Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1957, Page 1
24. tbl.
ÁVARP FJALLKONUNNAR
eftir sr. Helga Sveinsson / Hveragerði, flutt af Helgu Valtýs-
dóttur á svölum Alþingishússins 17. júni 7957
Hinn seytjánda júní er algræn hin íslenzka jörð
og ilmandi vorblærinn líður um tún og haga.
í einingu sveipast vort Jand og vor liðna saga
í ljóðræna fegurð og tlgn hinna nóttlausu daga.
Við dönsum við söngvanna hljóm þetta himneska kvöld,
og hjörtu vor slá eins og skáldsins með fagnandi geði,
sem meyjuna forðum leit sólhvíta sofandi á beði
og sór, að sú mynd skyidi ein varða lif hans og gleði.
Er stræti vor fyllast af fagnandi og dansandi sveit,
þá finnst oss hún ennþá í dansi um torgið líða,
biómarós dalsins hin ljóshára, lokkandi og bliða,
leiksystir disa og álfkvenna horfinna tíða.
En gegnum vorn fögnuð vér greinum þó aldanna stríð
og grát þess, er einmana hraktist á vergangsieiðum,
er vogarnir luktust á voldugum hafisbreiðum
og vordagur fólkslns varð úti á fannbörðum heiðum.
Og handan við söng vorn um „tslands þúsund ár“
rís ómur af löngu þögnuðu fótataki
og söng yfir vöggu, er sól var að fjallabaki
og svæft var hið fátæka bam undir lágu þaki.
Og aldrei var vorið og sólskinið þráð eins og þar
sem þorrinn var kaldastur, snjórinn við húsdyrnar mestur
og trúin á guð varð sá engill, sem öllum var beztur.
1 afdalsins mannfæð bjó vetrarlangt himneskur gestur.
Og jafnvel í gegnum rökkrið á reynslunnar tið
rétti vor fegursta þrá sína björtu arma
og ljóðið steig umvafið geislandi gullinbjarma,
sem giitrandi rós upp úr dökkri mold vorra harma.
Þér helgast vor þökk fyrir afrek frá liðinni öld,
hinn örsnauði verndari kotsins i skammdegisbyljum
og sjóhetjan gleymda, sem storkaðir Heijar hyijum,
er holskeflur úthafsins lööruðu á byrðing og þlljum.
Þið fjöimörgu hversdagsins hetjur frá genginni tið,
við heitum að vernda um aldir gegn kúgun og voða
landið, sem ykkur var uppheimur dísa og goða
á alstirndri nótt og í vordagsins morgunroða,
landið, sem ykkur fannst sárast að sofna frá
er sólnóttln breiddi um norðrið sinn gullinlinda,
landið, sem lét ykkur ástir við átthagann binda.
Hið eilífa og stóra var skráð á þess sólgullnu tinda.