Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.1957, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
219
Heilbrigðismál
LÆKNAÐAR
ÆÐASTÍFLUR
Þegar menn fara að eldast fara
æðastíflur að gera vart við sig,
einkum nærri hjartanu. Innan í æð-
arnar sezt fitukennt efni, sem
þrengir þær stöðugt og heftir blóð-
rennslið. Þetta er ósköp svipað því
þegar kísilefni setjast innan í hita-
veitupípur og þrengja þær þangað
til rennsli stöðvast. Læknar hafa
verið að hugsa um hvernig hægt
muni að lækna þessar æðastíflur,
og nú hefir tveimur amerískum
læknum, dr. Charles P. Bailey í
Filadelfía og dr. Angelo M. May í
San Francisco tekizt þetta. Þeir
hafa fundið upp áhald til þess að
hreinsa burt þessi fitukenndu efni
úr æðunum. Hefir aðferðin verið
reynd á tveimur mönnum og tókst
ágætlega. Eftir er nú að vita hvort
fituefni taka að safnast fyrir aftur
á sama stað.
NÝTT MEÐAL VIÐ
KRABBAMEINI
Nokkrir ítalskir læknar, með þá
dr. Giukio Sotgiu og dr. Carlo
Cacciari við háskólann í Bologna,
í fararbroddi segjast hafa fundið
upp nýtt meðal við krabbameini
í meltingarfærum, og hafi það
gefið góðan árangur í 22 skipti.
Meðal þetta er sambland af
fjörefnum, málmsöltum, mjólk-
urefni og sérstöku læknandi efni,
sem kallað er Nupra. Er það fram-
leitt úr lifur og heila nautgripa.
Sjálft kallast meðalið Exul og er
nú verið að gera tilraunir með það
í Maryland háskólanum í Banda-
ríkjum.
HJARTABILUN
Það hefir verið álitið, að menn
sem hafa fengið aðkenningu að
hjartabilun, megi ekki vinna erfið-
isvinnu. í tímaritinu „Geriatrics"
segir læknirinn dr. J. W. Valker,
að þessi skoðun sé ekki rétt, og
það muni stytta ævi manna, ef
þeim er bannað að reyna á sig.
Yfirleitt sé það þannig, að þegar
menn hafa rétt við eftir fyrsta
áfallið, þá endist betur þeir, sem
vinna erfiðisvinnu heldur en hinir,
sem ekkert reyna á sig.
OFNÆMI FYRIR MEÐULUM
Það er galli á hinum ágætu
undrameðulum nútímans, svo sem
penicillin, að margir hafa ofnæmi
fyrir þeim og fá af þeim útbrot og
húðsjúkdóma. Að vísu hafa mörg
fleiri meðul þennan annmarka og
hefir dr. W. C. Spain háskólapró-
fessor í New York, talið upp 500
tegundir meðala, sem valda of-
næmi. En fúkkameðulin segir hann
að sé verst. Um 10% sjúklinga,
sem fengið hafi penicillin, hafi
veikzt af því. Stundum komi þetta
ekki fram í þeim fyr en vikur og
jafnvel mánuðir eru liðnir frá því
að þeir fengu meðalið. En þá hafi
komið fram bólgur, hiti og allskon-
ar hörundskvillar.
LÆKNING VIÐ KVEFI
Amerískur læknir hefir komið
fram með þá kenningu, að það sé
hreinasta óráð að svala þorsta, sem
kvefi fylgir, með því að drekka
mikið. Menn eigi miklu fremur að
kappkosta að fá sem mest vatn út
úr líkamanum. Hann segist hafa
örugga reynslu fyrir því, að bezta
lækningaaðferðin sé sú, að vefja
sjúkling frá hvirfli til ilja innan í
línlak og vefja þar utan yfir tveim-
ur ullarteppum, og hafa svo við
heita flöskubakstra eða rafmagns-
bakstra. Þá svitni sjúklingurinn, en
ekki megi gefa honum. neitt að
drekka og hann megi 'ekki neyta
neins nema svo sem eins bolla af
súpu, tómatsafa, ávaxtasafa, te eða
kaffi, og þetta skuli hann fá til
skiptis á þriggja tíma fresti meðan
hann er vakandi. Stundum sé og
gott að gefa niðurhreinsandi með-
ul. Eftir þessa meðferð sé svo ó-
hætt að gefa sjúklingnum fúkkalyf
eða annað lyf, og hrífi bau þá miklu
betur.
LÖMUNARVEIKIN
Enda þótt börnum og ungling-
um sé hættast við lömunarveiki, þá
getur fólk þó tekið hana allt að
fimmtugsaldri, eða lengur. í
Bandaríkjunum er talið að fjórði
hluti allra þeirra er fá lömunar-
veiki, sé á aldrinum 30—50 ára. Dr.
Jonas E. Salk, sá sem fann upp
bólulyfið gegn lömunarveiki hefir
nýlega sagt, að enginn mundi
sennilega fá þá veiki, ef allir inn-
an við fimmtugt væri bólusettir.
— Þess má geta hér, að í herferð-
inni sem hafin var í sumar í Dan-
mörk gegn lömunarveikinni, átti
að bólusetja alla að fertugsaldri.
BLÓÐGJAFIR
Læknirinn dr. Israel Davidsohn
í Chicago hefir varað alvarlega við
því að konu sé gefið blóð úr maka
sínum, ef líkur eru til þess að sú
kona muni geta átt barn. Slík blóð-
blöndun sé mjög hættuleg fyrir
fóstrið og geti hreint og beint vald-
ið dauða þess.
JAFNítÉTTI
ÞAÐ SKERPIR aðeins kærleikann,
þegar hjónin kíta af og til. Það
hreinsar andrúmsloftið. Ef þau kíta
aldrei, þá er það merki þess að annað
hvort þeirra er einrátt á heimilinu, og
slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra,
segir amerískur mannfræðingur.