Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Qupperneq 6
474 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Enginn hverfur ENN ÞANN DAG í dag er ekki horfið eftirskinið frá ævi manns- ins, sem fyrstur varð til þess að greftra vini sína og vernda and- lit þeirra með því að hreykja tveim hellum yfir þau; ekki held- ur skinið frá ævi mannsins, sem varð fyrstur til að banna börn- um sínum að drepa náungann. né heldur frá ævi hins, sem fyrstur allra ákvað, að særðum mönnum og ósjálfbjarga, er ekki gátu farið á veiðar, skyldi séð fyrir fæði og þeir ekki látnir deyja. Eftirskinið frá jarðvist þessara manna varir enn og er nú ef til vill enn þá verulegra en fyrst, þegar þeir létu á sér bera í þessum heimi. Ljósið frá ævi Móse, Búddha, Konfúsiusar, Lao Tse og Krists hefir sennilega meiri áhrif á mann kynið í dag, en þegar þeir voru að hugsa um hamingju þess og örlög. Enginn maður hverfur að fullu og öllu, ef hann kappkost- ar að gera það, sem gott er, og væntir sér engra launa nema gleðinnar yfir því að hafa stuðl- að að þroska mannkyns. Skyn- semisviðleitni vor, öll vísindi vor, stoða ekki ef þau leiða ekki tii aukinnar sjálfsþekkingar, til skilnings á tilgangi lífsins og kröfum þeim, sem fólgnar eru innra með oss. (Stefnumark mannkyns). við nokkru af umferðinni, og létta þannig á flugvellinum í Lundún- um. Bandaríkjamenn óttast að aukin umferð í lofti, meiri flughraði og aukið flug í dimmviðri, muni brátt valda árekstrum í lofti og þar með stórslysum. Árið 1956 fluttu áætl- unarflugvélar þar innanlands 46 milljónir farþega og fórust þá 143 menn. En þess ber að gæta að 117 þeirra fórust í einu slysi, þegar tvær flugvélar rákust saman í lofti yfir Grand Canyon í Coloradoríki, Sést á því hve slysahættan vex stórkostlega um leið og áreksturs- hættan eykst. Þrátt fyrir þetta mikla slys varð þó dánartalan af flugslysum það ár ekki nema 0.62 á hverjar milljón „farþegamíl- ur“. Sést á því hvað flugferðir eru orðnar öruggar að öðru leyti. Og geta má þess, að ekkert einasta slys henti þær flugvélar, sem voru í ferðum yfir úthöfin. Bæði Bandaríkjamenn og Bretar telja, að nauðsyn beri til þess að útbúa flugvélar með enn betri ör- yggistækjum en verið hefir hingað til, og þá sérstaklega flugvélar, sem eru á sömu leiðum, verði útbúnar samskonar tækjum, svo að þær geti alltaf haft samband sín á milli. Það mundi geta orðið til þess, að fjölga mætti ferðum á flugleiðunum, þannig að styttra yrði milli flug- vélanna. Þetta mundi og spara leiðbeiningastöðvum flugvallanna mikla fyrirhöfn, því að flugvélarn- ar þyrftu þá ekki leiðbeininga frá þeim fyr en að flugvöllunum væri komið. Nákvæmari og betri sigl- ingatæki þurfi einnig, svo að flug- vélarnar geti farið nákvæmlega þá stefnu, sem þeim hefir verið ætluð. svo að ekki geti skakkað meira á stefnunni en svo sem 10 sjómílum, þegar flogið er yfir úthaf, hvernig sem veður er. Þá er og talið nauð- synlegt að útbúa flugvélar með svo sterkum ratsjám, að þær geti séð hver til annarrar nógu snemma til þess að víkja úr vegi og forðast árekstur. Ennfremur þurfi að setja í flugvélarnar sjálfvirk tæki, er reikni út jafnharðan hvar þær eru staddar og geri þannig starf sigl- ingafræðingsins miklu auðveldara. Það tekur auðvitað tíma að fram- leiða öll þessi tæki og koma þeim fyrir í flugvélunum, en þá má líka fjölga ferðum á öllum flugleiðum. Gamall piparsveinn var að tala um matreiðslu: — Einu sinni fékk ég mér matreiðslu- bók og ætlaði að læra af henni. En ég hafði ekkert gagn af henni, vegna þess að hver leiðbeining hófst með þessum orðum: Takið hreinan disk — Alagabletfir Slys á Ingjaldssandi í HANDRITASAFNI Magnúsar Hj. Magnússonar, Lbs. 2235, 4to, er eftirfarandi frásögn: „Sums staðar eru landsblettir, er einhver óhappa álög fylgja. Sé þar hrís eða lyng, má ekki rífa það, og sé þar gras, má ekki slá það. Ef slíkt er gert, koma jafnan einhver óhöpp fyrir. Tveir slíkir blettir eru á Ingjalds -sandi í Villingadalslandi; eru þeir fyrir handan læk, er rennur ofan svonefnda Kattarlág. Er gömul sögn að hafi Villingadalsbóndi slegið bletti þessa, er nefndir eru Álagablettir, hafi hann annað hvort misst nokkuð af kindunum mjög hrapallega, eða þá einhverja kúna, og þá ekki þá lökustu. Fyrir og um 1886 bjó bóndi sá á Villingadal, er Jón hét Jónsson frá Sæbóli á Ingjaldssandi. Kona hans var Sveinfríður Sigmunds- dóttir frá Hrauni á Ingjaldssandi, er seinna giftist Jóni stýrimanni Bjarnasyni frá Arnarnesi í Dýra- firði.... Jón bóndi Jónsson var lítt trú- aður á ýmsar fornar sögur, og hugði því ekki saka, þó hann brygði af gamalli venju með ýmis- legt er þar að laut. Það var því þetta sumar (1886), að hann sló Álagablettina í Kattarlág og hirti heyið; spáði margur að það mundi ekki góðri lukku stýra, og varð það áhrínsspá......“ Hinn 20. desember um veturinn tók snjóflóð Jón bónda, þar sem hann stóð yfir fé sínu uppi í fjalli, og fórst hann þar. Fjórir menn fóru að leita hans, en snjóflóð tók þá líka og fórust tveir þeirra, en hinn þriðji slasaðist mjög mikið. (Sjá frásögn um þetta slys í Les- bók 31. marz 1957.)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.