /i '»<■' * » •>* 't MtSHHHHi
1
Kort mt ▼iliusvsaðinu
i
i