Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1957, Blaðsíða 1
XXXII árg.
25. tbl.
Sunnudagur 30. júní 1957
Andrés Björnsson eand. mag.i
HEIMSÓKN til íþöku
LEIÐIN liggur frá Boston vestur
endilangt Massachusettsríki, og
síðdegis er ekið inn í New
York rílti, sem teygir sig frá mjó-
um odda við sjóinn langt vestur,
og alla leið norður til landamæra
Canada að baki strandríkjanna,
Massachusetts og Connecticut. Þeg-
ar komið er inn í New York ríki
er ekið um margar borgir, sem
bera sérkennileg og langsótt nöfn,
og hlýtur einn og sami maður að
hafa skírt þá staði. Fyrst er ekið
gegnum höfuðborg New York rík-
is, sem heitir Albany, en ekki New
York eins og þó mætti ætla. Þá
er farið framhjá Tróju og Uticu og
Syracusu. Ferð minni er heitið til
íþöku, sem liggur nálega miðsvæð-
is í ríkinu frá austri til vesturs,
en suður undir landamærum
Pennsilvaníu. Leið þessi er hin
fegursta í góðu veðri. Skiptast á
skógivaxnir ásar og falleg bænda-
býli. Norðan frá Ontariovatni
liggja löng og mjó dalverpi til suð-
urs, og í dölum þessum eru vötn,
löng og mjó eins og útréttir fing- •
ur og draga þau af því nöfn og eru
kölluð Fingravötn. Við suðurenda Hér er bókasafn
hins austasta af þessum vötnum, Fiskes til húsa.