Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.1957, Page 16
404
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Skálholt ris úr rústum
Gissur hviti var frumkvöðull þess að kristni var lögtel i Alþingi árið 1000. Sonur hans og Þórdísar systur Skafta
lögsögumanns Þóroddssonar, var ísleifur. Hann stundað ,ám í Saxlandi og varð fyrstur innlendra biskupa hér, vígð-
ur í Bremen 1056. Hann bjó í Skálholti. Eftirmaður '-.ans varð Gissur sonur hans, einhver ágætasti maður, sem uppi
hefir verið á tslandi. Varð hann mjög harmdauði öllum mönnum og segir svo í Hungurvöku: „Svo fell mörgum manni
nær andlát Gissurar biskups, að aldrei gekk úr hug manna meðan þeir lifðu. En það kom ásamt með öllum mönnum,
að hans þóttust aldrei iðgjöld fá. Það hefir og verið allra vitra manna mál, að hann hafi af guðs góðgift og sjálfs sinni
atgjörvi göfgastur maður verið á tslandi, bæði lærðra manna og ólærðra". Gissur biskup gaf ættaróðal sitt, Skál-
holt, til þess að þar skyldi biskupsstóil vera meðan tsland væri byggt. Sátu biskupar þar síðan hver fram af öðrum.
Seinastur þeirra var Hannes Finnsson er andaðist sumarið 1796, og siðan hefir Skálholt verið biskupslaust. En nu e»
endurreist þess hafin. Reist hefir verið biskupssetur og þar er í smíðum mikil og fögur dómkirkja. (Myndin tii vinstri).
— Pragmatisminn
— Huldumannssteinn
Frh. aí bls. 391
reisa norðan við það. Stóri steinn-
inn var rétt á bak við þau. Hann
þótti þar fyrir, svo að helmingur
hans hefir verið sprengdur, og
liggja þar brotin úr honum.
Tönsberg sagði mér að þegar lóð
hænsabúsins var skert, hafi hann
sagt byggingafulltrúa fra steinin-
um og ekki mundi rétt að hrófla
við honum, því að tvívegis hefði
gerzt einkennilegir aíburðir þegar
átti að sprengja hann. Bygginga-
fulltrúi kímdi að þessari bábilju
og var sýnileg. /antrúaðui á mátt
stemsins.
Ég he t tal ■vii' Hauk Þor-
:teinsson, forstjóra Raftækja-
vinnustofunnar í Ármúla 14. Hann
sagði nér, að þeim hefði ekkert
ver; gt iri iteininum þegar þeir
fengi lóðina og fóru að byggja.
Og hann hafði ekkert um hann
heyrt fyr en ég sagði honum fra
því sem gerzt hefir í sambandi við
steininn, en sú aðvörun kom of
seint, því að nú var helmingur
steinsins í brotum. Ekki kvað
Haukur neitt óhapp hafa komið
fyrir þá síðan steinninn var
sprengdur, og vonandi kemur ekk-
ert óhapp fyrir. Svo virðist sem
þeim einum hefnist fyrir er ganga
í berhögg við álög vitandi vits, en
hinir. sem ekki þekkja álögin, verði
ekki fyrir neinu skakkafalli þótt
þeir brjóti þau óafvitandi. Munu
ekki hin sömu dulræðu lög gilda
um þennan stein?
Á. Ó.
r-
Það getur verið þér huggun, að til
eru þúsundir manna, sem ekki kunna
golf á við þig. En þeir eru flestir svo
skynsamir, að leika aldrei golf.
Frh. af bls. 401
örfaði framtak og framfarir. Hinir at-
hafnasömustu og frjálslyndustu forset-
ar Bandaríkjanna Theodore Roosevelt,
Wilson og Franklin D. Roosevelt, voru
allir undir áhrifum Pragmatismans.
Vera má að margir sem trúa fyrst og
fremst á auðsöfnun og veraldargengi,
telji sig hafa fundið þá réttu heim-
speki í Pragmatismanum, en James
sjálfur lagðist þó gegn hvoru tveggja:
„Óttinn við fátækt er hættulegasti sið-
ferðisveikleiki menntamanna. Löngun-
in til að græða fé og óttinn við að
missa það gerir menn blauða og veld-
ur spillingu....Við fyrirlítum þann
sem kýs fátæktina fremur en glata sál
sinni. Ef hann gengur ekki braut auðs-
ins köllum við hann duglausan og
metnaðarlausan“. -■— Þegar á allt er lit-
ið var heimspeki William James drengi
leg tilraun heiðarlegs manns til að
svara þörfum aldarinnar og sjá henni
fyrir stjörnum til að stýra eftir.