Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1957, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
303
gerfihnettir
Rákettur og
Verður marmabyggð á gerfihnetti innan 20 ára
KÍNVERJAR fundu upp rákett-
urnar, þessar hvæsandi og eldspú-
andi flaugar, sem farið gátu með
miklum hraða. Ekki hugkvæmdist
þeim þó, að þessi uppgötvun mundi
geta valdið aldahvörfum, heldur
höfðu þeir ráketturnar til gamans
og augnayndis sem flugelda.
Árið 1903 kom út í Rússlandi lít-
ill pési eftir skólakennara í þorp-
inu Kaluga. Hann hét Konstantin
Eduardovitch Ziolkovski. í þessum
pésa hélt hann því fram að hægt
væri að gera stórar rákettur, knúð-
ar fljótandi eldsneyti og að þær
mundu síðar meir geta orðið að
geimförum. Ekki gerði hann neinar
tilraunir í þessa átt og hugmynd
hans var með öllu ókunn utan
Rússlands um tvo tugi ára.
En eftir fyrri heimsstyrjöldina
komu út tvær bækur, sem að
flestra dómi marka upphaf rákettu-
En allt er þetta á byrjunarstigi.
Fimamikil auðævi eru fólgin í
djúpi hafsins. Rætt er um, að smíða
skip af nýrri gerð, er eingöngu er
ætlað að afla þangs. í Miðjarðar-
hafinu og í Mexíkanska flóanum
er þangvinnslan orðin vel skipu-
lögð. Með sérstökum þangplógum
er geta unnið í 40 metra dýpi, er
hægt að ná upp 80 lestum af þangi
á klukkustund. Skozkar þangverk-
verksmiðjur eru afkastamiklar og
beinlínis „rækta“ veiðisvæðin.
Neptúnus gefur margfaldan ávöxt!
Auk hinna geysimiklu auðæva
hafsins, sem fólgin eru í steinefna-
og lífefnasamböndum, má nefna
þann mikla kraft, er skil flóða og
fjöru orsakar — einskonar andar-
aldar. Þær voru skrifaðar sín í
hvorri heimsálfu og vissi hvorugur
höfundurinn um hinn. Önnur bók-
in heitir „A Method of Reaching
Extreme Altitudes“. Höfundur
hennar var amerískur prófessor í
eðlisfræði, Robert H. Goddard að
nafni. Kom sú bók út 1920. Godd-
ard prófessor er nú látinn. — Hin
bókin nefnist „A Rocket into Inter-
planetary Space“ og kom út 1923.
Hún er eftir austurrískan stærð-
fræðing, Hermann Oberth að nafni.
Hann komst síðar til Bandaríkj-
anna og dvelzt þar nú.
Á næstu árum fór svo að komast
skriður á tilraunir með rákettur.
Goddard prófessor hóf tilraunir í
kyrrþey. Fyrsta ráketta hans, sem
knúin var fljótandi eldsneyti, hóf
sig til flugs 16. marz 1926 hjá
Auburn í Massachusetts.
Sumarið 1927 var stofnað í
dráttur hafsins. -Stærstu sjávar-
fallaaflstöð í heimi er nú verið að
reisa við St. Malo-flóann í Frakk-
landi. Franskir verkfræðingar líta
svo á, að orka sjávarfallanna muni
að fáum árum liðnum framleiða
jafn mikla raforku og öll vatns-
orkuver Svía samanlagt.
Allar hrakspár um, að fram-
leiðsla matvæla, orku- og hráefna
í heiminum haldist ekki í hendur
við fólksfjölgunina, ættu að þagna,
þegar þess er gætt, að allur vara-
forðinn er enn svo til ónotaður.
Hafið er stærsta forðabúr heims-
ins og eðlilegast er, að mannfólkið
sæki þangað til fanga.
Haraldur Guðnason þýddi.
Þýzkalandi félag, sem nefndist
„Verein fur Raumschiffart“. Það
hóf tilraunir sínar 1929 og fyrstu
rákettu þess, sem knúin var fljót-
andi efni, var skotið upp í loftið
10. maí 1931, skammt frá Berlín.
í febrúai; sama ár, hafði Johannes
Winkler, fyrsti formaður félagsins,
reynt rákettu, sem hann hafði
sjálfur búið til. En hvorug þess-
ara tilrauna var svo, að af henni
væri státandi.
í Bandaríkjunum var stofnað fé-
lagið „The American Rocket
Society“ í marz 1930. Það er nú
orðið gríðar öflugt félag með fjölda
sérfræðinga í þjónustu sinni.
Fyrstu tilraunir þess voru þær, að
láta rákettur knýa bíla og eim-
vagna og var það mest gert í áróð-
urs skyni. En fyrstu rákettu sinni
skaut það upp í loftið 14. maí 1933,
og fór sú tilraun fram á Staten
Island.
★
Skömmu eftir að þýzka félagið
hóf tilraunir sínar, ákvað þýzka
herstjórnin að láta fara fram rann-
sókn á því, hvort rákettur gæti ekki
orðið þýðingarmikið vopn í hern-
aði. Forusta þeirrar rannsóknar var
falin Walter Dornberger herfor-
ingja, er síðar varð forstjóri til-
raunastöðvarinnar hjá Peene-
munde, en starfar nú hjá Bell-
félaginu í Bandaríkjunum. Hann
valdi sem samstarfsmann sinn ung-
an mann, Werner von Braun, sem
nú er forstjóri tilraunastöðvar
Bandaríkjahers um smíði sjálf-
stýrðra eldflauga, og hefir fundið
upp Redstone eldflaugina, sem
kennd er við Redstone í Huntsville
í Alabama, þar sem tilraunirnar
fara fram.