Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1957, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
359
og þá ekki síður gjafir hans til
Grímseyinga og stuðning hans við
skáklistina þar og annars staðar í
landinu.
Árið eftir að Fiske dvaldist hér
á landi var hann í Evrópu og
kvæntist 1880 í Berlín Jenny Mc
Graw frá íþöku. Hún var heilsu-
veil og lézt ári síðar, í september
1881. Jenny McGraw var auðug
kona, og erfði Fiske eftir hana mik-
ið fé. Deila reis út af arfi milli
Cornellháskóla, sem hún hafði
ánafnað miklu fé, og erfingja henn-
ar. Unnu erfingjarnir mál þetta,
en þó að Fiske stæði ekki framar-
lega í þessari deilu, hvarf hann þó
úr þjónustu Cornellháskólans, en
settist að í Florens á Ítalíu og bjó
þar síðan. Hann andaðist á ferða-
lagi í Frankfurt am Main 17. sept.
1904.
Eftir að Fiske settist að í Florens
hélt hann áfram söfnun íslenzkra
bóka og hafði stöðugt samband við
íslendinga. Einnig safnaði hann
verkum ítölsku skáldanna Petrarca
og Dante, en safn hans af íslenzk-
um bókum var langstærst. Árið
1900 fékk Fiske tvo unga íslend-
inga til Flórens til að skrá safnið.
Voru það þeir Halldór Hermanns-
son frá Velli á Rangárvöllum og
Bjarni Jónsson frá Unnarholti.
Fiske arfleiddi Cornellháskólann
að mestöllum eigum sínum, þar á
meðal hinu íslenzka bókasafni, sem
vera skyldi sérstök stofnun og við
það starfa íslenzkur bókavörður,
borinn og barnfæddur á íslandi og
útskrifaður úr íslenzkum mennta-
skóla. Lagði Fiske með safninu
álitlega fjárfúlgu, og skyldi verja
vöxtum hennar til að greiða laun
bókavarðar svo og til að auka við
safnið nýjum bókum og til fræðslu
um íslenzk efni og bókasafnið
sjálft.
Þó að vel væri um hnúta búið
í upphafi og ríflegt fé lagt til safns-
ins, hafa breytingar á verðlagi og
peningagengi á síðdri árum verið
því mjög í óhag og tæplega unnt
að halda í horfinu, enda hefur líka
íslenzk bókaútgáfa aukizt til muna
frá því sem áður var.
Meðan við dvöldum í safninu í
þetta sinn, var þar aðeins einn
gestur, ungur maður, sem var að
skrifa ritgerð um Egilssögu. En
Jóhann Hannesson kennir nemend-
um við háskólann íslenzka bók-
menntasögu, — að gamni sínu, —
eins og hann orðaði það. Það er
sjálfboðastarf. Hann hafði að mig
minnir um tíu nemendur, og sá eg
hjá honum prófúrlausnir þeirra.
Heppnin hefur verið með Fiske-
safni að því leyti, að þangað hafa
valizt dugmiklir og prýðilega
menntaðir menn. Þegar safnið var
flutt til íþöku eftir lát Fiske, réðst
r
Hér sést yfir hluta af háskólahverfinu í tþöku og er Cayugavatn i baksýn. — I>ess má geta, að margir telja háskóla-
hverfið eitt hið íegursta í Bandaríkjunum.