Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Blaðsíða 14
482 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hann. Þegar þú kemur upp að klett- unum muntu sjá hvað eg á við. Eg íór, en hann stóð þar eftir á öðr- um fæti. Nú var sól gengin til viðar, en tungl- ið kom upp í fyllingu, bjart og fag- urt og laugaði landið í ólýsanlega fag- urri bitu. Eg sá að ekki var mjög langt upp að klettunum, svo að eg fór mér hægt og beið þess að fullrar birtu nyti af tunglinu. Þegar út úr skóginum kom, tók við allbrött brekka, svo að eg kastaði byss- unni á bak mér til þess að eiga hægar um gang. Þegar eg kom upp að klett- unum hallaðist eg upp að þeim til þess að blása mæðinni. Veður var kyrrt og mér hnykkti því við er eg heyrði eins og þrumu í fjarska. Eg hlustaði til þess að vita hvað þetta gæti verið. Þar kom það aftur, hærra en fyrr. Og nú heyrði eg glöggt að þetta voru drunur í ljóni Eg faldi mig í klettasprungu og þorði varla að draga andann. Þarna sá eg það úti í háu grasinu, lubbalegan makka. Fyrst í stað helt eg að ljónið væri á leiðinni til mín, tók byssuna af öxlinni og spennti hana. En þetta var missýning. Um 50 metra frá okkur var ungur hjörtur á beit. — Nú, þú ert þá svona, gamli þrym- ur, hugsaði eg með mér. Þú lætur þér ekki nægja að drepa fé fyrir hvítum bónda, heldur ofsækir þú einnig friðuð skógardýrin. Ljónið mjakaðist áfram og steig svo fislétt til jarðar að ekki heyrðist fóta- tak þess. En það skrjáfaði í stinnu gras- inu, er það straukst við búkinn. Hjört- urinn heyrði þetta, lyfti höfðinu og hljóp svo nokkurn spöl, þá sneri hann sér við til að athuga hvaðan þetta hljóð kæmi, en Ijónið lagðist þá niður og lét ekki á sér bæra. í sama bili heyrði eg líkt og skrækt mjálm, eins og í ketti, sem vill komast út. Eg gægðist þá hærra yfir bergbrún- ina til að vita hvað þetta væri. Út úr skógarrunna skammt þaðan kom ljónynja. Hún var sýnilega orð- in gömul, enda þótt hún hefði nokkra hvolpa með sér. Það voru sennilega seinustu hvolparnir, sem hún gat eign- ast um ævina. Gamla ljónið mjakaði sér nokkuð aftur á bak, stóð svo upp og gekk til hennar. Hún leit upp, tunglið skein beint framan í hana og þá sá eg enn betur hve ellileg hún var. Hann haltraði til hennar og nuddaði blíð- lega vanganum við vanga hennar. Og *vo sleikti hann hana af mestu við- » i kvæmni, eins og hann vildi segja henni að hann mundi brátt ná í kvöldmat handa þeim. Hjörturinn mun hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert væri að óttast, því að nú snéri hann aftur á fyrra stað. þar sem var iðgrænn grastoppur, og tók að bíta. Ljónið haltraði á stað i áttina til hans, og hjörturinn var í þann veginn að stökkva á stað aftur, en þá sendi eg honum byssukúlu rétt aft- an við bóginn. Þegar ljónin heyrðu skothvellinn, tóku þau sprettinn til fylgsnis sins í klettunum. Þau vissu vel að hætta var á ferðum. Leið svo löng stund að eg sá þau ekki. En þau voru bæði svöng og svo voru hvolparnir — um þá þurfti að hugsa. Og gamla ljónið vissi, að hjörturinn hafði fallið, og þar sem betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi, þá áræddi það að leggja á stað. Gekk það fyrst dálítinn spöl og staðnæmdist svo. Ekk- ert skeði, og þá stökk það beint á hjört- inn, greip með tönnunum í herðakamb- inn á honum og æílaði að bera hann. En hjörturinn var of þungur. Ljónið varð að draga hann, alveg eins og það hafði dregið kálf og sauð hvíta manns- ins, sem hjarðmaðurinn hafði leyft því að drepa. Að lokum komst ljónið með skrokkinn alla leið þangað sem Ijón- ynjan beið undir klettunum. Þar lagði það bráðina að fótum hennar. Hún reif í sig beztu bitana, en á eftir hirti hann það, sem hún vildi ekki. Það hefði verið hægðarleikur fyrir mig að skjóta þau bæði, en slík hugsun hvarflaði ekki að mér. Eg hugsaði um það, að þau væri orðin gömul eins og eg. Flestum finnst það ódrengskapar- bragð að skjóta ung dýrahjón, en mér fannst sem það mundi þó vera enn verra að skjóta þessi gömlu hjón, sem unnust svo heitt. Eg laumaðist niður hlíðina, í gegn um skóginn og þangað sem Masai hjarð- maðurinn stóð enn á öðrum fæti og góndi upp í loftið. — Eg heyrði skot, Bwana. Þú hefir vonandi ekki gert það? — Neit eg gerði það ekki, sagði eg. En eg skaut í matinn handa þeim. Þá brosti hjarðmaður breiðu brosi og mælti. — Eg vissi það að við þekkjum báðir Afríku. Það er sorglegt að aðrir skuli ekkí þekkja hana líka. Svo gekk hann nær mér og hvíslaði: — Á morgun ætla eg að ná í nokkra ♦ Fyrirheit komma uppfyllir auðvaldið VIÐ SEINUSTU kosningar í Bandaríkjunum kom í ljós, að jafn- aðarmenn og kommúnistar hafa misst svo fylgi, að þeir eru orðn- ir að gjörsamlega áhrifalausum minnihluta, og hafa enga minnstu von um að geta náð völdum á lýð- ræðislegan hátt. Aðalorsökin til þessa er sú, að hin „réttláta" skift- ing þjóðarauðsins, sem Karl Marx boðaði, hefir þegar verið fram- kvæmd af auðvaldsskipulaginu í Bandaríkjunum. En eftir 30 ár eru Sovjetríkin enn fjær því að koma slíkri skiftingu á, heldur en í upp- hafi. Amerískur hagfræðingur skýrði þetta nýlega í stuttu máli, en þó svo greinilega að hver maður get- ur skilið. Hann segir: — í Rússlandi fá lægst launuðu verkamenn um 25 dollara á mán- uði, en faglærðir verkamenn, menntamenn, sérfræðingar og for- stjórar fá 1000—2000 dollara kaup á mánuði. Þúsund dollarar á mán- uði er 40 sinnum hærri laun en verkamenn fá, og 2000 dollara laun á mánuði er 80 sinnum hærri en laun verkamanns. Lægst launuðu verkamenn í Bandaríkjunum fá um 200 dollara kaup á mánuði. Fertugföld sú upp- hæð er 8000 dollarar og áttugföld 16.000 dollarar. Með 8000 dollara kaupi á mánuði, ætti þá árskaupið að verða um milljón dollara. Hve margir hafa slíkar tekjur? 50.000 menn af þjóðflokki mínum, og við skul- um reka fjölskyldu ljónanna yfir á land einhvers annars, þar sem hún getur verið um hríð. (Eftir Aubrey Wilson).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.