Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1957, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
587
œóhuótö&i
uum
Ég kom og sá aS sumt var orffiS brevtt,
en svipurinn í heild sem áður fyrr:
nes og hólmar grænum gróðri skreytt
og gömlu fjöllin stóðu ennþá kyrr.
Hólbarðið, þar áður áttl eg bú
og æskuleiki framdi glaðri lund,
er horfið burt. Þar blasti við mér nú
blómleg, ræktuð töðuvallargrund.
Margt var þó, sem minnti á fyrri tíð:
melurinn og lækjargilið fritt
með brekku- og hvamma- blómaskreyttri hlíff,
er brosti sumargeislaflóði skrýtt.
Við lækjarhörpu og ljúfan áarnið,
er létt að una í sælum vökudraum
og sælt að láta hugann finna frið,
f jarlægan öllum dægurmálaglaum.
Eiríksjökull, ennið bjarta þitt
er ímynd þess, er hreinast finnst á jörð.
Stolti Ás, ég hneigi höfuð mitt
og hátign þinni færi þakkargjörð.
Æskuból, mig fýsti á þinn fund,
föðurtúnin seiða hugans þrá,
að mega dvelja i minninganna lund,
margt er þar að una við og sjá.
Bjarta æska, þú sem áttir allt:
ærslaleiki, gleði, von og frið,
ert nú horfin. — Hjartað stirt og kalt
hættir störfum eftir litla bið.
Máttarvöld eg bið að blessa þig,
blessuð fagra æskusveitin min,
vefja geislum grund og sérhvern stig,
gæða hreysti og manndóm börnin þín.
PÉTUR ÁSMUNDSSON
(1 9 5 7)
Þriðja vandamálið er það sem
menn kalla „fordæmi Suez“. Síðan
Nasser tók Suezskurðinn eignar-
námi, hafa heyrzt mjög háværar
raddir um það meðal æsingamanna
þar syðra, að Panama ætti að fara
að dæmi hans, og taka Panama-
skurðinn eignarnámi. Og þar hefir
sama sagan orðið eins og í Egypta-
landi, að þessir menn hafa gert
óheillavænlegt samband við komm-
únista til þess að fá aukið fylgi við
kröfur sínar. Þetta hefir þó ekki
borið mikinn árangur enn, þvi að
kommúnistar eru fáliðaðir í Mið-
Ameríku og Suður-Ameríku.
Meðan stóð á endurskoðun samn-
inganna 1955, gerðu Panamamenn
þá kröfu að öll skip, sem um skurð-
inn færi, yrði að hafa uppi fána
Panama í stað Bandaríkjafánans,
og að Panamaskurðurinn yrði af-
hentur Panamastjórn þegar 50 ár
væri liðin frá opnun hans. Báðum
þessum kröfum var hafnað.
Nú eru ýmsir í Panama farnir
að krefjast þess, að Panama fái for-
ráðarétt yfir skurðarsvæðinu, enda
þótt skýrt sé tekið fram í samn-
ingunum um skurðinn og nær-
liggjandi land, að Bandaríkin hafi
þar full umráð yfir, án nokkurrar
íhlutunar af hálfu Panamastjórn-
ar. Talið er þó, að enn sem komið
er leggi meirihluti þjóðarinnar ekki
eyru við slíkum kröfum, og blöðin
halda því fram, að hagsmunir Pan-
ama sé bezt tryggðir með því, að
Bandaríkin hafi allan veg og vanda
af rekstri skurðarins, og greiði fyr-
ir það álitlega upphæð í ríkiss.ióð
Panama. En hvað verður það
lengi? (Úr New York Times Maga-
zine)
Pönnukökur eru góðar.
Ung kona kom til geðlæknis og
sagði:
— Fólkinu mínu þykir það undar-
legt hvað eg er sólgin í pönnukökur og
þess vegna sendi það mig til yðar.
— Það eru engin veikleika merki
þótt manni þyki pönnukökur góðar,
sagði læknirinn. Eg er til dæmis sólg-
inn í þær.
Þá hýrnaði yfir stúlkunni.
— Nei, er það satt, eruð þér sólginn
í pönnukökur? Þá ættuð þér að heim-
sækja mig einhvern tíma. Eg á fimm
kistur fullar af pönnukökum.