Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1957, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
495
Vindlingarnir sem við reykjum
tunnubotn með rauðgulu hári
hrokknu. Eigi sáust hendur, nema
líkt handleggjum til alnboga, en
brjóst afar mikil. Sýndist honum
sem holdslitur á vera. Sá hann og
til alls andlitsskapnaðar, en allt
ógurlega stórvaxið. En þá er Pét-
ur var sigldur eigi alllangt urn
fram, seig skrímsl þetta allhóglega
í sjó. Ætlaði Pétur það margýgi
(hafgúu) verið hafa. Eigi heyrðu
þeir neitt í henni láta, en líkast
að hún sneri sér við að gæta
þeirra. —
En skáldlegast er þjóðsagan um
að selir geti kastað hömum sín-
um og orðið að mönnum. Maður
fór til jólatíða og átti leið seint
um kvöldið meðfram sjó. Hann
heyrði í helli fyrir ofan sig glaum
og dansleik og gleði, og sá hann
þá hvar lágu á ströndinni margir
selahamir. Hann tók þann minnsta
og stakk honum milli klæða sér.
Þá varð ys og þys og tók hver sinn
selsham og fór í sjóinn, nema ein
stúlka stóð eftir. Hann gat hand-
samað hana og fór með hana heim
og giftist henni. Bjuggu þau saman
í 12 ár. En alla þessa stund sást
selur synda þar fyrir framan, það
var bóndi konunnar í sjónum. Loks
náði hún 1 ham sinn og rauk nið-
ur að sjó. Kom þá hik á hana og
kvað hún:
Mér er um og ó,
af ást minni stendur vandi:
eg á sjö börn í sjó
og sjö á landi.
Þó varð eðlishvötin sterkari og
hún steypti sér í sjóinn.
-----o----
Saga þessi sýnir, að menn hafa
haft eitthvert hugboð um, að sam-
band mundi vera milli mannvera í
sjó og selanna, enda þykjast menn
nú vita með vissu að svo hafi ver-
ið. Ekki munu uppspuni allar sög-
urnar um það, að menn hafi þózt
KRABB AMEIN SSÉRFRÆÐIN G-
URINN dr. Ernest Wynder, sem
hingað kom í sumar, hefir sagt um
sígarettu-reykingar: „Því minna
sem er af tjöru í reyknum, þvi
minni hætta er á að menn fái
lungnakrabba af reykingum“. En
dr. Dorothy Poth við Mayo-stofn-
unina, hefir sagt um eitrið (niko-
tin) í sígarettum: „Svo virðist, sem
eitrið í sígarettunum verði að
minka um 60%, til þess að nokkuð
dragi úr óhollum áhrifum þess á
blóðrásina (aukinn hjartslátt, auk-
inn blóðþrýsting o. s. frv.)“.
Það er því athugunarvert, hve
mikið er af tjöru og nikotin 1
reyknum úr þeim sígarettum, sem
seljast mest hér á landi. Samkvæmt
efnagreiningu, sem fór fram vest-
anhafs, eru tölurnar þessar; og er
þá talið í milligrömmum í hverri
venjulegri sigarettu:
Tegund: Tjara. Nikotin.
Philip Morris .... 35,3 2,4
Chesterfield .. .... 32,7 2,4
Lucky Strike .... 31,5 2,1
Kool 31,3 2,4
Camel 31,0 2,8
Old Gold .... .... 30,9 2,4
sjá mannlegar verur í sjónum, en
missýningar einar hafa það verið.
Er nú talið fullvíst, að margýgur
þær, er sáust í suðurhöfum, hafi
verið sækýr og selir. í tímariti
Bókmenntafélagsins 1900 og 1901,
er grein eftir Ólaf Davíðsson um
íslenzkar kynjaverur í sjó og vötn-
um. Þar segir hann að enginn vafi
sé á því, að hafstramburinn hafi
verið stór kolkrabbi, hafmennirnir
hafi flestir verið selir, en sækon-
urnar hafi verið kolkrabbar.
Árið 1953 kom mikill afturkipp-
ur í sígarettureykingar í Banda-
ríkjunum vegna þess að læknar
bentu þá á hve hættulegar þær
væri, sérstaklega vegna þess að
lungnakrabbi mundi aðallega stafa
af reykingum. En þá fundu fram-
leiðendur upp á því að búa til síga-
rettur með munnstykki og síu í því,
er átti að hreinsa tjöruna úr reykn-
um. Þessar síu-sígarettur ryðja sér
nú óðum til rúms, og eru fjórar
tegundir þeirra mest reyktar vest-
anhafs. Til samanburðar við hinar
venjulegu sígarettur er þá fróðlegt
að athuga hve mikið er af tjöru og
nikotin í reyknum úr þessum siga-
rettum, og er þá stuðst við sömu
skýrslu og áður:
Tegund: Tjara. Nikotin.
L&M ... 38,5 3,1
Hit Parade ... ... 36,3 2,8
Mariboro ... 34,4 2,4
Winston ... 32,6 2,6
Samkvæmt þessu eru síu-síga-
retturnar enn hættulegri en þær
gömiu. Hvernig stendur á því?
Þegar fyrstu síu-sígaretturnar
komu á markaðinn, fannst reyk-
ingamönnum sem þær væri bragð-
lausar, og salan var dræm. Þá
fundu verksmiðjurnar upp á því
að hafa í þeim sterkara og verra
tóbak, en áður var notað, til þess
að auka bragðið. Sagt er og að
sumir hafi gert síumar lélegri, svo
að þær hleyptu bragðmeiri reyk í
gegn. Afleiðingin hefir orðið sú, að
síu-sígaretturnar eru hættulegri en
gömlu sígaretturnar, en fólk reyk-
ir þær í þeirri trú, að þær séu
hættulausar.
Þess ber að geta, að í reyknura
úr nokkrum síu-sígarettum er
minna af tjöru og nikotin heldur