Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1957, Blaðsíða 10
414
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
■»
ið þau ðrlög, að hann fær ekki undir
risið.
Fallnar konur á stjái og vanhirt böi
að leik, flest þegar vængstýfð í vifc
muna- og líkamlegu tilliti, dæmd ti
ósigurs áður en á hólminn er komið
og sú er nöturlegust sýn sem hér mæti
auga og ekki til að ljósmynda, end
fyrirbæri jafngamalt mannkyninu o.
allir þekkja, en enginn ræður bót ;
nema í litlu meðan maður skapa
manni örlög og foreldri barni. En ekk
komumst við hjá að leiða hugann að
því, hversu hörmulegt það er að sam-
félög manna skuli ekki verja nægilegu
af mörkum til að bjarga bömum frá
foreldrum, sem fyrirgert hafa, svo ekki
verður um villzt, réttinum til að ráða
íjtíi börnum.
Pigalle, næturklúbbagatan, markað-
ur holdsins, bjarmar við himinn af
ljósaauglýsingum, rauðum, hvítum,
slökknar, bjarmar á ný: Sphinx —
Narcisse — Picalle’s; undarleg kyrrð
í götunni, þröngri, brattri; á báðar
hendur iágar dyr, líkjast hellismunn-
um og í kössum greyptum í litaðan
steinninn lýsandi þriggja vídda nektar-
myndir, og útréttur handleggur borða-
lagður vill nú beina för okkar inn,
það er einn af skárri klúbbunum og
við heyrum í fjarska óminn af gleði-
látum stúlknanna sem hafa ýmislegt
annað til brunns að bera en líkamsfeg-
urðina, geta sungið og dansað til mála-
mynda og hafa nú klæðst gylltum lykli
eða rauðri slaufu til að gleðja augu
karlkynsins, en glaðir gestir lyfta
glösum.
Framh. á bls. 419.