Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1958, Side 2
458
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
það hefir verið löngu fyr en þetta
var og þó var enn óskipt beitiland.
Af Vík og bæunum þar um
kring fara engar sögur um aldir.
Veit því enginn hvernig stendur á
því, að jörðin var brytjuð niður í
mörg býli. En Arnarhóls er næst
getið í gjafabréfi, dagsettu í Engey
27. marz 1534. Það bréf er svo:
„Það geri eg, Hrafn Guðmunds-
son, heill að viti, en krankur á
líkama, góðum mönnum kunnugt
með þessu mínu opnu bréfi, að eg
gef jörðina alla Arnarhól, er liggur
á Seltjarnarnesi í Víkur kirkju-
sókn, heilögu klaustri í Viðey til
ævinlegrar eignar, en mér til
eilífs bænahalds, með þeim skil-
mála, að jörðin skal hvorki seljast
né gefast frá klaustrinu, en tíund-
ast ævinlega þar sem hún liggur,
þeim mönnum hjáveröndum: hús-
frúnni Þórey Narfadóttur, Guð-
brandi Jónssyni og Ingjaldi Jóns-
syni. En ef guð gefur mér minn
bata, heilsu og styrk, þá er fyr-
nefnd jörð, Arnarhóll, mín eign
og í minni umsjá svo lengi sem
guð gefur mér lífdagana, en eftir
mína framferð skal hún klausturs-
ins eign vera, sem fyr segir“.
Ekki er víst að Hrafn hafi búið
á Arnarhóli, en hann er seinasti
bóndinn, sem á þá jörð. Nokkrum
árum seinna kastaði konungur eign
sinni á allar jarðir Viðeyarklaust-
urs, og þá hafa verið rofnir þeir
skilmálar, sem Hrafn setti fyrir
gjöfinni, því að þá mun hafa verið
lokið hinu „eilífa bænahaldi“ fyrir
sál hans. Um hitt skilyrðið, að jörð-
in mætti hvorki gefast né seljast,
er að vísu það að segja, að hún var
hvorki gefin né seld, heldur var
henni bókstaflega rænt.
Húsfrú Þórey Narfadóttir, sem
var vitundarvottur að gjöf Hrafns,
hefir sennilega verið mágkona
Orms sýslumanns Jónssonar í Vík
og móðursystir Narfa Ormssonar
•ýslumanns, sem var seinasti sjálfs-
eignarbóndi í Vík. Narfi sýslumað-
ur lét dóttur sína heita Þórey, og
bendir það til skyldleikans.
Arnarhólsland
Það mun sennilega hafa verið
um þetta leyti, eða þó öllu heldur
fyr, að Arnarhólslandi var skipt úr
Víkurlandi. Þykir líklegast að það
hafi verið gert um leið og hjáleig-
urnar Skálholtsskot og Stöðlakot
byggðust. Nafnið Stöðlakot bendir
til þess, að þar hafi verið stöðull.
Nokkru ofar, eða þar sem nú er
lóð Ingólfsstrætis 9, var þá varða,
sem kölluð var Stöðulvarða og
berdir það nafn til hins sama. Efst
á holtinu, þar sem minnisvarði
Leif.s heppna stendur nú, voru beit-
arhús frá Arnarhvoli, og allt holtið
var þá kallað Arnarhólsholt, en
Öskjuhlíðin Víkurholt. Þegar landa
-merki voru nú ákveðin milli Vík-
ur og Arnarhóls, voru þau úr
Stöðulvörðu og vestanhalt við beit-
arhúsin og þaðan upp í Breiða •
mýri að Rauðarárlæk, en síðan réði
lækurinn landamerkjum til sjávar.
Þetta var þá allt Arnarhólsland.
Þegar beitarhúsin voru reist,
hefir bóndinn á Arnarhóli sjálf-
sagt átt allmargar kindur. En nokk-
uru eftir að skiptin fóru fram,
munu húsin hafa verið lögð niður,
því að þess er getið 1777, að þau
sé ekki annað en gamlar rústir. En
upp úr þessum rústum munu skóla-
piltar íafa tekið efni í Skólavörð-
una, sem hlaðin var á árunum
1785—86. Þannig hafa beitarhúsin
horfið. Og þær eru einnig horfnar
Skólavarðan og Stöðulvarðan.
Arnarhóll hefir eflaust misst
spón úr askinum sínum þegar land-
inu var skipt. Áður hefir hann haft
kúahaga og hrossahaga suður í
Vatnsmýri, í sameiginlegu beiti-
landi, en eftir það ekki aðra haga
heldur en meðfram Rauðarárlækn-
um. Sennilega hafa þó verið sæmi-
legir sauðfjárhagar í holtinu um
þær mundir. Annars missti Arnar-
hóll ekki öll sín hlunnindi af sam-
býli við Vík, því að hann átti enn
um langt skeið torfristu, stungu og
móskurð til eldiviðar í Víkurlandi,
og er þess getið í Jarðabókinni
1703.
Arnarhóll um 1700
Fyrstu glöggvar upplýsingar um
Arnarhól er að fá í Jarðabókinni.
Þá er þar tvíbýli og búa þar bræð-
ur tveir, Tómas og Jón Bergsteins-
synir. Var heimilisfólk hjá öðrum
6 manns, en hjá hinum 5. En auk
þess var hjá Tómasi tómthúsmað-
ur, Guðni Eyólfsson að nafni, með
konu og barn, og þar að auk hús-
maður, sem Klemens Jónsson hét.
Hjá Jóni var og tómthúsmaður,
sem Guðlaugur Höskuldsson hét,
og bjó hann með öðrum manni í
kofa heima við bæinn. Heimilis-
fólk hefir því verið 17 manns. En
svo voru löngum aðkomumenn
þar, því að þaðan gengu 1—3
kóngsskip og fylgdi þeim engin
verbúð, svo að bændur voru skyld-
aðir til að hýsa skipshafnirnar,
hvort sem voru ein eða fleiri, og
fengu ekkert fyrir nema soðning-
arkaup. Á þessu má sjá, að þarna
hafa þá verið allmikil húsakynni.
Vatnsból var talið slæmt á Arn-
arhóli. Það var brunnur neðst í
túninu rétt þar hjá sem Söluturn-
inn stendur nú. Margir Reykvík-
ingar muna eflaust eftir honum,
því að hann var þarna til skamms
tíma, en nú hefir verið steypt stétt
yfir hann. Við vitum ekki hve mik-
il eftirsjá er að þessum brunni, en
þessi hafa orðið örlög margra
gamalla minja hér — þær hafa ver-
ið afmáðar þegjandi og athuga-
laust.
Það var ekki eina kvöðin á
bændum að hýsa sjómenn kóngs,
heldur urðu þeir sjálfir að kosta
viðhald bygginga. Auk þess urðu
þeir að flytja Bessastaðamenn, hve