Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1957, Qupperneq 14
466
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Úr ríki náttúrunnar
Huliðslitir dýranna
FJÖLDI dýra líkist svo umhverfi
sínu á litinn, að ekki er gott að
greina þar á milli. Þetta hefir verið
talið bera vott um aðhæfni lifandi
vera, og hafi þau tekið á sig þessa
huliðsliti til þess að verjast óvin-
um sínum. Með því að vera sem
allra líkust umhverfinu á litinn,
hafi þau skapað sér vörn í lífsbar-
áttunni, þannig að óvinir þeirra
komi síðar auga á þau. Þessi var
kenning Darwins.
Með þessu er gert ráð fyrir þvi,
að öll dýr sjái liti eins og maður-
inn sér þá. Hér er miðað við sjón
mannsins og hvernig þessir huliðs-
litir villa um fyrir honum. En því
fer mjög fjarri, að sjónin sé eins
hjá öllum dýrum. Það þykir nú
meira að segja fullsannað, að hin
æðri dýr, spendýrin, greini liti á
mjög mismunandi hátt. Getur hér
því alls ekki verið um algilda reglu
að ræða, að þessu leyti. Á hitt ber
einnig að líta, að huliðslitir koma
að engu haldi í myrkri. En nú er
það mikill fjöldi rándýra, sem veið-
ir um nætur og fer þá eftir heym
og þefnæmi. Dýrunum, sem þau
veiða, er þá ekki neitt hald í hul-
iðslitunum.
Að vísu er það rétt um sum dýr,
að liturinn er þeim til varnar, og
er rjúpan þar nærtækasta dæmið,
því að hún tekur á sig búning eftir
árstíðum. En með jafn miklum rétti
mætti þá segja, að huliðslitir rán-
dýra, sem veiða í björtu, sé til þess
að þau sjáist síður og eigi því hæg-
ar með að komast í ^æri við bráð
sína.
Væri nú litir dýranna komnir af
aðhæfnishæfileika þeirra, þá
skyldi maður ætla, að fuglar þeir
sem lifa í skógum, væri allir græn-
ir, svo að litur þeirra væri í sam-
ræmi við lauflitinn, En svo er
ekki. Það eru varla til nokkrir
grænir fuglar nema páfagaukar.
Litbrigðin og litskrúðið er því
ekki eingöngu til þess að dyljast
og hljóta þar að koma til greina
enn íleiri ástæður. Og þá verður
það fyrst fyrir, að kynlífið ræður
hér miklu um, þetta sem vér köll-
um að ganga í augun. Hér á landi
verður sú staðreynd ljósust af lit-
skrúði fuglanna. Karlfuglinn er
venjulega miklu skrautlegri heldur
en kvenfuglinn. Tökum t. d. græn-
höfðann, með öllu sínu litaprjáli.
Hann hefir ekki tekið það á sig
til þess að dyljast, heldur til þess
að ganga í augun á öndinni. Hitt
er svo annað mál, að öndin hefir
á sér það litgerfi, sem bezt fellur
við umhverfið þar sem hún gerir
sér hreiður og liggur á eggjunum.
Hennar litur er því sýnilega huliðs-
litur, sem á að varna því að hún
sjáist í hreiðrinu. Svo er um marga
aðra fugla, að þeir velja sér hreið-
urstað einmitt þar sem litir jarðar
eru líkastir lit þeirra, svo að þeir
bera ekki af.
En nú eru til margar fuglateg-
undir, sem ekki hafa tekið á sig
huliðslit í samræmi við umhverfið.
Þar má nefna tvær tegundir, sem
hvert mannsbarn þekkir, svaninn
og kríuna. Höfðu þessjr fuglar ekki
í sér hæfileikann til þess að breyta
lit sínum í samræmi við umhverf-
ið? Eða hafa hér ráðið einhverjar
aðrar ástæður? Um kríuna gæti
maður hugsað sér að þessi litur
hentaði henni betur, en þótt hún
tæki á sig jarðarliti. Hún lifir á
veiðum, leitar uppi smásíli í vötn-
um og sjó og hnitmiðar sig yfir
þeim áður en hún steypir sér til
þess að hremma þau. Hvíti liturinn
\
getur þá verið henni huliðslitur,
svo að sílin, sem horfa mót birt-
unni, sjái hana ekki.
Þessi getgáta styrkist við það,
að flestir fiskar eru Ijósir á kviðn-
um, en dökkir á baki. Dökki litur-
inn á bakinu er þeim huliðslitur
þegar horft er á þá ofan frá, en
hvíti liturinn er þeim huliðslitur
þegar horft er á þá neðan frá, upp
á móti birtunni.
ísleifur Císlason:
Lausavísur
AFTURFÖR
Hrakar bæði heyrn og sjón,
sem hafa starfi skilað.
Heilsu minni tel eg tjón
að toppstykkið er bilað.
GIN OG KLAUFAVEIKI
Á FLÖSKUM
Einn fyrir sunnan á eg vin,
áfengi sá geymdi í tösku.
Þessi maður gaf mér Gin,
en Guddu klaufaveikiflösku.
GUDDA RAULAR
Mörgum eykur mótlæti
mæðuveiki og botnlangi.
Enginn friður er hér meir,
upp og niður skera þeir.
VANSKÖPUÐ PÓLITtK
(Sex framboðslistar).
Alltaf þetta illa vex
okkar þjóð til skaðsemi.
Eru þeir nú orðnir sex
útlimir á tikinni.
NAFNGÁTA
Upp í sveit eg eina sá
ástagjarna og fyrirtak.
Fögur heitir faldagná
fastastjarna og koníak.
(Sólveig).