Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1958, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
435
Lerki- og blágrenistofnar í Mörkinni á Hallormsstað.
þannig það úrlausnarefni, hvort
vér þuríum að sætta oss við að
fóiksfjölgun komandi aldar fari
fyrir ofan garð eða neðan í sveit-
um landsins og lendi einvörðungu
í fiskiðju- og orkuverum iðnaðar-
ins. Er ekki hægt, að leiða nýja
aflvaka inn í sveitirnar og færa
þeim fjölbreyttari gróður — líi'-
gjafa, er skapað geti fleiri sonum’
og dætrum framtíðarinnar ból-
festu um héruð og dali? — Því er
fljótsvarað. Sá aflgjafi er til. Hann
er þegar kominn á vettvang og
hirðmenn hans standa hér allt í
kring og bíða þess eins, að við
veitum þeim áheyrn og tökum þá
í þjónustu vora. Þessi aflvaki er
skógurinn og fóstra hans skóg-
græðslan.
Ég ætla ekki að eyða tíma í
það hér á þessum stað, að rökræða
hvort skógar geti vaxið á íslandi,
— hvort heldur eru barr eða birki-
skógar — né fara um Það mörgum
orðum, hvort skóggræðsla sé
möguleg hér. Þar tala dæmin svo
skíru máli, hvert sem litið er, að
ekki verður um villzt. Ég bendi
aðeins á þá staðreynd, að hér í
Hallormsstaðaskógi standa tré,
sem borið gætu hvaða síma- eða
rafveitulínu sem væri og að eina
ástæðan til þess, að þau standa
ekki hér þúsundum saman er sú,
að eigi voru í tæka tíð gróðursett
fleiri tré. Og hefðu lerkitrén í
Guttormslundinum hérna fyrir
ofan okkur, sem gróðursett voru
fyrir 20 árum, komist hundrað ár-
um fyrr í jörð, mundu nú standa
þar stofnar, sem nothæfir væru í
stórsiglur hinna hásigldustu hat-
skipa, enda er nú svo komið, að
um allt land standa barrtre,
sem gróðursett hafa verið sl. 20
ár, og taka eðlilegum vexti í ís-
lenzkri mold: í Haukadal, í Borg-
#
arfirði vestur, á Vestfjörðum, í
Eyjafirði, að ógleymdum þessum
stað, þar sem vér nú stöndum.
Alls staðar eru vaxtarmöguleik-
arnir. Hin ungu tré biðja aðeins
um vaxtarfrið og fleiri félaga sér
við hlið — bíða Þess að verða
burðarásar framtíðarbýlanna í
sveit og við zjó.
Rauðgreni við
Jökullæk á
Hallormsstað.
Gröðursett
1906 eða 1908.
Hefir vaxið
upp eftir að
birkiskógi var
rutt ofan af
því 1936.
é