Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1957, Blaðsíða 6
306
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Helztu tungumál heimsins
FRÓÐUSTU menn hafa komist að
þeirri niðurstöðu, að í heimin-
um sé töluð 2796 tungumál nú sem
stendur, og eru þá mállýzkur eklci
taldar með. En hér með eru talin
1000 tungumál Indíána í Ameríku,
500 tungumál Svertingja í Afríku
og 500 tungumál ýmissa þjóðabrota
í Asíu og á Kyrrahafseyjum. En
þau tungumál, sem töluð eru af
milljón manna, eða meira, munu
tæplega nema 200. Hér fer á eftir
skrá um þau tungumál, sem flestir
tala:
Kínverska.............. 500.000.000
Enska ................. 250.000.000
Hindustani ............ 160.000.000
Rússneska.............. 150.000.000
Spanska................ 120.000.000
Þýzka.................. 100.000.000
Japanska .............. 100.000.000
Franska ................ 80.000.000
Indonesiska ............ 80.000.000
Portúgalska ............ 60.000.000
Bengalska............... 60.000.000
ítalska ................ 60.000.000
Arabiska ............... 50.000.000
Öll önnur tungumál .. 830.000.000
Talið er að nú sé í heiminum um
2500 miljónir manna, og er þá ein-
kennilegt að það skuli aðeins vera
13 tungur, sem talaðar eru af fleiri
en 50 miljónum hver. Síðan er stórt
bil á milli þeirra, og hinna er næst-
ar koma.
Af þessum 13 tungum, er flestir
tala, eru sumar eingöngu bundnar
við heimahagana, svo sem kín-
verska, japanska, bengalska og
indonesiska. En aðrar tungur eru
talaðar um allan heim, eins og
enskan. Hún er útbreiddasta tungu-
málið, og þar næst kemur franska.
Um enskuna er það að segja, að
hana tala 160—170 miljónir manna
í Bandaríkjunum og 15 miljónir
manna í Kanada. í Evrópu tala
hana 50 miljónir manna á Bret-
landseyjum. í Ástralíu og Nýa Sjá-
landi tala hana um 10 miljónir
manna. Svo koma ýmis yfirráða-
svæði Breta og Bandaríkjamanna,
og fyrverandi yfirráðasvæði Breta,
þar sem enska er töluð. Með þessu
móti er talið að enskan sé móður-
mál 250 miljóna manna. En þar
með er ekki öll sagan sögð, því að
enskukunnátta er svo útbreidd
meðal annara þjóða, að talið er að
um 600 miljónir manna geti talað
hana. En það þýðir aftur að með
enskukunnáttu geta menn náð til
fjórða hvers manns á jörðinni.
Þetta kann að þykja orðum auk-
ið, en margt styður þessa niður-
stöðu. Fyrst er þá að geta þess, að
engin tunga er kennd jafn mikið
og enska í öllum löndum heims,
að undan teknum löndunum aust-
an við járntjald. í Evrópu tala að
minnsta kosti 5 miljónir manna
ensku, og aðrar 5 miljónir spönsku-
mælandi og portugölskumælandi
manna í Suður-Ameríku, Mið-
Ameríku og Mexiko, tala ensku
jöfnum höndum. Og í fyrverandi
löndum Breta í Asíu, Indlandi,
Pakistan, Burma og Ceylon, er
ótölulegur fjöldi manna, sem skil-
ur og talar ensku. Meira að segja
er því haldið fram að Indverja
megi telja þriðju í röðinni af
enskumælandi þjóðum.
Franska er töluð af fleirum í
Evrópu en Frökkum einum, því að
hún er móðurmál mikils hluta
belgisku þjóðarinnar og nokkurs
hluta svissnesku þjóðarinnar, og í
báðum þeim löndum hið opinbera
tungumál. Hún er einnig töluð í
ýmsum öðrum löndum Evrópu,
jafnvel fyrir austan járntjald, og
eru það leifar af því er enginn
þótti menntaður maður nema hann
kynni frönsku. í Vesturálfu er
franska töluð í austurhluta
Kanada, Haiti, frönsku Guinea,
Martinique og víðar. í Afríku er
franska opinbert tungumál í
Marokko, Tunis, Algier, frönsku
Vestur Afríku og Mið Afríku og
Madagaskar. Og franska lifir enn
sem nýlendumál í Indókína og á
fjölda eya í Indlandshafi og Kyrra-
hafi. í mörgum stöðum í Vestur-
heimi, Afríku og Asíu, þar sem
rómönsk mál eru töluð, heldur
franskan enn fornu heiðurssæti,
sem mál hinna menntuðu manna,
enda þótt hún fari nú víða halloka
fyrir enskunni. Hægt er því að gera
sig skiljanlegan á frönsku miklu
víðar en flesta grunar.
Spánska er þriðja útbreiddasta
tungumálið. Það er eigi aðeins tal-
að á Spáni, heldur einnig í Ame-
ríku sunnan Bandaríkja. Það er
einnig talað í nokkrum nýlendum,
sem Spánverjar eiga enn í Afríku.
Og spánskan er ákaflega lífseig.
Enn talar nokkur hluti Filipsey-
inga spönsku, enda þótt langt sé
síðan að yfirráðum Spánverja lauk
þar.
Rússneska er aðallega bundin
við heimalandið, en þó breiðist hún
nú óðum út í leppríkjunum. Henni
eru nokkurn veginn glögg takmörk
sett í Austur Evrópu og Síberíu.
En innan þeirra takmarka er sjötti
hlutinn af öllu þurlendi jarðar.
Þýzka er aðalmálið í Mið-
Evrópu. Hún er töluð í Þýzkalandi,
Austurríki og nokkrum hluta Sviss.
Þýzkan er, eins og franskan talin
mál menntamanna, og sérstaklega
þýðingarmikil í ýmsum vísinda-
greinum.
Portúgalska er eigi aðeins þjóð-
tunga Portug*alsmanna, heldur
einnig Brazilíumanna. En Brazilía
er stærri heldur en Bandaríkin og
þar búa 50 miljónir manna, eða um