Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1957, Qupperneq 8
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
CM
Þetto gerðist í nóvembermánuði
A Alþingi
er komin
tram tillag^
um að reisa
petta minni
-merki í
Hrífudal á
Fjölum, bú
stad Ingólf
Arnarsonai
í Noregi.
HIN svokallaða Asíu inflúensa
varð að faraldri um allt landið.
Þegar í bvrjun mánaðarins var
hún orðin svo mögnuð í Reykja-
vik að flestum skólum var iokað.
Síðan varð að loka skólum í öðr-
um kaupstöðum landsins. Undir
mánaðamót mátti svo heita að
veikin væri gengin um garð í
Reykjavík og höfðu þá andast
úr henni nokkrir tugir af öidruðu
fólki. En þá var veikin enn í al-
gleymingi út um land og í Vest
rnanneyum lá þá fjöldi fóiks i
lienni.
VEBRATTA
I byrjun mánaðarins gerði stórviðri
norðan lands og slitnuðu niður síma-
línur, en 18 simastaurar brotnuðu sunn
-an við Húsavík. Upp úr því gerði hríð
arveður og kyngdi niður miklum snjó
íyrir norðan og austan svo að allir fjall
-v^ir fyrir áustan Skagafjörð urðu ó-
færir bilum. Um miðjan mánuð brá
svo til hlýinda og hvarf þá allur snjór,
en vegir urðu eins og á sumardegi
Sunnan lands heldust þessi hlýindi til
loka mánaðarins, en seinustu dagana
var dálítið frost nyrðra. En seinasta
dag mánaðarins var 7—10 st. hiti um
land allt.
í iok mánaðarins var allmikill ís
fyrir norðan land, og strönduðu stórir
borgarísjakar á Skagafirði og hjá
Ströndum (28.)
t’TGERÐIN
Síld fór fyrst að veiðast fyrir Vest-
urlandi um miðjan mánuðinn og var
síðan saemilega góð veiði til mánaða-
móta. En tíð var fremur óstöðug og
erfitt að stunda veiðarnar vegna þess
að þær voru djúpt undan landi. Þaö
háði og að hörgull var á sjómönnum,
svo að sumir bátar komust ekki á sjó
fyrr en seint og síðar meir og sumir
alls ekki.
Um miðjan mánuðinn kom hlaup af
smásíld inn á Eyafjörð og alla leið inn
á Akureyrarpoll. Nokkrir bátar stund-
uðu þar veiðar og lögðu mestan hluta
■flans upp í Krossanesi. Bafði verk-
smiðjan þar tekið á móti 7400 málum
fyrir mánaðamót (29.)
Unnið var að því að i'á Síldarverk-
smiðjur ríkisins til þess að kaupa bæ-
artogara Siglufjarðarkaupstaðar (3.)
Afli togara varð rýr í þessum mán-
uði. Nokkrir sigldu með afla sinn á er-
lendan markað og fekkst hátt verð I
fyrstu ferðunum, bæði í Þýzkalandi og
Englandi, en svo fell markaðurinn mik-
ið og fengu sumir togarar lélegar söl-
ur. Eitthvað virtist markaður vera að
glæðast í Englandi undir mánaðarlok.
Aðalfundur Landsambands íslenzkra
útvegsmanna var í Reykjavík (21., 22.)
Kom þar glöggt íram við hve mikla og
vaxandi erfiðleika útgerðin á að stríða
Greiðslur Útflutningssjóðs hafa á þessu
ári numið nær 243 milljónum króní
(23.) Tap á hverjum togara er nú talif
rúmlega ein milljón króna á ári, en
báta 140 þús. kr. (27.) Útgerðarmenn
telja sig eigi geta gert út á næsta ári
nema nýir samningar fáist við ríkis
stjórnina.
A þessu ári hafa verið 1344 útlend-
ingar á fiskiskipaflotanum, aðallega
Færeyingar. Nú hefir stjórn Félags
færeyskra fiskimanna tilkynnt, að eng
inn færeyskur sjómaður íáist á ís
lenzk skip, vegna vanefnda á kaup
greiðslum (17., 19.)