Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1957, Blaðsíða 8
460
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Veturseta á Suburheimskautinu
ÞAÐ VAR árið 1928 er Byrd var
að undirbúa för sína til Suður-
skautslandsins, að skátum í Banda-
ríkjunum var gefinn kostur á að
hafa einn mann í þeim leiðangri.
Fór síðan fram samkeppni milii
allra skátafélaganna þar í landi um
valið á þessum eina manni og vildu
allir koma sínum manni að, svo
að um þúsundir skáta var að velja.
Úr þessum hópi var svo vinsað og
voru seinast sex eftir og skyldi
Byrd sjálfur velja milli þeirra.
Hann valdi 19 ára gamlan pilt,
Paul A. Siple frá Pennsylvaníu, og
hann sá aldrei eftir því. Var Siple
með honum æ síðan á suðurferð-
um hans. Og þegar Byrd átti að
taka ákvörðun um, hver skyldi for-
ingi fyrstu vetursetumannanna á
Suðurpólnum, þá var hann ekki í
neinum vafa um hver hæfastur
væri til þess allra manna. Það var
Paul Siple. Og að áeggjan Byrds
tókst Siple þennan vanda á hend-
ur.
Með seinustu ferð frá Suðurpóln-
um, rétt áður en veturinn lagðist
þar að, sendi Siple frásögn um
hvernig allt hefði gengið fram að
þeim tíma, hvernig þeir hefði búið
um sig undir veturinn og hvaða
verkefni væri fyrir höndum. Hann
hafði talað þetta á segulband og
síðan birtist það í „The National
Geographic Magazine“. Mun marg-
an fýsa hér, eins og annars staðar
að fá fréttir af fyrstu manna-
byggðinni á sjálfu Suðurskautinu.
Er því birtur hér útdráttur úr
greininni.
FRÁSÖGN DR. SIPLE
Skömmu eftir að eg tala þessi
orð inn á segulband hér á Suður-
I FYRSTA skipti hafa menn haft vetursetu á heimsenda, sjálfu Suð-
urheimskautinu. Það eru amerískir vísindamenn, undir forustu dr.
Paul A. Siple. Eftir þriggja ára undirbúning, sem hinn frægi pólfari,
Richard E. Byrd, sá að mestu leyti um, var bækistöðin á Suðurpóln-
um tilbúin í janúar s. 1. Þá fluttust vetursetumenninrir þangað. Miðs-
vetrarnóttin er þar 21. júní. þegar hér er lengstur dagur. — Suður-
skautslandið er hér um bil helmingi stærra en Bandaríkin Þar hafa
nú tíu þjóðir 44 rannsókna it.öðvar vegna jarðeðlisfræðaársins.
Þessi mynd
var tekin 1928
þegar nítján
ára piltur,
Paul A. Siple,
kom á fund
Richards E.
Byrds aðmirals
i fyrsta sinn.
Þessi stund var
upphaf 30 ára
órjúfandi
vináttu.
heimskautinu, mun sumarsólin
hverfa.
Mánuðum saman hefir hún nú
verið á lofti, jafnt um hádag sem
miðnætti. Nú kemur hún rétt upp
fyrir sjóndeildarhringinn og veld-