Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1957, Blaðsíða 16
284
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
NÝU FAXARNIR — Enn hefir ísland færst nær umheiminum. Flugfélag tsiands hefir fengið tvær farþegaflugvélar,
sem eru 50% hraðfleygari heldur en Skymasterflugvélarnar voru. Þessar nýu flugvélar hafa fengið nöfnin Hrímfaxi og
Gullfaxi. Happaflugvélin gamli Gullfaxi heitir nú aðeins Faxi, og verður seldur úr landi. Munu margir kveðja hann
með söknuði. því hann hafði reynzt ágætlega í mörgum langferðum. En kjörorð nútímans er meiri hraði, og þess vegna
hafa nú hraðfleygari flugvélar leyst gamia Gullfaxa af hólmi. Þessar nýu flugvélar rúma ekki alveg eins marga farþega
og Skymasterflugvélarnar, en hraðinn bætir það upp, svo að þær geta á hverju ári flutt fleiri farþega landa milli. Nú er
hægt að ferðast héðan til Lundúna á 4 klukkustundum í stað 6 áður og á sama tíma til Óslóar, til Hamborgar á 6
tímum í stað SY2 áður. Það þótti gott á söguöld ef hægt var að sigia fram og aftur milli Islands og Norðurlanda á
einu sumri. Nú fara flugvélarnar þessa leið fram og aftur á einum degi. Menn geta nú skroppið til Kaupmannahafnar
að morgni dags og verið komnir heim að kvöldi. Til samanburðar má geta þess að dagleið er héðan til Akureyrar með
beztu farartækjunum á landi, bilunum. — Þessar tvær nýu flugvélar komu hingað samtímis og er myndin tekin af þeim
við flugskýlið á flugveilinum í Reykjavík rétt eftir að þær voru komnar. (Ljósm. Ól. K. Magnússon).
TALAÐ YFIR MOLDUM
Sigurður prestur Sigurðsson á
Bægisá —jarðsöng eitt sinn bónda, sem
honum hafði þótt tregur að gjalda
presti og kirkju. Þegar hann hafði
kastað moldum á líkið, er mælt að
hann hafi kveðið þessa vísu:
Þú liggur þarna laufagér,
lagður niður í grafar-hver;
ekkert meira ég þyl yfir þér,
þú þrjóskaðist við að gjalda mér.
YRSTU ÁRIN
eftir að landið fekk sjálfsforræði í
peningamálum, var jafnan talsverður
tekjuafgangur á landsreikningnum, um
og yfir 100.000 kr. árlega í mörg ár,
og 1882 var tekjuafgangurinn nær 120
þús. kr. Árið 1884 var Góðtemplara-
reglan stofnuð á íslandi. Það ár nam
brennivínstollurinn 163 þús. kr. Næsta
ár lækkaði hann niður í 118 þús. kr.
og 1886 varð hann ekki nema 80 þús.
kr. og hafði þó verið áætlaður 130 þús.
Af þessu varð tekjuhalli á landsreikn-
ingnum það ár. Má á þessu sjá hve
skjót áhrif bindindisstarfsemin í land-
inu hafði. Það er og athyglisvert að
tóbakstollurinn minkaði jafnframt.
FERJAN í ÓSEYRARNESI
Lögferja hefir lengi verið á Ölfusár-
ósi og er ferjustaðurinn skammt frá
sjó og um 300 faðmar á breidd. Ósinn
er mjóstur fremst, en breikkar mjög
fyrir innan ferjustaðinn. Verður því,
þegar út fellur, og þó miklu fremur
þegar að fellur, fleygistraumUr eftir
miðjum ál árinnar, þó lygnt sé nær
löndum. Bar það því við, að ágreining-
ur varð milli ferjumanns og ferða-
manna út af því hve mikið mætti hlaða
ferjuna, því að ferðamönnum sýndist
vel fært í lygnunni, en ferjumaður
vissi hvernig strengurinn var. Kom
það fyrir, að ferðamenn tóku ráðin
af ferjumanni. Þetta skeði 11. júlí 1800.
Þá kom séra Markús Sigurðsson í
Reynisþingum að ánni, ásamt konu
sinni Sigríði, dóttur séra Jóns Stein-
grímsssonar á Prestbakka, og fleira
fólki. Tók Markús prestur ráðin af
ferjumanni og lét hlaða skipið svo sem
framast var fært á lygnu vatni i land-
vari. Segja menn að konu hans hafi
ekki litist á þetta og hafi prestur borið
hana nauðuga út á ferjuna. En er út
í strenginn kom, sökk skipið og drukkn
-uðu sjö menn, þar á meðal ferjumað-
urinn og prestskonan. Önnur ferja,
sem líka var á leið yfir ána, bjargaði
4 mönnum, þar á meðal var séra
Markús.
GÖMUL VÍSA
Dagurinn líður, dimma fer,
dregst að nóttin svala,
myrkrið gerir mér og þér
marga byltu fala.
t