Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Qupperneq 8
476 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS LAFAYETIE Tvöhundruð S U Ð U R í miðju Frakklandi er Auvergne-hérað. Það er hálent og eldbrunnið, með háum klettum, djúpum dölum og gínandi gljúfr- um,fossandi ám, silungslækjum og heitum laugum. Það er fremur hrjóstugt og næturfrost koma þar oft snemma og eyðileggja upp- skeru. Fólk þar er því yfirleitt fá- tækt og verður að vinna hörðum höndum myrkranna á milli. Nýi tíminn hefir enn eigi sett sitt mark á þetta hérað né fólkið, sem þar á heima. Við ár og læki má líta konur liggjandi á hnján- um við að þvo stórþvott undir ber- um himni. Upp til fjallanna sitja hirðar enn yfir fé árið um kring. Kýr eru hafðar í seljum upp til fjalla og þar eru gerðir ostar úr mjólkinni, eins og fyrir hundruð- um ára. Á ökrum má enn sjá bænd- ur með tréplóga og uxa fyrir. Á heimilunum situr kvenfólk við að knippla í höndunum og vill ekki sjá kniplingavélarnar, sem afkasta mörgum sinnum meira. Á einum stað er pappírsverksmiðja, sem staríað hefir síðan á krossferða- tímabilinu. Þar er pappírinn fram- leiddur í höndunum og eru afköstin 400 arkir á dag. Um allt landið má líta gamlar kastalaborgir, sem tylt hefir ver- ið á hæstu hnúka og kletta. Þessir kastalar voru upphaflega reistir í varnarskyni, þegar enginn var ó- hultur um sig né eignir sínar. Nú eru þeir flestir í rústum. Á 280 feta háum kletti eða stapa, sem rís nær lóðrétt inni í miðjum bænum Le Puy, stendur kapella, sem reist ara minning var á 11. öld. Upp í hana verður ekki komist nema eftir þrepum, sem höggvin hafa verið í snarbratt- an klettinn. Skammt þaðan er ann- ar klettur meiri um sig og efst á honum stendur líkneskja af Maríu mey. Hún var steypt úr 213 rúss- neskum fallbyssum sem teknar voru herfangi í Sevastopol í Krím- stríðinu. Myndastyttan er hol að innan og má ganga alveg upp í höf- uð hennar. — ---o--- Sunnarlega í héraðinu og svo sem miðja vegu milli Parísar og Marseille, stendur gömul höll með tveimur turnum. Hún heitir Chate au Chavaniac. Fyrir 200 árum fæddist þar í vesturturninum (6 september 1757) Marie Joseph Paui Yves Roch Gilbert du Motier de La Fayette. Foreldrar hans voru hinn voldugi aðalsmaður Michel Louis Christophe Rock Gilbert du Motier, greifi de la Fayette, barón de Viss- ac, eigandi St. Romain og annara staða, og hin hágöfuga kona hans Marie Louise Julie de la Riviere. Þegar sveinninn var tveggja ára féll faðir hans í orrustu og erfði hann þá alla titlana. En 33 ára að aldri afsalaði hann sér þeim öllum og kallaði sig upp frá því aðeins Lafayette. Það nafn er dregið að „Villa Faia“, en svo var nefndur bústaður sem forfeður hans áttu um það leyti er kristni var lögtek- in á íslandi. Lafayette missti móður sína þeg- ar hann var átta ára, en þegar hann var 13 ára erfði hann afa sinn „Eg færi yður tákn“. — Líkneskja Lafayette í Le Puy. og varð þá einhver ríkasti ungur maður í Frakklandi. Hann fór þá í herskóla og þaðan var hann send- ur til Metz og gerður að undirfor- ingja í setuliðinu þar. Þegar Lafayette var á 16. árinu kvæntist hann 14 ára gamalli stúlku, Marie Adrienne Francoise d’Ayen de Noailles, sem var af ein- hverri valdamestu ætt í Frakk- landi. Þau ungu hjónin fluttust þá til konungshirðarinnar í Versölum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.