Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1957, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1957, Page 1
Skipbrotsmaður verður fyrir miskunnarlausri meðferð ÞAÐ var mánudaginn 11. sept. 1730 að Grímseyingar reru til fiska eftir vanda. Formaður á ein- um bátnum var Jón Jónsson bóndi í Syðri Grenivík og voru fimm hásetar á skipi með honum, en ekki eru þeir nafngreindir. Jón var talinn einhver fremsti bóndi í eynni á sínum tíma og segir Espó- lín að hann hafi verið maður „knár og liðgóður". Snemma mun hafa verið róið og sennilega hafa menn ekki haft neitt nesti með sér, það var ekki siður á þeim árum, heldur munu þeir hafa gleypt einhvern matarbita áður en þeir fóru. Bátur Jóns var sexæringur. Var hann með seglaútbúnaði og árum, en árarnar voru grannar og lítil- fjörlegar. Allir munu þeir hafa verið í skinnklæðum að nafninu. Áttavita höfðu þeir ekki, enda var ekki siður þá að hafa slíkt á- hald í bátum. Loft var þungbúið er þeir lögðu á stað. Reru þeir síðan norður og vestur frá eynni og er þeir voru komnir til miða, lentu þeir þegar í fiski. Um sama leyti skall á þá þreifandi þoka og skeyttu þeir því ekki um hríð. En er þeir ætluðu að halda til lands, voru þeir ramm- villtir og vissu ekki hvar þeir fóru. Síðan tók að hvessa og gerði brátt stórviðri af norðaustri, svo ekki var um annað að gera en hleypa undan upp á líf og dauða. Hrökt- ust þeir þarna í dimmviðri og stormi allan daginn og alla næstu nótt og voru þá orðnir mjög þjak- aðir af hungri, vosbúð og kulda. Um morguninn sáu þeir land og voru þeir komnir nærri því. Gekk þar nes nokkurt fram í sjóinn og voru þeir komnir innanhallt við það. Norðan við nesið sáu þeir tvo báta í fjöru og virtist þeim sem þar mundi helzt að leita landtöku. En svo máttfarnir voru þeir, að þeim tókst ekki að berja fyrir nesið. Bar svo bátinn upp á boða og hvolfdi * t

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.