Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1957, Side 1
Rányrkja á Reykjanesskaga
og hvernig nú er byrjað að græða sárin
GULLBRINGUSÝSLA er ein-
kennilegasta sýsla landsins. Hún
nær yfir meginhluta Reykjanes-
skaga, um 60 km á lengd og 16—33
km á breidd. Þessi mikli skagi er
með öllu óbyggilegur nema með
ströndum fram. Hann er mest-
megnis hraunum þakinn. Á allri
strandlengjunni frá Hamarskots-
læk í Hafnarfirði vestur um út á
Garðskaga, þaðan suður á Reykja-
nes og þaðan inn að Krýsivík fell-
ur engin á og enginn lækur til
sjávar. Vötn eru þó nokkur og
tjarnir á skaganum, en hafa ekki
afrennsli til sjávar. Alla úrkomu
gleypa hraunin og kemur vatnið
víða fram í sjávarmáli undan
hraunjaðrinum.
ótal eldstöðvar, gamlar og nýrri,
eru um allan skagann, og frá þeim
hafa hraunflóð runnið í allar áttir.
Upp úr standa nokkur móbergs-
íjöll og horfa yfir hinn storknaða
brimsjó. Hér eru öræfin rétt við
bæardyr höfuðborgarinnar, hrjóst-
ug, úfin og köld í viðmóti, en með
öllum þeim töfrum, sem öræfi búa
yfir, sífelldum breytileik í öllum
tómleikanum, kynjamyndum og
brosandi línum og litum. í auðn-
inni er líf og fegurð, unaðslegar
vinjar í mosaklæddum apalhraun-
um, fjallaloft og dásamleg útsýn
af tindum og fellum.
En skaginn hefir verið gróður-
sælli áður. Mannshöndin hefir um
Reykjanesskagi, eldbrunninn, hraunum þakinn og rúuul fróðrl eftir hamfarir
náttúrunnar og rányrkju mannanna.