Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1957, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
22T
ar. Og hvaða list var þá betri til
þess, en list barnanna?
Veggirnir í herbergi Millers voru
þaktir myndum, og þær voru þar
í stórum hrúgum á gólfinu, borð-
um og stólum. Þær voru merktar,
og það var eins og að ferðast um
hnöttinn að lesa nöfnin: ísland,
Noregur, Ítalía, Grikkland, Afgh-
anistan, Indland, Kambojda, Jap-
an, Ástralía, Suður-Rhodesía ....
— Ferðuðust þér um öll þessi
lönd til þess að safna myndunum?
spurði ég.
— Nei, sagði hann, ég safnaði
þeim með bréfum.
Fyrir milligöngu ríkisstjómar-
innar og erlendra sendiráða í
Washington, sendi Miller bréf til
kennslumálaráðherra í mörgum
löndum og bað um myndir. Ráð-
herramir sendu bréfin í skólana.
Og brátt fóm myndir að streyma
til Fíladelfíu, stundum hundrað í
einu.
Um fimm ára skeið hefir nú þessi
barnlausi maður gefið sig eingöngu
við því að safna list barna um all-
an heim. í safni hans eru nú rúm-
lega 12.000 málverk frá rúmlega
100 löndum — list barna af mörg-
um pjóðflokkum og trúarbrögðum
— og safnið eykst stöðugt.
— Það er samræmi í þessum
myndum, sagði hann. Sjáið þér það
ekki? Hér er kynslóðin, sem á að
taka við af okkur, sameinuð í hin-
um dýrlega heimi barnslegrar
ímyndunar. Og ég held að handa-
verk þeirra muni á einhvem hátt
flýta fyrir heimsfriði.
Hann hefir sýnt þessar myndir
alls staðar, á gatnamótum, í lista-
sölum, í söfnum, í verslunum út-
hverfa, í lystigörðum og á torgum.
— Hvemig litist yður á að birta
nokkrar myndir í National Geo-
graphic Magazine? spurði ég.
Augu hans tindmðu af fögnuði
og við tókum þegar til óspiltra mál-
anna að velja úr myndunum. Seint
\ Finnbogi J. Arndal: s
| !
VOR í NÁND
j \
■ >
• Vorið sýnist vera nærri, s
; vikja fannir dölnm úr, '
s sólargangur hærri og hærri,
{ hlý er orðin sérhver skúr. s
s s
^ Sólarorkan svellin bræðir,
s sunnan þeyrinn boðar vor. ^
S Blánar hlíð, er birtan flæðir S
J brosmild yfir vetrar spor.
s s
S Farveg þröngvan fljótin æða, s
\ fjötrum ísa kasta brott,
S yfi« bakka ólga, flæða,
S er þeim frelsi vorsins gott. s
\ s
' Duna fossar daga og nætur,
s dalir kasta vetrar mjöll,
s bráðum vakna bjarkarætur,
■ blána óðum landsins fjöll.
s s
s Lindin, sem að la í böndum, s
\ leysir af sér klakans hjúp,
; fagnandi úr frerans höndum
S flýtir sér í elfardjúp.
i S
■ Falla elfur, lækir, lindir
s ljúfan sævar faðminn í, ^
S þegar ástarelda kyndir s
| eygló vorsins sumarhlý.
i s
S Vor í nánd, með vonir bjartar, s
s vorleysing í hugum býr. i
| Birtan nætur sigrar svartar,
s sunnan streymir blærinn hlýr. s
S s
■ Vökuljóðin vorsins óma,
S vekja alt af langri döf. \
S Bráðum lífsins hörpur hljóma s
i húmsins yfir kaldri gröf.
s___________________________________l
um kvöldið hélt ég svo heimleiðis
til Washington með úrval 125
mynda.------------
Og svo birtast með greininni 22
litprentaðar myndir af þessum
málverkum bamanna. Ein er frá
íslandi. Með þeirri mynd stendur:
„Hildur Bjarnadóttir, 10 ára gömul,
málaði þessa mynd af hinni trjá-
lausu sveit, þar sem hún hefir oft
verið á sumrin og unað sér vel.
Hún hefir raðað öllu mjög trúlega
á myndflötinn, en minna skeytt
um „perspektiv“»
Grettistak á írlandi
SKAMMT frá veginum milli Newcastla
og Dundrum í Norður írlandi, er þetta
mannvirki og mun vera æfa fomt. Það
eru tveir stórir steinar og ofan á þeim
liggur heljarbjarg. Menn vita ógjörla
hvers konar mannvirki þetta er, en
fornfræðingar telja að það muni vera
gömul gröf, því að ýmsar svipaðar
fornar grafir sé í Norður Irlandi. Graf-
ið hefir verið þarna um kring, og haía
þar fundist leifar af ákaflega fomum
mannabústöðum. Sumir halda að þetta
hafi verið einhver helgistaður.
Munnmæli segja, að þegar heilagur
Patrekur ferðaðist um þennan hluta
landsins, hafi hann hvilt sig í skugga
steinanna.
★ ★ ★ ★ ★
VENUS
REIKISTJARNAN VENUS, sem er
einhver fegursta stjarna á himinhvel-
inu, var morgunstjama í byrjun þessa
árs og kom þá upp rúmlega tveimur
stundum á undan sól. En síðan hefir
hún verið að færast nær og nær sól-
inni og í dag (14. apríl) gengur hún
á bak við sólina og yfir á kvöldhim-
inimi, og er síðan kvöldstjarna til árs-
loka.
★ ★ ★ ★ ★
Skozkur bóndi féll niður I djúpan
bi-unn. Hann tróð þar marvaðann og
hrópaði á hjálp. Kona hans kom að.
— Reyndu að halda þér uppi meðan
eg hleyp út á akurinn og sæki pilt-
ana, sagði hún.
— Bíddu, sagði hann. Hvað er klukk-
an?
— Hana vantar 20 mínútur i tólf.
— Þá ætla eg að reyna að halda
mér uppi þangað til þeir koma i mafc-
inn.