Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1957, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSTNS
21S
sniði, og eins myndhöggvaralist
þeirra.
Fornfræðingum er í mun að vita
hvernig stendur á þessum skyld-
leika og hvar þessi menning muni
upp runnin, og hvemig hún hefir
þá borist frá einum til annars. Sein-
ustu rannsóknir benda til þess, að
vagga þessarar menningar hafi
verið í Suður Ameríku, en ekki í
Mexikó, einsog talið hefir verið
fram að þessu. Menn þykjast nú
hafa komist að því að málmsmíðar
hafi tíðkast miklu fyr í Suður
Ameríku en norðurfrá, og eins hafi
Indíánar í Perú orðið fyrstir manna
til þess að taka upp akuryrkju í
Ameríku. En þó hafa menningar-
straumar borist á milli sitt á hvað.
Inkar voru snjallari í málmsmíð,
leirkerasmíð og stjórnskipun. Maya
Indíánar voru aftur á móti fremri
í húsbyggingarlist, stærðfræði og
myndhöggvaralist. En áhrifin hafa
borist sitt á hvað, og þau gátu ekki
farið eftir öðrum leiðum en yfir
Panamaeiðið. Þess vegna er eðli-
legt að í Panama sé leitað að sönn-
unum fyrir þessu.
rakkarnir voru
álfhræddir við úí-
arpið. Maðurinn
neð pípuna er fjöl-
kyldufaðirinn
Við hófum leitina meðfram ánni
Indio, og þar slóst í för með okkur
Hann hafðí sorf'
íennur sínar i odc
—til fegurðarauka
og svo þær entust
betur.
dr. Shirley Gage, kvenlæknir frá
New York. Hún hafði um nokkurra
ára skeið verið læknir í Kína, og
nú langaði hana til að kynnast líf-
inu á þessum slóðum, þar sem eng-
inn læknir hefir nokkru sinni verið.
Þetta var í janúarmánuði og
þann tíma höfðum við valið vegna
þess að fyrstu þrír mánuðir ársins
eru taldir þurkatíminn í Panama.
En það var einsog landið vildi refsa
okkur fyrir það að vera að skyggn-
ast eftir fornum leyndardómum
sínum. Ekki vorum við fyr lögð á
stað, en hann byrjaði að rigna.
Vatnið fossaði úr loftinu svo að
segja látlaust, og það var sjaldan
meira en tvo eða þrjá daga í röð,
að við værum ekki holdvot.
Við leituðum uppi Indíána, sem
líklegt var að gæti bent okkur á
fornleifar. Gamall karl sagðist hafa
fundið gullfrosk og gullstöng fyrir
mmwm m ' i