Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1957, Page 1
Meiri gætni og bekking bílstjóra
mundi draga mjög úr bílslysum
FYRIR einu ári var stofnað í Eng-
landi „Institute of Advanced
Motorists" og hefir það á stefnu-
skrá sinni að auka öryggi bílferða
Meðal annars veitir það bílstjórum
„meira próf“, eða nokkurs konar
„landspróf", og hafa 6000 bílstjórar
þegar gengið undir það, en af þeim
fellu 40%. Er sýnilegt á því, að
hið venjulega bílpróf er ekki full-
naegjandi. En hvernig stendur á
því? Yfirumsjónarmaður bilpróf-
anna heitir George Eyles og hefir
hann ritað grein um þetta í „Ox-
ford Mail“. Og þar sem vér eigum
að færa oss í nyt reynslu annarra
þjóða í þessum málum, er hér birtur
útdráttur úr greininni.
EINA ráðið tii þess að draga úr
hinum hörmulegu umferðarslysum
er það, að öryggi í bílstjórn verði
meira en nú er.
Árið 1955 slösuðust og biðu bana
276.922 menn, af völdum bílaum-
ferðar á götum og þjóðvegum í
Englandi. Vér getum ekki horfí
upp á að þessu haldi þannig á-
fram endalaust. Og hér hvílir sér-
stök ábyrgð á öllum þeim, sem bíl-
próf hafa.
Menn hafa heimtað betri vegi,
en það er ekki lausnin. í Banda-
ríkjunum og víða á meginlandi
Evrópu eru margir ágætir bílvegir,
en þó eru slysin þar fleiri en hér.
Ef þér lítið á uppdrátt þann,
er lögreglan í Bretlandi hefir gert
af slysastöðum, þá munuð þér sjá,
að langflest slysin verða á gatna-
mótum í úthverfum borganna.
Eina ráðið til þess að fækka slys-
ununa, er betri og öruggari akslur.
Þeir eru alltof margir bílstjórarn-
ir, sem halda að bílpróf sitt sé full-
nægjandi, í stað þess að það er
aðeins byrjunin á langri leið. Þeim
verður að skiljast, að bílakstur er
list, sem á leggst, að varúð, sífelld
aðgætni, tilhliðrunarsemi og mikil
æfing, er það sem gerir mann að
góðum bílstjóra.
Allt of margir bílstjórar vilja
ekki við það kannast að þan gfttí