Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1957, Blaðsíða 4
260
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Halldór Hermannsson þangað sem
bókavörður og vann því allan sinn
etarfsaldur, rúm 40 ár. Liggur eftir
hann mjög mikið og merkilegt
atarf. Hann er sem kunnugt er
ógætur fræðimaður og allra manna
bókvísastur. Gaf hann út full-
komna skrá um Fiskesafn, sem er
alkunnug, enda eina aðgengilega
bókaskrá um íslenzkar bækur
fram undir þennan dag. Auk þessa
gaf hann út og skrifaði ársritið
Islandiea frá 1908—1945, alls þrjá-
tíu og eitt bindi. Eftirmenn hans,
þeir Kristján Karlsson og Jóhann
Hannesson hafa haldið í horfinu
um útgáfu ritsins.
Dr. Halldór Hermannsson býr
enn í íþöku. Hann hefur mótað
Fiskesafn og starfsemi þess öll-
um fremur og skipað því virðu-
legan sess sem vísindastofnun.
Fýsti mig mjög að sjá hann, enda
höfðum við hitzt eitt sinn áður hér
heima. Gengum við Jóhann á fund
hans síðdegis þennan dag. Tók
Halldór okkur tveim höndum.
Hann er nú nokkuð beygður af
langvarandi giktsýki og situr í
hjólastól, en er jafn kempulegur
og síórhöfðinglegur sem fyrr, og
mundi engum dyljast við fyrstu
sýn, að þar er skörungsmaður. Þó
að hann hafi lengst af ævinnar
dvalizt fjarri íslandi, hefur hann
þó mikinn og vakandi áhuga á
málefnum þess, ekki síður samtíð
en fortíð. Þurfti hann margs að
Bpyrja að heiman. Síðan barst tal-
íð að skólaárum hans á íslandi, og
varð honum meðal annars marg-
rætt um sögukennara sinn, Pál
Melsteð, kennslu hans og frábæra
háttvísi.
Langt var liðið á dag, þegar við
kvöddum Halldór Hermannsson.
Tíminn hafði liðið fljótar en varði.
Enn var eftir að skoða betur um-
hverfið. Hlíðamar á dalverpinu,
Bem íþaka liggur í, eru sundur
Framh. á bls. 264
Á flugdaginn var yndislegt veður
og var margt um manninn úti á flug-
velli. Einnig var fjöldi manns á Öskju-
hlíðinni, en þaðan er hið fegursta út-
sýni yfir bæinn, sem kunnugt er. Ól-
afur K. Magnússon, ljósm. Morgun-
blaðsins, tók þessa mynd af öskjuhlið
á liugdagiuiu Er húa aJLbérkeoaiieg
og fyrir þá, sem átta sig ekki strax
á henni, má geta þess, að hún sýnir
loftbelginn milli tveggja hitaveitu-
geyma. Loftbelgurinn vakti talsverða
nthygli, þegar hann rak fyrir vindl
austur i Moffellssveit — börnum og
frimerkjasöfnurum til mikiliar gleði.